Morgunblaðið - 21.05.1980, Page 1
32 SÍÐUR
113. tbl. 67. árg. MIÐVIKUDAGUR 21. MAÍ 1980 Prentsmiðja Morgunblaðsins.
173
f órust í
eldsvoða
Kingston, Jamalca, 20. mai. — AP.
173 FÓRUST í eldsvoða, sem kom
upp í kvennaálmu fátækraheimil-
is í Kingston á Jamaica í morg-
un. Aðeins 30 konur komust lifs
af. Taiið er að um ikveikju hafi
verið að ræða, en hótanir höfðu
norist um að eldur yrði borinn að
húsinu. Michael Manley, forsætis-
ráðherra Jamaica, sagði í dag, að
fyrstu fregnir bentu til, að um
íkveikju hefði verið að ræða.
Margar kvennanna, sem fórust í
eldsvoðanum voru aldraðar og
fatlaðar og gátu því ekki forðað
sér. Slökkvilið kom á staðinn
aðeins nokkrum mínútum eftir að
tilkynnt var um eldsvoðann en þá
logaði byggingin, sem var úr
timbri, stafna á milli. í fyrstu var
talið, að bðrn hefðu verið í bygg-
ingunni en það var síðar borið til
baka. Eldsvoðinn í Kingston er
hinn mannskæðasti í sögu Jam-
aica.
i *»*
Muskie
gramur út í
d’Estaing
Washington, 20. maí. AP.
EDMUND Muskie, utanrikis-
ráðherra Bandaríkjanna,
gagnrýndi Valery Giscard
d'Estaing, Frakklandsfor-
seta, harðlega fyrir fund
hans með Leonid Brezhnev,
forseta Sovétríkjanna, í
Varsjá. Muskie lét óánægju
sína i ljós á sinum fyrsta
blaðamannafundi i Washing-
ton sem utanrikisráðherra.
Ilann sagði, að samstaða
rikja Atlantshafsbandalags-
ins hefði verið veikt með
fundinum i Varsjá.
Muskie var d’Estaing gram-
ur fyrir að hafa ekki látið
bandamenn sína í Atlants-
hafsbandalaginu vita um
fundinn fyrr en sólarhring
áður en hann hófst. Þegar
Muskie var í Brussel og Vínar-
borg á dögunum hafði hann
enga vitneskju um fyrirhugað-
an fund í Varsjá. Hann gagn-
rýndi Frakka fyrir þessa leynd
og vísaði um leið til gagnrýni
Frakka á Bandaríkjamenn
fyrir að hafa ekki látið banda-
menn sína vita um tilraunina
til að frelsa gíslana í Teheran
— sagði að lítið samræmi væri
í orðum og athöfnum Frakka.
Simamynd AP.
Fólk setur upp gasgrímur til að verjast öskufallinu.
98 saknað á
gossvæðinu
Gosmökkurinn kominn þvert yfir Bandaríkin
Vancouver og New York, 20. maí. AP.
AURSKRIÐUR og gosaska úr eldfjallinu St. Helens í Washing-
tonríki á vesturströnd Bandaríkjanna hafa stiflað Toutle-ána
norðan við eldfjallið, og þar hefur myndazt fimm kilómetra langt
stöðuvatn. Stiflan í ánni er yfir 60 metra há og 1200 metra löng, og
er óttazt að hún bresti fljótlega og veiti flóðbylgju vatns og aurs
niður ána. Um 65 kilómetrum neðar við ána eru tveir bæir með um
50 þúsund ibúa, og verða íbúarnir fluttir á brott ef stiflan brestur.
Vitað er að sex manns hafa
beðið bana í eldgosinu, sem hófst
27. marz, en 98 manns til viðbót-
ar er saknað. Erfitt er að leita í
nágrenni eldfjallsins vegna
öskufalls og aurs, og fjöldi leit-
arbíla eru úrbræddir eftir að
askan stíflaði lofthreinsara vél-
anna.
Gosmökkurinn frá St. Helens
berst í háloftunum austur á
bóginn frá vesturströndinni, og
sögðu veðurfræðingar í dag að í
kvöld yrði mökkurinn kominn
yfir norðursveitir Virginíuríkis,
3.500 km frá gosstaðnum. Ösku-
fa.ll hefur verið mikið í öllum
norðvesturríkjunum, og hefur
askan borizt alla leið austur yfir
Mississippifljótið í 2.500 kíló-
metra fjarlægð.
Gosskýið sjálft, sem nú nálg-
ast austurströnd Bandaríkjanna,
berst hraðbyri í 7.600—12.500
metra hæð, en víða sést hann
ekki frá jörðu vegna skýjafars.
Hefur mökkurinn og gosaskan
truflað mjög samgöngur bæði í
lofti og á láði, og víða hafa
flugferðir fallið niður.
Sovétmenn beittu 600
skriðdrekum í Ghazni
urðu að láta undan síga eftir mikið mannfall
Nýju-Dehlí, 20. maí. AP.
