Morgunblaðið - 30.12.1984, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. DESEMBER 1984
43
Halldór Gunnarsson
tekjum einstaklinga. Þannig
skortir okkur enn að takast á við
þennan heimatilbúna vanda, sem
við verðum að gera sameinuð sem
þjóð af hollustu og heilindum
hvert við annað.
Það sem minningin kallar ein-
kum fram er að hafa skynjað á
árinu hversu sterk samkennd
okkar íslendinga er gagnvart
björgunar- og hjálparstarfi.
Hvernig við fylgdumst öll sem eitt
með sundi Guðlaugs og tókum
þátt í afreki hans með tári þakkar
frá hvarmi. Hvernig unglinganna
þriggja var leitað af svo mikilli
elju björgunarmanna og hvernig
við fylgdumst með og fögnuðum er
þau fundust heil. Dæmin eru
mörg. Alltaf var björgunar- og
hjálparstarfið unnið af sama
styrk og fórnfýsi. Látins erlends
ferðamanns var leitað í Skógá hér
undir Eyjafjöllum af þremur
björgunarsveitum í þrjá daga og
síðar áfram af einni björgunar-
sveit í tæpa tvo mánuði uns hann
fannst. Og nú síðast að skynja
hjálparhug íslendinga til þeirra
sem þjást í Eþíópíu og heyra um
þau myndarlegu fjárframlög sem
berast til hjálparstarfsins þar.
Þetta starf er mér eftirminnileg-
ast frá árinu, því að í því finn ég
styrk okkar íslendinga og ég finn
til gleði og þakklætis að vera þess-
arar þjóðar og þessa lands.
Hulda Sigmundsdóttir,
Þingeyri:
Hvers virði er
lífið án vina?
Þegar sú spurning var lögð fyrir
mig hvað mér væri minnisstæðast
á árinu, lagðist ég undir feld og
komst að raun um að árið hafði
fyrst og fremst verið mér gott án
stórtíðinda. Ég hafði fáu tapað
nema mánaðarkaupi í verkfallinu,
allflestir vinir og ættingjar voru
heilir á húfi. Já, ég mátti skrifa
um hvað sem var, jafnt þótt það
hefði gerst hinum megin á hnett-
inum, var sagt. Þá brosti ég með
sjálfri mér og mér kom í hug
„heimskt er heima alið barn“. Það
sannast á mér sem aldrei hef kom-
ist út fyrir landsteinana og bíð
eftir „stóra vinningnum" svo
draumurinn rætist um ferðina
sem enn er ófarin. Öll eigum við
okkur einhvern draum, sumir ræt-
ast, aðrir ekki, en: „Von er vak-
andi manns draumur."
Ein á ferð. Er nokkur einn á
ferð? Er ekki eins og hulin hönd
hjálpi er mest á reynir? Ég er eng-
inn ökuþór og bráðliggi mér á að
komast akandi milli Þingeyrar og
Reykjavíkur, þá hafa ýmsir mér
vinveittir ekið, en ég hef fengið að
njóta útsýnis sem farþegi í eigin
bíl og það brást ekki í sumarbyrj-
un. Betra er að komast heim eftir
að hótel hafa opnað og umferð
aukist, því þá er hægt að skammta
sér vegalengdir að geðþótta.
Hvernig líður röskum konum eða
karlmönnum varadekkslausum á
langferð? Líklega álíka og þeim
QPNUNARTÍMI:
Gamlársdag OPIÐ 11:00-14:00
Nýársdag OPIÐ 17:30-23:30
HÁLF SEX-HÁLF ÁTIA
Frákl. 17:30-19:30
bjóðum við sérstakan matseðil
á einstöku verði.
otl
VF.ITINCiAUUS
WrrMANNSSTK.I RIA'KJAVÍK SÍMI 9I-IVMIJ
Hulda Sigmundsdóttir
ferðalangi sem getur ekki skipt
um dekk ef springur. Ég hef
reyndar sloppið við slík óþægindi
þau tæp 12 ár sem ég hef verið ein
á ferð. í júlíbyrjun hóf ég heim-
ferðina og fór mér hægt eftir að
Hvalfirðinum sleppti, ók Drag-
hálsinn í dásemdarveðri og stans-
aði oft til að njóta fegurðar Borg-
arfjarðarhéraðsins. Þó ég hafi
margoft farið þessa leið, þá er
alltaf eitthvað sem hrífur hugann
og ekki spillir að eiga í vændum
nokkurra daga dvöl með góðum
vinum í Hvítársíðunni.
