Morgunblaðið - 21.05.1980, Side 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. MAI1980
það stendur á skilti i búðinni.
— Við neyðum engan!
BRIDGE
Umsjón: Páll Bergsson
í gær var hér fyrsta spilið í
úrslitaumferð íslandsmótsins í
tvímenning. Sigurvegararnir, Örn
Arnþórsson og Guðlaugur R. Jó-
hannsson með spil n-s gegn pari
nr. 2, Guðmundi Páli Arnarsyni og
Sverri Ármannssyni.
Spil nr. 2 í umferðinni var
fljótspilað. Sverrir lagði upp eftir
fjóra slagi í 3 gröndum, fékk 9
slagi, meðalspil. En í þriðja spil-
inu fékk Örn færi á að tryggja
sigurinn. Vestur gaf, a-v á hættu.
Norður
S. 1053
H. 85
T. ÁG107
L. D953
Vestur Austur
S. ÁK9862 S. G74
H. 973 H. D1042
T. 42 T. 95
L. 102 L. KG84
COSPER
Konan mín er farin að heiman svo þú hjálpar mér
við uppþvottinn!
Hinn hreini tónn
Fyrir nokkru birtust í útvarpi
tilkynningar frá sýslumanni Hún-
vetninga um skoðun bifreiða í
umdæmi hans. Yfir tilkynningum
þessum var óvenjulegur blær,
miðað við það sem oft er frá þeim
opinberu stofnunum, sem valdið
hafa. Eftir minni var orðalagið
þetta: Þeir fáu, sem eiga eftir að
láta skoða bifreiðar sinar, eru
vinsamlegast beðnir að gera það
nú, því að bifreiðaskoðun á
Blönduósi líkur ... Ég er sann-
færður um, að árangur þessa
orðalags er ekki verri en hótanirn-
ar.
Það er að sjálfsöðgu slæmt að
geta ekki lofað svo einn, að annar
verði ekki lastaður. En ég get ekki
stillt mig um að minnast á til
samanburðar orðalag of margra,
sem þurfa að koma áleiðis ein-
hverju efni til „þegnanna", hvort
heldur er í formi tilkynninga eða
þá önnur fyrirmæli. Beinar og
óbeinar hótanir eru daglegt brauð,
auk einhvers óþekkts, sem erfitt
mun eiga að vera að ráða í, og mun
því eiga að vekja ótta. Einna
ógeðfelldust finnst mér tilkynning
frá Orkubúi Vestfjarða um raf-
orkureikninga: Til að komast hjá
óþægilegum innhcimtuaðgerðum,
ef ég man það rétt. Þá er algengt
strax og skal auk frekari áherzlu
um viðurlög og refsingu.
Þetta beinir huganum að því,
hvort nokkurra hótana sé þörf í
tilkynningum og fyrirmælum op-
inberra aðila. Að sjálfsögðu getur
þurft að skerpa orðalag, þegar
komið er á eindaga, hvað þá
heldur, þegar „síðasti eindagi“ er
kominn, eins og Rafmagnsveitur
ríkisins hafa orðað það dag eftir
dag í útvarpí Ég er (var) svo fávís,
að ég hélt, að það væri aðeins einn
eindagi sömu skuldar. Um stig-
breytingu þess máls væri ekki að
ræða frekar en orðsins dauður. Að
minnstakosti þarf ég alltaf að
greiða mína víxla fyrir eindaga,
annars eru þeir afsagðir. Eða
hvenær er síðasti eindagi?
Haukur Eggertsson
• Herstöðvarmálið
og sjónvarpið
Maður einn, að nafni Þor-
steinn Hjaltason skrifaði í Vel-
vakanda þann 15. maí um ýmis-
legt, þar á meðal herstöðvarmálið.
Hann vill halda því fram að ef
kanarnir væru ekki hér til að
verja landið mundu Rússarnir
ekki vera lengi að mæta á staðn-
um. En ég tel að rússarnir séu
ekki nægilega vitlausir til að gera
innrás á íslandi á friðartíma, sem
mundi óneitanlega leiða til styrj-
aldar. En þá segja einhverjir að ef
styrjöld sé á annað borð skollin á,
þá geti þeir gert það. Auðvitað
geta þeir gert það, og þá varpa
Bandaríkjamenn kjarnorku-
sprengju á ísland, en ef banda-
Suður
S. D
H. ÁKG6
T. KD863
L. Á76
Þar vel gert að ná game eftir að
Sverrir opnaði á multi 2 tíglum.
