Morgunblaðið - 19.11.1966, Page 5
Laugardagur 19. nðv. 1968
MORGU N B LAÐIÐ
5
1 -'i:■' ••• ■ ••-'
UR
ÖLLUM
ÁTTUM
Á SÉÐUSTU árum hefur leik
listaráhugi eflzt mjög i dreif-
býlinu, og leiklistargyðjaa
Thalía látiff gamminn geisa
víða um héruff. Er þetta ekki
síst aff þakka aff umferffaleik
flokkar meff reyndum leikur
um eru mjög farnir aff tíðka
leikferðalög umhverfis iand-
iff og um leiff vakið leiklistar
áhugann meffal héraffsbúa.
"**3
Leikendur og starfsfólk við flutninginn á Manni og kouu, sem fiutt verffur að Borg í dag.
(Ljósm. Mbl.: Ól. K. M.)
Með mðnnum og konum í Grímsnesí
Lifið inn á æfingu i Borg, þar sem verið er að setja á svið „Mann og konu"
ýmislegt í undirbúningi í þá
átt. Húsnefndin ætlar sér í
framtíðinni að halda kvöld-
vökur, sem eiga að verða sex
á ári, og höfum við haldið
fjórar kvöldvökur frá því að
húsið var opnað í febrúar-
mánuði sl., ávallt fyrir fullu
húsi“.
„Jú það er gífurlega mik-
il viðbrigði að fá vanan leik-
stjóra til þess að aðstoða okk
ur við uppfærslu leikritsins.
Fram að þessu höfum við
yfirleitt íikrað okkur sjálf
áfram, en nú koma til sög-
unnar staðsetningar á svið-
inu, og sviðsframkoma. Við
erurn líka ákaflega þakklát
Leikféiagi Kópavogs fyrir
að hafa fengið hjá þeim leik-
tjöld þess, sem það notaði er
það setti leikritið á svið fyr-
ir nokkrum árum.“
,,Það hefur gengið ótrúlega
vel að fá fólk til þess að taka
þátt í leikritinu, enda þótt
allar aðstæður séu mjög
erfiðar. Allir sem koma hér
fram í leikritinu, eru bundn-
ir við dagleg störf, og því
eru það eins kvöldin og næt-
urnar eini tíminn við æfing-
ar. Æfingar hafa staðið yfir
frá því síðari hluta október,
og verið æft nær hvert kvöld
í viku, svo að þetta hefur ver
ið ákaflega strembið", segir
Böðvar að lokum.
Hefur þetta átt sinn stóra
þátt í því aff hressa upp á fá-
breytileika hversdagslífsins i
dreifbýlinu.
Morgunblaðið hafði af þvi
fregnir fyrir skömmu að
Grímsnesingar væru um þess
ar mundir að setja á svið
Mann og Konu eftir Jón Thor
oddsen, sem þeir munu frum
sýna í dag. Þótti okkur til-
valið að leggja leið okkar i
menningarmusteri þeirra
Grimsnesinga til þess að
ars skemmtilegt að sjá, hvern
ig Jón Thoroddsen tekur af-
stöðu til persóna sinná, sveip
ar annan hópinn næstum. því
guðlegum ljóma, en treöur
hinn hópinn niður í svaðið,
sem illmenni eða heimsk-
ingja — en ekkert þar á
milli. Og það er eflaust mik-
ið til í því, sem Kristján
Jónsson leikstjón beirra
Grímsnesinga sagði við okk-
ur: „Ég tel að þetta eigi tví-
mælalaust mestan þátt í því,
Affalleikendurnir í' leikritl Jóns Thoroddsens, Manni og konu,
eru hjónln Birgir Hartmannson og Lára Bjarnadóttir frá
''ltljótsvatni.
fylgjast með einni æfingu.
Þegar við komum í hlið glæsi
lega samkomuhús í Gríms-
nesi, Borg, var fyrsti þáttur-
inn byrjaður, og Hallvarður
Hallsson sagði ýkjusögur af
sjálfum sér í baðstofunni á
Hlíð. í tveimur næstu þátt-
um var brugðið upp myndum
af prestsetrinu á Stað, þar
sem hinn slægi og undirför-
uli klerkur, Sigvaldi, ræður
ríkjum. Þar sjáum við í
fyrsta skipti aðalpersónurnar
Þórarin og Sigrúnu, og
fjölda annarra mætra manna
og kvenna, svo og fjölda illra
manna og kvenna. Það er ann
hve leikritið hefur orð;ð vin-
sælt meðal alþýðu, það hiitir
fólkið beint í hjartastað.“
A Mikill leiklistaáhugl
Milli þátta notuðum við
tækifærið til þess að spjalla
nokkra stund við Kristján
leikstjóra, en hann hefur æft
þá Grímsnesinga flest kvöld
í u.þ.b. hálfan mánuð. Við
lögðum fyrst fyrir hann' þá
spurningu, hvort hann hefði
oft áður sett leikrit út a lands
byggðinni á svið.
