Morgunblaðið - 19.11.1966, Síða 8
9
MORGUNBLAÐIÐ
Laugardagur 19. nóv. 1966
— JÁ, það er rétt — ég er frá
Jamaica, fædd þar og uppal-
in. Sjáðu — þarna á píanóinu
er fáninn okkar, og litirnir í
honum eru hinir sömu og í
kjólnum mínum, svart, gult
og grænt. Það vill svo til, að
þetta eru mínir eftirlætislitir
og því teiknaði ég þennan
kjól sem einskonar þjóðbún-
ing og lét sauma hann fyrir
mig til þess að nota erlendis.
Það er ung stúlka og falleg,
sem talar, Conni Bryan, dökk
á brún og brá — og nýkomm
til íslands í því skyni að leika
á píanó á kvöldin fyrir gesti
þá, er sækja heim Hótel Holt
til þess að njóta þar góðs
matar og gullinna veiga x
Connie Bryan
Jamaica er fallegt land
og fólkið afar gestrisið
- segir Connie Bryan, se:n
spilar á Hótel Holti
fallegu og hlýlegu umhverfi.
Veitingasalurinn í Hótel
Holti hefur frá upphafi verið
mjög vinsæll meðal þeirra,
sem óska að snæða í ró og
næði, lausir við ærandi hljóm-
sveitarhávaða, sem yfirgnæfir
gersamlega allar samræður.
Mörgum þykir þó notalegt að
heyra einhverja tónlist, svona
sem undirtón samræðna. Mjúk
ur og lágvær tónakliður getur
gert andrúmsloftið skemmti-
legra og umræður frjálslegri.
Og í því skyni að skapa slíkt
andrúmsloft hefur Þorvaldur
Guðmundsson, hótelstjóri feng
ið Connie Bryan til landsins.
Að áliti undirritaðrar tekst
Connie Bran fullkomlega að
gegna þessu hlutverki sínu.
Hún er greinilega gædd góð-
um tónlistarhæfileikum, spil-
ar leikandi létt og músikalskt
ýmiss konar létt lög, m. a. úr
söngleikjum og kvikmyndum,
gömlum og nýjum, — lög, sem
allir kannast við. Og hún spil-
ar þessi lög svo þægilega og
lágt, að hverjum og einum er
nánast í sjálfs vald sett, hvort
hann leggur við hlustirnar
eða ekki.
Þegar ég hafði orð á þessu
við Connie Bryan, er ég hitti
hana sem snöggvast að máli,
hló hún glaðlega og sagði:
— Þakka þér fyrir að segja
þetta — það er einmitt þessi
áhrif, sem ég vil reyna að
hafa með leik mínum. Ég
réyni að leika ekki eigin-
gjarnt, með það í huga að
krefjast athygli, heldur er það
markið mitt, að gestirnir
slappi af — að þeir, sem
koma hingað þreyttir eftir
dagsins önn, áhyggjufullir út
af einhverju eða ergilegir,
geti sezt niður og fengið sér
að borða, látið tónlistina líða
um hugann og slappað af,
gleymt amstrinu og áhyggjun-
um og notið máltíðarinnar.
Svo sagði hún mér smávegis
um sjálfa sig:
— Ég er fædd og uppalin
á Jamaica, og stundaði þar
tónlistarnám í Royal School of
Music. Fór síðan til fram-
haldsnáms í Trinity College
í London, lauk kennaraprófi
í músik og stundaði framan
af kennslu heima. En svo fór
mig að langa að ferðast og
tók þá upp á þessu, að spila
svona á veitingahúsum. Ég
hef alltaf átt gott með að leika
létt lög af fingrum fram —
hef þetta frá föður mínum,
sem er ágætur píanóleikari.
En hann hefur aldrei leikið
opinberlega eða starfað sem
slíkur, — hann er kaupsýslu-
maður. Fjölskyldan er öll
músikölsk, en ég er sú eina,
sem lagði þetta fyrir mig.
Síðustu árin hef ég verið
búsett í París, en ferðazt víða
og leikið.
— Og hvað í ósköpunum
kom þér til að fara til íslands
og það á þessum tíma ársins?
— Ja, þú trúir því nú
kannski ekki, en mig hefur
lengi langað að koma til ís-
lands. fyrir nokkrum árum
kynntist ég tveimur íslend-
ingum í Bandaríkjunum, þeir
voru þar við nám, annar í
læknisfræði, hinn í félags-
fræði eða einhverju þess hátt-
ar. Þeir sögðu mér frá land-
inu og auðvitað langaði mig
þá strax að koma hingað ein-
hvern tíma. Síðan hef ég ver-
ið á öllum Norðurlöndunum
þar á meðal Finnlandi — og
satt að segja, lízt mér svo á,
af fyrstu kynnum við íslend-
inga, að mér mimi líka bezt
við Finna og íslendinga allra
Norðurlandaþjóðanna. Finnar
fannst mér dásamlegt fólk. Ég
var þar í marga mánuði, fyrst
í smáborg, sem heitir Kemi,
í a.m.k. tvo mánuði, síðan
annað eins í Rovaniemi,
fallegri, nýtízkulegri borg
norður í Lapplandi.
