Morgunblaðið - 21.05.1980, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. MAÍ1980
31
Skúli og Jón Páll
hrepptu silfur á
EM i kraftlyftingum
íslendingar gerðu sér heldur
betur góða ferð á Evrópumeist-
aramótið i kraftlyftingum sem
haldið var í Ztirich í Sviss um
siðustu helgi. Skúli óskarsson og
Jón Páll Sigmarsson hrepptu
báðir silfurverðlaun í þyngdar-
flokkum sinum. Og Sverrir
Hjaltason varð fimmtti í sinum
flokki. sannarlega glæsilegur ár-
angur islensku lyftingamann-
anna og það ekki i fyrsta skiptið
á stórmótum erlendis.
Skúli Óskarsson varð annar í 75
kg flokknum. Hann lyfti 295 kg í
hnébeygju, 120 kg í bekkpressu og
30Qj kg í réttstöðulyftu. Samtals
lyfti því Skúli 715 kg og nægði það
til annars sætisins. Lars Backlund
frá Svíþjóð varð sigurvegari, lyfti
samanlagt 752,5 kg. Þriðji í þess-
um flokki varð Bretinn Thomson,
lyfti hann samanlagt 702,9 kg.
Jón Páll Sigmarsson varð síðan
annar í 125 kg flokki og setti hann
í leiðinni nýtt Islandsmet í
bekkpressu 192,5 kg. 285 kg fóru
upp í hnébeygju og 310 kg í
réttstöðulyftu, eða samtals 787,5
kg. Steen frá Noregi sigraði í
þessum flokki, lyfti samtals 837,5
kg, 322,5 kg í hnébeygju, 220 kg í
bekkpressu og 295 kg í réttstöðu-
lyftu. Það er athyglisvert, að Jón
Páll átti þarna betri árangur í
tveimur greinum, en yfirburðir
Steens í bekkpressunni færðu hon-
um sigurinn.
Loks skal greint frá Sverri
Hjaltasyni. Hann varð fimmti í
82,5 kg flokki, lyfti 270 kg í
hnébeygju, 172,5 kg í bekkpressu,
sem er nýtt íslandsmet. Loks fóru
upp 300 kg í réttstöðulyftu, eða
samtals 742,5 kg, sem er einnig
íslandsmet. í þessum flokki var
það Ron Collis frá Bretlandi sem
sigraði, en hann lyfti samanlagt
855 kg, þ.á m. 355 kg í réttstöðu-
lyftu, en það er Evrópumet. Bill
West varð annar í þessum flokki,
lyfti samtals 770 kg.
• Jón Páll Sigmarsson náði frábærum árangri i Sviss.
Enn sigrar Valbjörn
FYRSTA stórmótið í frjálsum
iþróttum á sumrinu fór fram á
Laugardalsvellinum í gærkvöldi.
Það setti sinn svip á mótið að allt
besta frjálsíþróttafólk landsins
dvelur nú við æfingar erlendis og
tók ekki þátt í mótinu. Valbjörn
Þorláksson sem nú hefur keppt i
frjálsum iþróttum um 30 ára
skeið sigraði i fyrstu grein móts-
ins, 110 m grindahlaupi, hljóp á
15,2 sek. Og lika i stangarstökki
þar sem enginn ógnaði honum.
Valbjörn stökk 4,15 metra. Guð-
rún Ingólfsdóttir náði ágætis
árangri i kringlukasti kvenna,
kastaði 45,88 metra. Þá var
keppnin f 800 m hlaupi skemmti-
leg en þar voru 11 keppendur.
Steindór Tryggvason KA sigraði
á ágætum tíma 1,58,7 mínútum.
Magnús Ilaraldsson FH setti per-
sónulegt met, hljóp á 2,01,1.
Akureyrarmótinu í hand-
knattleik er nýlega lokið. Leikn-
ar eru 2 umferðir í öllum flokk-
um nema í meistaraflokki karla,
þar sem aðeins fór fram 1 leikur.
KA sigraði i meistaraflokki
karla og i 6. flokki A, en Þór
sig'raði i öllum öðrum flokkum.
Úrslit einstakra leikja urðu
sem hér segir:
Karlaflokkar:
6.fl A Þór:KA 8-12 og 7-9
sigurvegari KA. 6.fl B Þór:KA
8—5 og 6—11, (aukaleikur fór ekki
fram). 5.fl A Þór:KA 11—9 og
10—7 sigurvegari Þór. 5.fl B
Eitt íslenskt telpnamet var sett
á mótinu. Geirlaug Geirlaugs-
dóttir hljóp 200 m á 25,7 sek. Hér
á eftir fara svo úrslitin í mótinu:
Úrslit á Vormóti IR:
110 m grindahlaup: sek
Valbjörn Þorláksson KR 15,2
Aðalsteinn Bernharðsson KA 15,7
Stefán Þ. Stefánsson ÍR 16,1
200 m hlaup kvenna:
Helga Halldórsd. KR 25,1
Oddný Árnad. HSK 25,6
Geirlaug Geirlaugsd.
25,7, nýtt ísl. telpnam.
Hástökk karla: m
Stefán Friðleifsson UÍA 1,96
Karl West UBK 1,96
Hafsteinn Jóhanness. UBK 1,93
3000 m hlaup: mín
Benedikt Björgvinss. UMSE 9,43,7
Guðmundur Ólafsson ÍR 10,05,5
Stefán Friðgeirsson ÍR 10,10,2
Þór:KA 12—7 og 9—4 sigurvegari
Þór. 5.fl C Þór:KA 5—5 og 8—2
sigurvegari Þór. 4.fl A 11—4 og
10—7 sigurvegari Þór. 4.fl B
Þór:KA 14—6 (seinni leikur fór
ekki fram) sigurvegari Þór. 3.fl A
Þór:KA 13-15, 14-13 og 14-13
sigurvegari Þór. Meistaraflokkur
Þór:KA 21—24 sigurvegari KA.
