Morgunblaðið - 30.12.1984, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. DESEMBER 1984
Sé ekkí að nokkurt skip
haldi vestur til veiða
— segir Kristján Ragnarsson um mögulegar veiðiheimildir íslendinga við Bandaríkin
Nígeríubúar
og Svíar á
nýársfögnuð
í Broadway
VEITINGAHÚSIÐ Broadway gengst
að venju fyrir fagnaði á nýárskvöld
þar sem fjöldi þekktra skemmti-
krafta munu koma fram. Athygli
hefur vakið að nokkrir útlendingar
hyggjast koma til íslands, gagngert
til bess að sa-kja þessa hátíð.
Ólafur Laufdal, framkvæmda-
stjóri, sagöi í samtali við Morgun-
blaðið að um væri að ræða sex Svía
og og sex Nigeríubúa sem allir
hefðu sótt nýársfagnað Broadway
áður. Svíarnir eru að koma hingað
um áramót í þriðja sinn og Níger-
iubúarnir voru á hátíðinni í fyrra.
Koma þeir hingað í boði Flugleiða
sem þeir hafa haft samvinnu við í
tengslum við flugrekstur.
Sagöi Ólafur að uppselt hefði
orðið á hátíðina löngu áður en hún
var auglýst, en húsið tekur um 600
manns. Boðið verður upp á fjórrétt-
aðan matseðil en að borðhaldi
loknu munu hinir ýmsu skemmti-
kraftar skemmta gestum. Þeirra á
meðal má nefna Ómar Ragnarsson,
Hljómsveit Gunnars Þórðarssonar,
Ragnhildi Gísladóttur, Dansstúdíó
Sóleyjar o.fl. Skemmtunin stendur
yfir frá kl. 18.30. til kl. 3.00. eftir
miðnætti.
Elísabet Waage hörpuleikari.
Leiðrétting
MEÐ frétt í Morgunblaðinu í
gær um sjöundu tónleika ís-
lenzku hljómsveitarinnar á
þessu starfsári, nHörpuleik“ í
Bústaðakirkju í dag, sunnu-
dag, birtist mynd af Elísabetu
Waage söngkonu, þar sem átti
að vera mynd af Elísabetu
Waage hörpuleikara, sem er
sérstakur gestur tónleikanna.
Morgunblaðið biðst afsökunar
á þessum mistökum.
Þessi heillandi trjátegund hef-
ur varðveitzt í löngu friðuðum
skógum hér á vesturströnd
Bandaríkjanna, sem sumir hverj-
ir státa af elztu og hæstu lifandi
trjám. Ekkert mun lifa jafnlengi
í lífríki jarðarinnar eins og þessi
tré. Menn hafa hins vegar gert
sér það til dundurs að varðveita
þverskurði af mestu öldungunum,
þegar þau eru höggvin og merkja
við árhringina merkustu viðburði
mannkynssögunnar. Svona biti er
til sýnis í náttúrugripasafninu i
Golden Gate-garðinum í San
„NIÐURSTAÐA okkar hjá LÍÚ
varðandi fiskveiðiheimildir við
Bandaríkin er sú, að við eigum ekk-
ert skip, sem hentar til þess, sem
þeir eru að bjóða okkur og þeir
bjóða okkur ekki upp á nein þau
aflaleyfi, sem koma okkur að gagni.
Þess vegna sé ég ekki að nokkurt
íslenzkt skip haldi vestur um haf til
veiða í nánustu framtíð," sagði
Francisco og annar í Yosemite-
þjóðgarðinum. Bitarnir eru reist-
ir upp á rönd og eru mjög áhrifa-
miklir, á hæð við stærstu menn,
um þaö bil eitt tonn að þyngd.
Morton hætti í pólitík og dó ár-
ið 1979. Honum tókst þó áður að
koma boðum til þjóðgarðsþjón-
ustunnar sem varð sér út um
sjálfdautt tré og skar af því væna
flís. Sneiðin var send Kaliforniu-
háskóla svo að koma mætti gjöf-
inni í sýningarhæft ástand. Þar
var heilmikill viðbúnaður, byggð-
ur var þurrkkassi og annar út-
Kristján Kagnarsson, framkvæmda-
stjóri LÍÚ, er Morgunblaðið innti
hann álits á mögulegum veiðiheim-
ildum við Bandaríkin.
„IJpphaf þessa máls er það, að
okkur var sagt að það yrði hægt að
bæta okkur það tjón, sem við yrð-
um fyrir vegna þess að við hættum
hvalveiðum með því að veita okkur
búnaður til að slípa, bóna og
varðveita gripinn um aldir.
Aðgerðin var hins vegar ekki á
fjárlögum og eftir nokkrar
árangurslausar beiðnir um fjár-
veitingu var sneiðin söguð niður
og notuð í brenni. Þetta var á
Watergate-árunum og menn í
Washington höfðu annað að
hugsa, málið gufaði upp og eng-
inn virtist hafa áhuga á að efna
loforð Rogers Morton.
