Helgarpósturinn - 08.10.1987, Síða 40
H^kátstjóri Helgartíðinda er
adalpersónan í nýrri spennusögu
sem kemur út hjá Svörtu og hvítu
nú fyrir jólin. Þetta kvað vera póli-
tískur þriller sem gerist í Reykja-
vík í mjög náinni framtíð, eftir einar
kosningar eða svo. Þar verða ekki
einungis á ferðinni blaðamenn og
ritstjórar, heldur líka stjórnmála-
menn sem flækjast í ýmis hneykslis-
mál og skandhala, sem er víst ekki
alveg laust við að minni á Hafskips-
málið. Þar á meðal neyðist sjálfur
forsætisráðherra lýðveldisins til að
segja af sér. 'En nú versnar í málinu,
því ekki fæst uppgefið hver höfund-
ur bókarinnar er, heldur skrifar
hann undir dulnefninu Tómas
Davíðsson, sem kvað líka vera
nafnið á aðalsöguhetju bókarinnar
— ritstjóra Helgartíðinda. Titill bók-
arinnar er Tungumál fuglanna og
segja þeir sem séð hafa að þetta sé
hin dægilegasta lesning...
E af fyrstu verkefnum al-
þingis er að kjósa menn í þing-
nefndir og nokkrar mikilvægar
stjórnir utan þings. Stjórnarand-
stöðuflokkarnir þrír, Alþýðu-
bandalagið (8 þingmenn), Borg-
araflokkurinn (7) og Kvennalist-
inn (6), hafa að undanförnu haldið
a.m.k. þrjá fundi um samstarf í kom-
andi þingnefndakjöri, sem að sögn
eins þessara þingmanna ,,er ótrú-
lega flókið púsluspil, þar sem allir
eru í vandræðum með efri deildina".
Enn hafa þessir flokkar ekki hafið
samninga um kjör í stjórnir og ráð
utan þingsins, en það er sameigin-
legt hagsmunamál stjórnarandstöð-
unnar að standa sem mest saman
við þessar kosningar, því annars
verður yfirburðastaða stjórnar-
flokkanna því meiri. Ýmsar þunga-
vigtarstjórnir koma fljótlega til
kasta þingsins, þar sem mest ber á
stjórnum Byggðastofnunar (7
stjórnarmenn), Húsnæðisstofn-
unar ríkisins (7), útvarpsráðs (7),
tryggingaráðs (5) og mennta-
málaráðs (5), auk þess sem kosið
verður í áfengisvarnaráð (4), út-
hiutunarnefnd listamannalauna
(7) og Þingvallanefnd (3). Stór
spurning í dæminu er hvað Stefán
Valgeirsson gerir, hvort hann
gengur í Framsóknarflokkinn
eða gengur til liðs við stjórnarand-
stöðuna. Ef stjórnarandstöðuflokk-
Góða
helgi!
Pú átt
þaö skilið
SS PIZZAHL'SIIJ
Grensásvegi 10, 108 R.
S:39933
arriir þrír ná saman verða þeir ekki
í vandræðum með 7-manna stjórn-
irnar, en öðru máli gegnir um þær
stjórnir sem eru fámennari, því þar
gæti aðstoð Stefáns skipt miklu
máli. Það sem e.t.v. dregur úr samn-
ingsvilja Stefáns nú er sú staðreynd
að bankaráð ríkisbankanna hafa
þegar verið mönnuð til ársloka 1989
eða lengur og Stefán því enn með
sinn feitasta bita, bankaráðsfor-
mennskuna í Búnaðarbankanum,
og formennskuna í stofnlánadeild
landbúnaðarins að auki. I samn-
ingum stjórnarandstöðuflokkanna
má hins vegar búast við mestum
slagsmálunum um setu í stjórnum
byggðastofnunar og húsnæðimála-
stofnunarinnar. . .
I£
I vbkröfludraugurinn lifir enn
góðu lífi. Ef ekki er verið að eyða
hundruðum milljóna króna af skatt-
peningum almennings í vonlausa
stóriðju þá er verið að gefa eftir og
afskrifa skuldir draumórafyrirtækj-
anna. Við samningu komandi fjár-
laga hefur verið tekist á um að skera
hér og þar til að ekki þurfi að hækka
skatta um of. Framlag í Bygginga-
sjóð ríkisins verður a.m.k. 200
milljónum króna lægra en fyrirhug-
að var. Niðurgreiðslur á vöruverði
eru skornar niður og skattar stór-
hækkaðir til að fjárlagagatið verði
ekki miklu stærra en einn milljarð-
ur. En núna hafa þær fréttir borist út
að hið opinbera ætli sér að afskrifa
allt upp í 500 milljóna króna skuldir
Sjóefnavinnslunnar hf., hinnar
nýju Kröflu. Þetta er hálft fjárlaga-
gatið. Upphæðin er talsverðu hærri
en ríkið ver í ár til Byggingasjóðs
verkamanna eða landhelgis-
gæslunnar svo dæmi séu tekin og
um fjórfalt íramlagið til fram-
kvæmdasjóðs aldraðra...
A
Suðurlandi er viða rikjandi
óánægja meðal félagsmanna kaup-
félaga og annarra samvinnufyrir-
tækja með fjarstýringu SÍS-veldisins
á málefnum heimamanna. Þannig
munu félagsmenn í Kaupfélagi
Árnesinga hafa lagt til og fengið
samþykkta á síðasta aðalfundi
kaupfélagsins tillögu um að félagið
stækkaði hlut sinn í útgerðar- og
fiskvinnslufyrirtækinu Meitlinum
hf. í Þorlákshöfn, en hlutur þess er
nú innan við 10%. SÍS á 56% í fyrir-
tækinu og olíufélag samvinnuhreyf-
ingarinnar, ESSO, á bróðurpartinn
af afganginum og vildu kaupfélags-
menn einkum kaupa hlut af olíufé-
laginu, sem á hinn bóginn neitaði að
selja í óformlegum þreifingum. For-
stjóri Meitilsins, Páll Jónsson, og
kaupfélagsstjórinn, Sigurður
Kristjánsson, hafa átt í deilum
vegna þessara og annarra mála og
mun Páll hafa gefið út dagskipun í
Meitlinum um að ekki yrði verslað
við KÁ, hvorki á Selfossi né í nýja
útibúinu í Þorlákshöfn. Þá hefur
kaupfélagsstjórinn staðið í deilum
við bæjarstjórn Selfoss, sem ekki vill
kaupa af honum gamla kaupfélags-
húsið á því verði sem hann setur
upp. Á meðan bíður ónotuð en fok-
held efri hæðin í hinu nýja stóra
vöruhúsi kaupfélagsins og hleður
utan um sig fjármagnskostnaði. . .
PHANTOM RED
Hún er heillandi. Brosandi umvefur hún sig
töfrum. Phantom red er liturinn hennar
vegna þess að í hverri konu blundar löngun
til að skapa örlitla ringulreið. Hún notar
Margaret Astor Ultra-soft varalit og
Ultra-diamant naglalakk nr. 59, ásamt
augnskugga nr. 40 og 41.
Phantom red er haustlínan ’87 frá Astor.
Varalitir og naglalökk nr. 55, 56, 57, 58,
59, 60.
Augnskuggar Single, nr. 40 og 41.
Augnskuggar Duo, nr. 32 og 33.
Augnblýantar,
Augnbrúnablýantar,
Kinnalitir, Cream Rouge,
nr. 94 og 95.
nr. 90 og 91.
nr. 21 og 22.
ÓGLEYMANLEGIR LITIR
40 HELGARPÓSTURINN