Kvennaflokkar: 2.fl Þór:KA 23—4
og 16—5 sigurvegari Þór. 3.fl A
Þór:KA 13—1 og 10—1 sigurvegari
Þór. 3.fl B Þór:KA 12-2 (seinni
leikur ekki leikinn) sigurvegari
Þór.
— sor
800 m hlaup kvenna
Thelma Björnsd. UMSK 2,19,0
Helga Halldórsd. KR 2,24,2
Guðrún Karlsdóttir UBK 2,24,4
300 m hlaup karla: sek
Aðalsteinn Bernharðsson KA 35,1
Einar Guðmundsson FH 35,6
Ólafur Óskarsson Ármanni 36,5
Stangarstökk: m
Valbjörn Þorláksson KR 4,15
Sigurður Kristjánsson IR 3,40
Kringlukast kvenna: m
Guðrún Ingólfsd. Á 45,88
Elín Gunnarsd. HSK 33,04
Margrét Óskarsd. ÍR 32,34
800 m hlaup karla: mín
Steindór Tryggvas. KA 1,58,7
Magnús Haraldsson FH 2,01,1
Guðmundur Sigurðss. UMSE2,02,2
- þr.
Englendingar
náðu jafntefli
ENSKA landsliðið í knattspyrnu
náði aðeins jafntefli 1 —1 á móti
Norður-írum á Wembley leik-
vanginum í gærkvöldi. Marga af
fastamönnum enska liðsins vant-
aði og olli liðið miklum vonbrigð-
um í leiknum. Það var David
Johnson sem skoraði fyrsta mark
leiksins en Terry Cochrane jafn-
aði fyrir írland mínútu síðar.
Leikurinn þótti fremur þófk-
enndur og langt frá því að vera
vel leikinn. Úrslit leiksins ollu
miklum vonbrigðum í Englandi.
en þetta er annar landsleikurinn
í röð þar sem liðinu tekst ekki að
sigra. Síðastliðinn laugardag
tapaði England 4—1, fyrir
Wales.
Þórsarar sterkir
í Akureyrarmótinu
í handknattleik
• Skúli óskarsson hreppti silfurverðlaun á Evrópumót-
inu.
Apætur árangur
naðist á vor-
móti Breiðabliks
FYRSTA frjálsíþróttamót
sumarsins var haldið á föstudag-
inn á íþróttavellinum við Fífu-
hvammsveg, var það vormót
Breiðabliks. Mótið var vel sótt og
fór vel fram, en úrslit í einstök-
um greinum urðu sem hér segir:
2. Hrönn Guðmundsd. UBK 62,4
3. Guðrún Karlsd. UBK 66,0
Kúluvarp pilta: metrar
1. Kristján Guðbjörnss.UBK 12,36
2. Sigurjón Valmundss. UBK 9,71
3. Arnþór Sigurðsson UBK 8,73
100 metra hlaup kvenna:
S6k.
1. Helga Halldórsdóttir KR 12,6
2. Geirlaug Geirlaugsd. Árm. 12,8
3. Helga Armannsdóttir UBK 13,3
100 metra hlaup pilta: gg^
1. Einar Gunnarsson 12,9
2. Gunnar Guðmundsson 15,7
400 metra hlaup kvenna: ^
1. Helga Halldórsd. KR 60,0
Kúluvarp karla: metrar
Pétur Pétursson UÍA 15,72
Spjótkast kvenna: metrar
1. íris Grönfelt UMSB 41,66
2. Bryndís Hólm ÍR 34,32
3. Thelma Björnsdóttir UBK 31,60
Spjótkast pilta: metrar
1. Sigurjón Valmundss.UBK 34,18
2. Kristján Guðbjörnss.UBK 24,16
3. Arnþór Sigurðsson UBK 18,93
2. deildin hefst í kvöld:
*
Armenningar
mæta Selfossi
KEPPNIN í 2. deild íslandsmóts-
ins í knattspyrnu hefst i kvöld
með leik Ármanns og Selfoss. Fer
leikurinn fram á Laugardalsvell-
inum og hefst hann klukkan
20.00 samkvæmt mótabók KSÍ.
Gæti hér orðið um forvitnilega
viðureign að ræða. Ármenningar
komu upp úr 3. deild á síðasta
keppnistímabili og sýndu nokkr-
um sinnum góða takta á Reykja-
víkurmótinu, vann liðið þá m.a.
Víking 3—0. §elfoss var hins
vegar um tíma á barmi þess að
draga lið sitt út úr íslandsmótinu
sökum mannfæðar og fleiri hluta.
Málunum var þó bjargað og Sel-
foss teflir fram liði. Má því segja,
að bæði liðin séu óþekktar stærðir.
Boro burstaöi Arsenal!
SÍÐASTI möguleiki Arsenal á
því að komast í Evrópukeppni á
næsta keppnistímabili rauk út í
veður og vind í fyrrakvöld, er
liðið mætti Middlesbrough á Ayr-
some Park. Með því að sigra í
leiknum hefði Arsenal skotist
upp fyrir Ipswich í stigatöflunni,
hreppt þriðja sætið í deildinni.
En Arsenal átti aldrei minnstu
möguleika á báðum stigunum.
Leikmenn liðsins virtust von-
sviknir, áhugalausir og þreyttir
og leikmenn Boro gengu á lagið.
skoruðu þrívegis í fyrri hálfleik
og tvö í viðbót í siðari hálfleik.
Mörk Boro skoruðu Craig John-
stone, David Hodgeson. Graeme
Hedley og Dave Armstrong, sem
skoraði tvívegis.