SOVÉSKAR og afganskar hersveitir hafa orðið að
láta undan siga eftir harða bardaga við skæruliða i
fjöllum Ghaznihéraðs, að því er heimildir frá
Afganistan herma. Bardagarnir i Ghazni eru
sagðir hinir hörðustu frá því Sovétmenn réðust inn
Sovétmenn drógu hersveitir
sínar frá Jaghatu og að sögn
undirbúa þeir nú sókn á Jaghori,
vestar í Ghaznihéraði. Skæruliðar
hafa náð á sitt vald ýmsum
mikilvægum héraðsborgum í
norðurhluta landsins. Allir sér-
fræðingar A-Evrópulanda í norð-
urhluta Afganistans hafa verið
fluttir til Kabúl.
Þá herma fréttir, að 4370 ung-
menni séu nú í fangelsum í Kabúl
eftir mótmælaaðgerðir undanfar-
ið. Lögreglusveitir hafa farið hús
úr húsi í höfuðborginni í leit að
andstæðingum stjórnarinnar. Að
sögn hafa um 200 manns verið
handteknir á sólarhring eftir að
mótmælaaðgerðirnar fjöruðu út.
Afgönsk stjórnvöld hafa skýrt frá
því, að sérstakir byltingardóm-
stólar muni dæma í málum 96
unglinga, sem voru handteknir í
mótmælaaðgerðunum.
Afganskir skæruliðar, sem nú
sitja ráðstefnu múhameðs-
trúarríkja í Islamabad í Afganist-
i landið. Bardagarnir voru hvað harðastir við
Jaghatu, um 170 kilómetra suð-austur af Kabúl.
Sovétmenn beittu þar um 600 skriðdrekum auk
stórskotaliðs í viðureign við skæruliða í héraðinu.
Sovétmenn misstu 260 menn fallna en ekki var
getið um mannfall i liði stjórnarhersins.
an, hafa farið fram á það við
múhameðstrúarríki að þau slíti
stjórnmálasambandi og efna-
hagslegum tengslum við Sovétrík-
in á meðan sovéskir hermenn eru í
Afganistan. Einn af leiðtogum
skæruliða, Abdul Rab Rasoul,
hafnaði alfarið tilboði Kabúl-
stjórnarinnar um brottför sov-
éskra hersveita en Karmalstjórn-
in kom með tilboð þar að lútandi
fyrir stuttu.
Skæruliðar lögðu fram tillögur í
sex liðum um stuðning við frelsis-
öfl í Afganistan. Þeir lögðu til, að
múhameðstrúarríki neituðu að
viðurkenna stjórn Karmals í Kab-
úl. Þess í stað yrði íslamska
bandalagið til frelsunar Afganist-
an viðurkennt sem hinn eini rétti
fulltrúi afgönsku þjóðarinnar.
Bandalagið sendi fulltrúa sína til
helstu höfuðborga heimsins, og að
múhameðstrúarríki viðurkenni þá
sem fulltrúa afgönsku þjóðarinn-
ar. Rasoul sagði, að frelsisöfl í
Afganistan væru ekki enn tilbúin
til að setja á laggirnar útlaga-
stjórn vegna ýmissa hnökra þar að
lútandi, en hann skýrði það ekki
nánar. Afganistanmálið er helsta
umræðuefnið á fundi múhameðs-
trúarríkja í Islamabad en einnig
er búist við að samþykkt verði
tillaga um lausn gíslamálsins
milli Bandarikjanna og írans.
Quebecbúar
sögðu „nei"
Montreai. 20. maí. AP.
KANADÍSKA ríkisútvarpið, CBC,
skýrði frá því i nótt, að Qucbeck-
búar hefðu hafnað aðskilnaðar-
stefnu Rene Levesque. forsætisráð-
herra fylkisins. Quebeckbúar sögðu
„nei“. Þegar Mbl. fór í prentun lágu
tölur ekki fyrir. Mjög mikil kjör-
sókn var í þjóðaratkva-ðagreiðsl-
unni. Þegar kjörstöðum var iokað
klukkan sjö að staðartíma, voru enn
langar biðraðir kjósenda sem hugð-
ust neyta atkvæðisréttar síns.
Liðlega 4.3 milljónir manna voru á
kjörskrá, þar af 3.5 milljónir
frönskumælandi íbúa. Atkvæða-
seðlar voru merktir „já“ og „nei“.
„Já“ þýddi, að stjórn fylkisins undir
forustu Rene Levesque færi fram á
samningaviðræður við ríkisstjórn
Kanada um sjálfstæði Quebec og
efnahagsbandalag við Kanada. „Nei“
hins vegar þýddi að staða fylkisins í
Kanada yrði óbreytt. Kosningunum í
Quebeck hefur verið lýst sem hinum
mikilvægustu í sögu Kanada. Pierre
Trudeau, forsætisráðherra, beitti sér
gegn aðskilnaðarstefnu Levesque.
m
Simamynd AP.
Kjósendur greiða atkvæði í Montreal.