„Já, ég held þau séu eitt-
hvað í kringum 20 leikritin
sem ég hef stjórnað hingað
og þangað um landið,“ svar-
aði hann, „ég hef að mestu
verið í þessu síðan ég útskvif
aðist úr Leikskóla Þjoðieik-
hússins fyrir 7 árum. En
þetta er í fyrsta skipti, sem
ég stjórna „Manni og konu“,
og hef ég haft reglulega gam
an að því að fást við þetta
stykki.“
Hvernig finnst honum að
stjórna leikntum með svona
algjörum áhugamönnum í
leiklistinni?
„Ég hef haft alveg sérstak-
lega mikla ánægju af því að
starfa með þessum leikflokk-
um til sveita, og ekki sízt af
því að starfa með þessum
leikurum hérna, vegna þess
hve þau eru öll áhugasöm.
Þau koma sum hver kannski
á æfingu beint úr mjöltunum,
og sum leggja meira segja á
sig að fara um 30 km. vega-
lengd til þess að sækja æfing
ar hvert einasta kvöld vik-
unnar. Þær byrja venjulega
um níu leytið á kvöldm. og
er þeim yfirleitt lokið_ milli
kl. 2 og 3. Á þá þetta fólk
eftir að aka alla þessa vega-
lengd heim, og finnst mér það
sýna ljóslega áhugann fyrir
verkefninu“.
★ Félagslífiff aff lifna.
Það er U.M.F. Hvöt sem
stendur að flutningi leikrits-
ins, en þetta ungmennafélag
er hið elzta á Suðurlandi.
Formaður félagsins nú er
Böðvar Pálsson, á Búrfelli
í Grímsnesi. Hann fer með
lítið hlutverk í leikritinu, en
er auk þess ljósameistari.
Við notuðum tækifærið og
röbbuðum- við hann stutta
stund.
„Jú, það er rétt“, sagði
Böðvar, „þetta er fyrsta stóra
leikritið, sem við setjum upp
Böffvar Pálsson, formaffur UMS Hvatar, sem gengst fyrir flutn-
ingi leikritsins, ræðir viff Kristján Jónsson, leiksíjóra.
hér á sviðinu í nýja samkomu
húsinu, en við höfum áður
verið með smærri leikþætti,
og auk þess hafa komið hér
umferðaleikflokkar og sýnt“.
„Við höfum nokkrum sinn-
um áður fært upp leikrit
hérna í sveitinni, enda er það
eitt af verkefnum ungmenna-
félagsins. En þessi leikrit
hafa þó oftast verið í tengsl-
um við jólaskemmtanir fé-
lagsins. Síðasta leikritið sem
sýndum var „Karólína snýr
sér að leiklistinni“, og var það
árið 1J60. Síðan hafa ekki
verið færð hér upp leikrit
og félagslífið yfirleitt verið
mjög dauft undanfarin fjög-
ur ár. Má þar mest um kenna
að gamla samkomuhúsið var
var orðið óhæft til skemmt-
anahalds. En við vonumst til
að með tilkomu nýja sam-
komuhússins færist fjör í fé-
lagslífið, og erum við með
Fara 30 km. vegalengd á
æfingu.
Með hlutverk Þórarins og
Sigrúnar fara ung hjón frá
Úlfljótsvatni. Lára Bjarna-
dóttir og Birgir Hartmanns-
son, og eru þau meðal þeirra
sem lengst eiga að sækja æf-
ingar
„Við verðum að fara milli
20 og 30 km. vegalengd á
hverju kvöldi á æfingar“,
upplýsir Birgir okkur um.
„Við leggjum af stað strax
og búverkum er lokið, og
við erum svo venjulega kom-
in heim um kl. hálf þrjú eða
hálf fjögur.“
„Heimilið er alveg í rúst
vegna æfinganna", bætir
Lára við, „en við erum þó
svo lánsöm að hafa getað
komið barninu í fóstur í Mos
fellssveit, svo að þetta kem-
ur ekki svo ýkja mikið nið-
ur á þvi.“
Framhald á bls. 31.
Hallvarffur Hallssón segir lygasögur í baffstofun ni í Hlíff, þar sem fósturforeldrar Sigrúnar búa.