Morgunblaðið - 21.05.1980, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. MAÍ1980
13
oft eru nauðsynleg fyrir nýja-
þætti í heilbrigðisþjónustunni.
Deild þessi hefur sérstaka stjórn,
og er formaður hennar frú Helga
Einarsdóttir.
Rótgróin stofnun
Nú hefur ný stjórn tekið við
Reykjavíkurdeild Rauða kross-
ins. Hefur það haít í för með sér
nýjungar eða breytingar í starfi?
Rauði krossinn er rótgróin
stofnun og skyndilegar breytingar
á starfsemi eiga sér tæplega stað.
Sú stjórn sem tók við Reykja-
víkurdeildinni á síðasta aðalfundi,
hefur haldið áfram því starfi og
það er mikilsvert Rauða kross
verkefni, sem Reykjavíkurdeildin
hefur átt veigamikinn þátt í um
árabil. Fjórir sjúkrabílar eru nú í
notkun í Reykjavík, einn nýr bíll
var tekinn í notkun á síðasta ári,
og tveir nýir bætast við á þessu
ári. Svo sem kunnugt er, annast
slökkviliðsmenn sjúkraflutning-
ana sjálfa, en það er vandasamt,
erfitt og viðkvæmt starf. Þeir hafa
leyst það af hendi með sérstakri
kostgæfni og prýði gegn lágri
þóknun þannig að líta má á starfið
sem sjálfboðið að hluta. A síðast-
liðnu ári voru farnar rúmlega 12
þúsund sjúkraflutningaferðir, þar
af var tíundi hluti vegna slysa,
þeirri stefnu, sem mótuð hafði
verið af fyrrverandi stjórn undir
forustu Ragnheiðar Guðmunds-
dóttur læknis, en hún hafði verið í
stjórn deildarinnar í 20 ár og
formaður hennar í 8 ár. Af
hugmyndum, sem hún kom fram
með um skipulag og störf deildar-
innar, má nefna stofnun kvenna-
deildar, sem áður er getið, og
aðstoðar við öryrkja og aldraða
með heimsendingu tilbúins matar.
Tvennskonar form hefur verið
reynt á þessari þjónustu og er hún
nú með þeim hætti að öldruðum og
öryrkjum, sem erfitt eiga um
öflun matar og matreiðslu, er
gefinn kostur á að fá sendan heim
tilbúinn mat. Hann er hraðfrystur
og unnt að geyma í ísskáp, en
þarfnast aðeins hitunar og er þá
fulltilbúinn til neyslu. Maturinn
er sendur heim einu sinni í viku og
getur fólk valið um 20 mismun-
andi rétti. Öll heimsending matar
er unnin af sjálfboðaliðum úr
kvennadeild, þannig að viðtakend-
ur greiða aðeins heildsöluverð
matarins en engan afgreiðslu- eða
sendingarkostnað. Hér hefur
Rauði krossinn byrjað á þjónustu
við samfélagshópa, sem þarfnast
meiri aðstoðar en hin opinberu
þjónustukerfi geta veitt eins og nú
stendur. Þegar gildi og gæði þess-
arar þjónustu hefur verið full-
reynd getur komið til mála að
opinberir aðilar taki þar við, verði
svo ekki, er það hlutverk Rauða
krossins að halda áfram þeirri
þjónustu, sem hjálparvana þegnar
þurfa á að halda og unnt er að
veita.
Hverja fleiri þætti i starfsemi
deildarinnar er ástæða að kynna
almenningi?
í því sambandi vil ég sérstak-
lega nefna kennslu í hjálp í
viðlögum sem er gamalgróið
Rauða kross verkefni. Nýr þáttur
var tekinn upp á þessu sviði á
síðastliðnu ári. Gerð var tilraun
til þess að veita grundvallar-
fræðslu fyrir nemendur, sem voru
að ljúka 9. bekk í grunnskóla. Var
þar lögð áhersla á að kveikja
áhuga fyrir samhjálp og slysa-
vörnum á breiðum grundvelli
meðal hinna ungu nemenda.
Þá má nefna sjúkraflutninga, en
einkum umferðarslysa. Fyrstu
verkefni Alþjóða Rauða krossins,
og raunar stærstu verkefni hans
enn, eru tengd styrjöldum. Okkar
styrjaldir eru slysin, þar bera
umferðarslysin hæst enda jafnast
mannfall, örorka og meiðsl, miðað
við fólksfjölda, á við það sem
gerist meðal stórþjóða, þegar þær
standa í minniháttar styrjöldum.
Breytingar
framundan?
Hvað er framundan?
Þjóðfélagið er stöðugt að breyt-
ast og ef til vill hraðari breytingar
í vændum en nokkru sinni fyrr.
Það er sennilega tímabært og
nauðsynlegt að mannúðar- og
hjálparstofnanir eins og Rauði
krossinn breyti einnig nokkuð
starfsháttum sínum enda þótt
grundvallarsjónarmið hljóti að
vera áfram hin sömu, öðruvísi
mundi stofnunin tæplega njóta
hins óskoraða trausts og virð-
ingar, sem hún hefur haft um
heim allan í heila öld.
Breyttir þjóðfélagshættir skapa
nýja hópa fólks, sem eru hjálpar
þurfi, án þess að eiga kost á slíkri
hjálp frá samfélaginu. Þessir sam-
félagshópar eru fyrst og fremst
öryrkjar, þroskaheftir, aldraðir og
unglingar. Líta má á suma ein-
staklinga þessara hópa sem fanga
þjóðfélagsins, þar sem múrarnir
eru ekki úr stáli og steini heldur
úr félagslegri og fjárhagslegri
einangrun. Rannsóknir hérlendis
og erlendis hafa sýnt að sumt
þetta fólk líður af næringarskorti
og einnig skorti á öðrum lífs-
nauðsynjum andlegum og líkam-
legum. Þá munu þroskaheftir og
sjúk gamalmenni sæta mestum
ókjörum og mannúðarleysi í okkar
þjóðfélagi. Vandamál þessi eru
fjölþætt, en varnarráðstafanir,
endurbætur og úrlausnir eru fé-
lags- og stjórnmálalegs eðlis.
Svipað má segja um önnur hratt
vaxandi vandamál í nútíma þjóð-
félagi t.d. ofbeldi, afbrot margs-
konar, notkun fíkniefna o.fl. Þetta
eru mikilvæg verkefni þar sem
Rauði krossinn þarf að beita
áhrifum sínum, þjóðfélagi og ein-
staklingum til heilla.
Ferðatöskur
Þiónustuferö
Volvo 1980
Þeir félagarnir Kristján
Tryggvason og Jón Sig-
hvatsson eru lagöir af staö í
þjónustuferö. Feröin felst í
skipulögöum heimsóknum til
umboösmanna og þjónustu-
verkstæöa Volvo um allt
land.
Þeir Kristján og Jón veröa
akandi á splúnkunýjum Volvo
345, beinskiptum. Er mein-
ingin aö þeir sýni nýja bílinn á
viökomustööum feröarinnar.
Á morgun miövikudaginn 21/5
veröa þeir félagar hjá Bílaverk-
stæöi ísafjaröar á ísafiröi. Þar
veröur bíllinn til sýnis frá kl.
11 — 12 og 13—15.
Á morgun, fimmtu-
dag 22/5 verða þeir
félagar hjá Vélsmiöju
Bolungarvíkur á Bol-
ungarvík. Þar veröur
bíllinn til sýnis frá kl.
11 —12 og 13—15.