— Og nú ertu komin til ís-
lands í rigninguna og um-
hleypingana.
— Uss, það gerir ekkert til
með veðrið, — þó verð ég að
játa að mér leiðist rigning
og forðast að vera úti, þegar
svo viðrar.
— Og hvað hyggstu þá gera
á daginn, þegar þú ert ekki að
vinna?
— Blessuð vertu ég hef nóg
að gera við ritvélina — ég er
að skrifa ævisögu mína.
— Er nú ekki nokkuð
snemmt að byrja á því strax?
— Nei, því það? Það er
aldrei að vita, hvað lengi
maður lifir — og ég staðráðin
í að gera þetta, svo að ég get
eins byrjað nú eins og seinna.
Verulegur þáttur í þessari bók
minni verður um lífsviðhorf
mitt og afstöðu til annars
fólks, sem byggist fyrst og
fremst á því að hata aldrei
neinn, — og reyna að sýna
fólki aldrei annað en vinsemd.
Þegar maðurinn hatar eða er
andstyggilegur í framkomu,
líður honum sjálfum illa,
hatrið bitnar meira á honunt
sjálfum en þeim, sem því er
beint að.
— Þetta má nú segja að sé
kristilegt viðhorf.
— Það veit ég ekki, segir
Connie og hlær dátt — ég er
víst ekki sérlega kristin, var
einu sinni kaþólsk, en ekki
lengur, Nú veit ég ekki á
hvað ég trúi.
Connie var að byrja að
segja mér frá landi sínu, þeg-
ar ljóst varð að gestir húss-
ins voru orðnir óþolinmóðir,
vildu fá meira að heyra. Við
kvöddumst því og Connie
skoraði á mig að fara sem
fyrst til Jamaica —
— Jamaica er fallegt land
og fólkið afar gestrisið. Þar
lifa saman margir kynþættir
í friði og einingu, kynþátta-
vandamál þekkist ekki, fólk
velur sér vini, kunningja,
samstarfsmenn og maka eftir
því, hvern mann þeir hafa að
geyma, ekki eftir því, hvernig
þeir eru á litinn. Já, Jamaica
er gott land.
— Og Connie kveður. Hún
gengur að píanóinu, brosir
svo skín í mjallhvítar tenn-
urnar og segir mjúkri röddu:
Já, nú skal ég spila meira og
meira og meira .... mbj.
GJAFABÆR
Opnum í dag
í nýju verzlunarmiðstöðinni SUÐURVERI
á horni Kringlumýrarbrautar og Hamra-
hlíðar.
GJAFABÆR hefur búsáhöldin
GJAFABÆR hefur leikföngin
GJAFABÆR hefur skólavörurnar.
REYNIÐ VIÐSKIPTIN.
GJAFABJER
á horni Kringlumýrarbrautar.
Læknisstarl
Stjórnarnefnd ríkisspítalanna óskar eftir sérfræð-
ingi í húðsjúkdómum að Landsspítalanum til hluta
úr starfi og þátttöku í gæzluvöktum.
Laun samkvæmt samningi Læknafélags Reykja-
víkur og stjórnarnefndar ríkisspítalanna.
Umsóknir með upplýsingum um aldur, námsferil
og fyrri störf sendist stjórnarnefnd ríkisspítalanna,
Klapparstíg 29, fyrir 20. desember n.k.
Reykjavík, 18. nóvember 1906.
SKRIFSTOFA RÍKISSPÍTALANNA.
Húsbyggjendur
Hef flutt verkstæðið að Súðarvogi 26.
Smíðum glugga, hurðir og hvers konar innréttingar.
Trésmíðaverkstæði Rósmundar Runólfssonar
Heimasími 34609.
Byggingaverkfræðingur
óskast til starfa hjá Kópavogskaupstað.
Umsóknarfrestur er framlengdur til 30. þ. m.
Kópavogi, 18. nóvember 1966.
BÆJARVERFRÆÐINGUR.
Austfirðingar
Múlaþing — ársrit Sögufélags Austurlands fæst í
bókaverzluninni Bókin Skólavörðustíg 6 Reykja-
vík. hjá umboðsmönnum í Múlasýslum eða beint
frá félaginu Selási 31 Egilsstaðakauptúni.
Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra
Kvennðdeildin
Bazar verður haldinn í Skátafélaginu við Snorra-
braut sunnudaginn 20. nóvember kl. 14.
Konur skilið munum að Sjafnargötu 14.
STJÓRNIN.