Morgunblaðið - 21.05.1980, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. MAÍ1980
29
/s „
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 13-14
FRÁ MÁNUDEGI
rískur her er á landinu, eru það
Rússar sem varpa bombunni; svo
hvaða máli skiptir það? Hvernig
sem ísland stendur, fær það
kjarnorkusprengju á sig (eða eitt-
hvað annað sambærilegt).
En ef ísland mundi segja sig úr
NATO og senda herstöðina burt,
væri það gott fordæmi fyrir allan
heiminn um afvopnun og frið.
Ef þessi maður telur það, að
hafa herstöð á íslandi og hafa þar
sprengju sem getur eytt hálfri
þjóðinni, skref gegn helstefnu,
finnst mér það skrýtin hugsjón.
Og svo eru það nokkur orð um
þessa umdeildu verðlaunakvik-
mynd „Faðir og húsbóndi" sem var
sýnd um daginn. Nokkrir sjón-
varpsáhorfendur voru stór-
hneykslaðir að sýning hennar var
leyfð. Töldu þeir að ekki væri
sæmandi að börnum og unglingum
væri „leyft" að sjá þetta. Mér
finnst skrýtið að börn og ungl-
ingar megi sjá gerviheim fjölda-
framleiddra ofbeldismynda frá
Bandaríkjunum og öðrum ríkjum
sem dynja yfir mann hvað eftir
annað, og þar sem gæði virðast
vera gleymd og grafin. Og þegar
loksins kemur gæðamynd, bráð-
falleg og sem sýnir blákaldan
raunveruleikann, er það stór-
hneyksli að börnum skuli vera
leyft að sjá þetta. Þá vaknar sú
spurning hvort þessir menn vilja
ala börn sín upp í gerviheimi þess
ofbeldis sem þriðja klassa myndir
sem eru sýndar hér bjóða uppá,
eða að sýna þeim raunveruleika
lífsins, sem er hvorki gott né illt
en einungis raunveruleiki?
Og með því vil ég hrósa aðstand-
endum sjónvarpsins fyrir gott val,
þetta er spor í rétta átt.
Kjartan P. Emilsson
Lindargötu 9.
• Það skyldi
þó ekki
vera sá sami?
Mér datt í hug atvik, sem kom
fyrir í vetur þegar ég las í
Morgunblaðinu sunnud. 27. 4.
grein frá konu, sem kvartaði
undan vagnstjóra á leið 5. Ég beið
á Hlemmi eftir einhverjum vagni
sem færi inn Suðurlandsbraut. Ég
þurfti að fara í verslunina Penn-
ann. Fyrsti vagn, sem kom var leið
5. Ég fór upp í bílinn og lét miða
og bað um skiptimiða sem ég fékk.
Klukkan var 13.20. Ég fór úr við
Hótel Esju og flýtti mér í verslun-
ina því veðrið var mjög vont
(rigning og rok). Ég fékk fljótt
afgreiðslu og sný til baka til að ná
næsta vagni sem færi niður Suð-
urlandsbraut. Ég beið þó nokkra
stund en svo kom leið 5, sami
vagninn og ég hafði farið með upp
eftir. Ég flýtti mér upp í vagninn
og lét vagnstjórann fá skiptimið-
ann og fer aftur eftir vagninum.
Svo fer vagnstjórinn að kalla
eitthvað, sem ég skipti mér ekkert
af, en svo sé ég að enginn ansar
honum en allir líta á mig, svo ég
fer til hans og spyr hvort hann sé
að kalla í mig? Já segir hann
„Þessi miði er útrunninn fyrir 10
mínútum." „Það getur ekki verið,"
segi ég, „því ég kom með þessum
vagni þegar hann fór inneftir", en
hann vildi nú ekki viðurkenna það,
að það gætu verið mistök hjá
honum. Hann var ekki ókurteis, en
hann vildi bara ekki trúa mér. Ég
reifst ekki við hann en lét annan
miða. En mér sárnaði, ég hef
notað strætisvagna síðan þeir
byrjuðu að ganga í Reykjavík og
komist allra minna ferða og yfir-
leitt eru þessir vagnstjórar elsku-
legir menn. En vinur minn á leið 5,
ef þú lest þessar línur, þá hafði ég
rétt fyrir mér.
Ein á áttræðisaldri.
• Sjónvarpsáhorf-
andi hringdi:
Þriðjudaginn 6. maí sl. var
sýndur áttundi þáttur mynda-
flokksins Óvænt endalok, „Iler-
bergi með morgunverði“, og verð
ég að segja, að þessi þáttur var svo
óhugnanlegur að slíkan óþverra
ætti ekki að senda inn á heimili
almennings. Hér var um lymsku-
legt eiturmorð að ræða, þar sem
geðsýki kemur einnig við sögu.
Getur nú sjónvarpið ekki sýnt
neitt skárra.
Ég hef talað við fólk, sem segir,
að óhugnaður myndarinnar hafi
haldið fyrir því vöku nóttina eftir
og þykir mér engin furða.
SKÁK
Umsjón: Margeir Pétursson
Á alþjóðlegu skákmóti í Cleve
land í Bandaríkjunum í fyrra kom
þessi staða upp í viðureign stór-
meistaranna Nunn, Englandi, sem
hafði hvítt og átti leik, og Rob-
atsch, Austurríki
19. Bxe6! og svartur gafst upp.
Eftir 19. ... Dxe6 mátar hvítur í
einum og 19. ... fxe6 yrði svarað
mð 2. Db8+ o.s.frv.
Sjónvarpinu var ætlað að vera köllun sinni æ ofan í æ, eins og
menningartæki og vörður siðgæð- þessi hryllingsmynd ber ljósan
is, en því miður bregst það þeirri vott um.
HÖGNI HREKKVÍSI
ii þAO ££ AU-TAr t><?ÓL£&T
TúrJI 1<B3S t(? 'i ■ ■ "
83? SlGeA V/öGA £
eoaaí & mi im „,
vió m ao w mvi vúiti tö
ALIX VLm TIL A0 TRSTA,
K mmmovi óm /.ovt-\
>\ISmRÆ.Qltí6tó( VE<ohA
ÍAMfc ASÍ ÁWR6)A‘öT
[MMAMími
^mmLtóA
,\ YtlQW
[ÓRiáúlS-
mimí
KROSSVIÐUR
SPÓNAPLÖTUR
VIÐ ARÞILJUR _
á gömlu lágu veröi IBJORNINN!
Skúlatúni 4. Simi 25150. Reykjavik
Kantlímdar — smíðaplötur
(Hobby-plötur)
fyrir fagmenn og leikmenn.
*"«> koto-
Z*í!?9ny-’ e,kar
oÍ 'í'"8káPa
r» skápt
Hvitar
plast-
hillur
1 30 cm, 5o
f? °0 60 cm
4 öreidd. 244
cm 4 '«n0d
Hurd/r
á fata-
skápa
me4 eikar-
»P»ni, til-
búnar undir
'»kkoob»,.
Plast-
lagöai
hillur
með te;
mahoganj
°fl furuv
»rlíkj. 6o c
4 breidd ,
244 cm
lengd. r
valio í akár
Ofl hillur.
EFÞAÐERFRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU
Al GLYSINGA
SIMINN ER:
22480
VMÍT/ É6 ’l \lim
tffMAW NtTWfilL,
® V0Ó5AWU