Það fylgir ekki sögunni, hvaða
íslenzkur stjórnarerindreki vakti
máls á furusneiðinni góðu í janú-
ar síðastliðnum. Utanríkisráðu-
neytinu rann hins vegar blóðið til
skyldunnar og setti mann í málið.
Ekki tókst að hafa upp á not-
hæfri risafuru í þjóðgörðum
landsins. Flestar voru fúnar og
myglaðar, en loks kom fram 1.300
ára gamalt tré í eigu Arcata sög-
fiskveiðiréttindi við strendur
Bandaríkjanna. Ég hef alltaf haft
vissar efasemdir um, að það yrði
gert fyrir utan hitt hve mér fannst
afskipti Bandaríkjastjórnar af
þeirri ákvörðun okkar um það
hvernig við ætluðum að haga
hvalveiðum okkar mjög ósmekkleg
og óeðlileg íhlutun í málefni okkar.
Það átti að smyrja smyrslum á sár-
unarmyllunnar hf. í Orrick í
Humboldt-sýslu. Það tré er
reyndar ekki hin eina sanna risa-
fura, sequoiadendron giganteum,
heldur systir hennar, strandrisa-
furan, sequoia sempervirens.
Náðust samningar við fyrirtækið
og fengust tvær sneiðar fyrir
2.400 dali. Tréð var höggvið í ág-
úst og allar götur síðan hefur
timbrið verið í meðferð hjá skóg-
arverðinum í Kaliforníufuruskóg-
um.
í næstu viku er ráðgert að
flytja gjöfina á vörubíl til Spok-
ane í Washington-ríki, en þaðan
er hermönnum ætlað að koma
síðbúinni þjóðarhátíðargjöf á
áfangastað. Vonandi fer allt að
óskum, svo að innviðir furunnar
verði íslendingum sá gleðigjafi,
sem til var ætlast.
in með því að veita okkur veiði-
heimildir eins og þá var frá sagt.
Ég hafði tækifæri til þess í
fyrrahaust að kynna mér þetta og
þá taldi ég mig sjá, að það kæmi
ekkert út úr þessu, sem skipti
okkur máli. Þar með hætti ég af-
skiptum af málinu og LÍÚ hefur
ekki haft afskipti af heimsóknum
einhverra ráðamanna að vestan að
öðru leyti en því, að fyrir beiðni
utanríkisráðuneytisins fór varafor-
maður LÍÚ til Washington í ágúst í
sumar til þess að kynna okkur
þetta enn frekar. Það leiddi til
sömu niðurstöðu. Nú eru fimm
menn héðan nýkomnir heim úr
ferðalagi vestur um haf og af sam-
tölum mínum við þá dreg ég enn þá
ályktun, að ekkert skip frá íslandi
fari til veiða við strendur Banda-
ríkjanna í næstu framtíð.
Hana dreg ég fyrst og fremst af
því, að veiðiréttindin, sem okkur
standa til boða, eru eingöngu uppi í
Alaska-flóa við vestanverð Banda-
ríkin, en þangað er óravegur. í öðru
Iagi stendur það óbreytt að við
megum ekki landa afla úr veiði-
skipum okkar í Bandaríkjunum
vegna þess að þau hafa ekki verið
smíðuð þar. í þriðja lagi væri ein-
göngu um það að ræða fyrir okkur
að fara þangað með stór verk-
smiðjuskip, sem ynnu þennan afla
um borð og þau eigum við ekki, við
eigum ekkert skip, sem gæti hentað
til þess. Við skildum máíið þannig í
byrjun, að það ætti að gera okkur
mögulegt að nýta eitthvað af nú-
verandi flota okkar, en ekki að við
þyrftum að stofna til nýrrar fjár-
festingar til að nýta okkur þessar
veiðiheimildir, sem svo eru mjög
takmarkaðar og líkur á því, að reka
þarna verksmiðjuskip, eru heldur
ekki álitlegar," sagði Kristján
Ragnarsson.
Síðbúinnar þjóðhátíðar-
gjafar að vænta fljótlega
Frá Magnusi Þrándi bórAarsyni, Berkeley, Kaliforníu.
Þegar íslandsmenn slógu sér upp meðal þjóða í tilefni ellefu hundruð
ára byggðar í landinu, má búast við, að fulltrúa Bandaríkjastjórnar við
hátíðarhöldin hér hafi þótt súrt í broti að vera í hlutverki örverpisins.
Fulltrúi hennar var þáverandi staðarverkfræðingur ríkisstjórnarinnar,
Rogers C.B. Morton. í hita augnabliksins og við það að minna á að
Ameríka er á svipuðu reki og ísland lofaði ráðherrann að gefa þjóðinni
bita af risafurutré, sem væri jafngamalt íslenzku þjóðinni.