Örn varð sagnhafi í 5 tíglum í
suður en fram kom, að opnun
vesturs lýsti í þessu tifelli 5—10
punktum og löngum spaðalit. Út
kom spaði og síðan aftur spaði,
trompað og fljótlega hafði Örn
náð fram þessari stöðu.
Norður S. - H. - T. - L. D953
Vestur Austur
S. 98 S. -
H. - H. -
T. - T. -
L. 102 Suður S - H. - T. D L. Á76 a L. KG84
Sagnhafi átti út frá hendinni og
Guðmundur beið í ofvæni. Enda-
spilið í laufinu blasti við en Örn
gat ómögulega vitað hvor átti
kónginn. Hann spilaði lágu laufi
og valdi að láta drottninguna —
tapað spil.
Aðstaðan var ekki öfundsverð.
Spilið vel leikið en boltinn fór
framhjá markinu.
Brldge
Umsjónt ARNÓR
RAGNARSSON
Bridgefélag
Akureyrar
Fyrir stuttu fór fram á Akureyri
svokölluð „fjórveldakeppni" í
bridge. Eru það Bridgefélag Akur-
eyrar, Tafl- og bridgekúbburinn,
Bridgefélag Fljótsdalshéraðs og
Bridgefélag Hornafjarðar sem þar
leiða saman hesta sína.
Þetta er í fjórða sinn sem keppni
þessi fer fram og hafði TBK ávallt
borið sigur úr býtum þar til nú að
Bridgefélag Akureyrar sigraði,
enda spilað á heimavelli ef svo má
að orði komast.
Úrslit í einstökum leikjum urðu
þessi:
Bridgefélag Akureyrar sigraði
Hornfirðinga með 103 gegn 2.
Sigraði Fljótsdæli 83 gegn 23 og
TBK með 80 gegn 40. Tafl- og
bridgeklúbburinn vann Fljótsdæl-
inga 91 gegn 22 og Hornfirðinga
með 105 gegn 13.
Bridgefélag Fljótsdalshéraðs
vann Hornfirðinga með 105 stigum
Sigursveitin í minningarmótinu um Halldór Helgason. Fremri röð frá
vinstri. Jóhann Ilelgason, Alfreð Pálsson, Ármann Helgason. Aftari
röð frá vinstri: Mikhael Jónsson, Angantýr Jóhannsson.
Ljósmynd Norðurmynd.
gegn 13.
Lokastaðan:
Bridgefélag Akureyrar 266
Tafl- og bridgeklúbburinn 236
Bridgefélag Fljótsdalshéraðs 150
Bridgefélag Hornafjarðar 28
Þá komu unglingar frá Horna-
firði og spiluðu gegn tveimur
unglingasveitum frá Akureyri.
Unnu þeir fyrrnefndu annan leik-
inn 20 mínus og 2 jafntefli varð í
hinum leiknum 10—10.
Minningarmótinu í bridge um
Halldór Helgason lauk síðastliðið
þriðjudagskvöld, 6. maí. Alls tóku
16 sveitir þátt í mótinu, sem spilað
var eftir Bord-o-max fyrirkomu-
lagi, sem bæði er skemmtilegt og
mjög vinsælt.
Að þessu sinni sigraði sveit
Alfreðs Pálssonar, en auk hans
spiluðu, Angantýr Jóhannsson,
Mikael Jónsson, Ármann Helgason
og Jóhann Helgason, Ármann og
Jóhann voru bræður Halldórs.
Röð efstu sveita varð þessi:
Sveit stig
1. Alfreðs Pálssonar 280
2. Páls Pálssonar 270
3. Stefáns Ragnarss. 270
4. Sigurðar Víglundss. 250
5. Ingimundar Árnasonar 248
6. Stefáns Vilhjálmss. 234
7. .Tóns Stefánssonar 229
8. Sveinbjörns Jónssonar 226
9. Zarioh Hammad 223.
10. Þórarins B. Jónssonar 221
Meðalárangur var 210 stig.
Keppnisstjóri í vetur sem endra
nær var Albert Sigurðsson. Þetta
var síðasta bridgemót Bridgefélags
Akureyrar á þessu starfsári. Þátt-
taka í keppnum félagsins hefur
verið mjög góð og ánægjuleg. Þökk
fyir veturinn, sjáumst við spila-
borðið næsta haust.