Næsti áfangi var hótel Bjarka-
lundur. Þar átti að gista og hafa
það huggulegt. Það er óskemmti-
legt að vakna að morgni í fögru
umhverfi og sja það ekki vegna
þoku — en til Dýrafjarðar var för-
inni heitið. Hjallahálsin upp úr
Þorskafirðinum var langur, mun
lengri en venjulega, en í Djúpa-
firði sást land sem hvarf mér ekki
fyrr en á efstu brún Ódrjúgsháls-
ar og á Klettshálsi komst ég öðru
hverju upp úr þokunni. Leiðin í
Vatnsfjörð var greið og gott að
rétta úr sér í Flókalundi. Margir
voru að tygja sig til ferðar, þegar
ég kom aftur að bílnum, þ.á m.
hjón með börn. Heyrði ég eigin-
manninn spyrja konu sina, hvort
hún vildi halda áfram að aka, en
hún afþakkaði boðið, fannst Dynj-
andisheiðin óárennileg í þokunni,
enda vart ratbjart á láglendi. Ég
var henni sammála, þótt mér
fyndist ég vera komin á heima-
slóð, aðeins tvær heiðar ófarnar.
Fjórir bílar renndu úr hlaði og fór
ég fyrst. Merkilegt nokk, þá fór
enginn bíll fram úr mér, þótt öku-
hraðinn væri 20—30 km, en ég
mætti mörgum bílum á sama „sló-
inu“, eins og sjómenn mundu orða
það. Gott var að komast niður á
láglendi í Dynjandisvoginum og
sjá Fjallfoss í allri sinni tign
steypast fram af fjallinu út úr
þokunni. Þarna sat ég í bilnum er
samferðafólkið birtist hvert á eft-
ir öðru og ökumenn brostu vin-
gjarnlega, er þeir óku áfram, eftir
að hafa kannað hvort allt væri í
lagi.
Já, það var gott að vera komin
til byggða, hitta fyrir vini inn
undir Mjólká og eiga nú bara eina
heiði eftir, Hrafnseyrarheiðina.
Mörguin finnst hún óhugnanlega
há og brött og víst er hún það, en
— æði misjafnlega þó eftir að-
stæðum, því í sól og sumri býður
hún upp á fagurt útsýni yfir suð-
urfjöllin, sést þá toppur Snæfells-
jökuls og í hina áttina Dýrafjörð-
urinn, en það var fjarri lagi að
slíkt byðist í þetta sinn. Mætti ég
biðja um sól og sumar næst, þegar
ég ek yfir hana. Það er alltaf dá-
samlegt að koma heim eftir áfalla-
lausa ferð að lokinni ánægjulegri
dvöl með vinum og vandamönnum,
vitandi að vinir bíða í ranni og
þeir sem kvaddir voru þykir vænt
um að heyra í heimkomnum ferða-
langi.
Hvers virði er lífið án vina? Að
mínu viti harla lítils virði. „Sá er
vinur er til vamms segir." Vinir
gleðjast saman á góðri stundu,
standa saman, þegar á bátinn gef-
ur, rétta fram hönd þegar fokið er
í flest skjól og síðast en ekki síst
umbera hvern annan í dagsins
önn. Já, ekki má gleyma, hve
vingjarnlegt bros í umferðinni
getur glatt og líka stytt langa ferð.
Sumir sækja ánægjuna „út og suð-
ur“, en U iturn við ekki stundum
langt yfir skammt, fegurðin og
ánægjan er æði oft hér og nú, ef
okkur tekst að horfa opnum aug-
um á tilveruna og samferðamenn-
ina. Það rignir aldrei eða snjóai
endalaust, þokan lyftir sér al
fjallstindum og heiðum, fyrr en
varir brýst sól eða tungl fram úr
skýjum og lýsir upp leiðina — all-
an ófarinn veg — ef okkur tekst að
lifa í sátt við guð og menn. Brátt
fögnum við nýju ári og hækkandi
sól og þökkum það liðna. ósk mín
og von er sú, að ég verði aldrei úti
á köldum klaka — vinalaus — og
þess sama óska ég öðrum.
Davíð Pétursson,
Grund, Skorradal:
Heimur
versnandi fer
Nú við áramót þegar horft er til
baka til liðins árs er ljóst að
mannkynið gengur ekki til góðs,
götuna fram eftir veg. Erlendis
ber mest á morðum, ránum og
ofbeldi í ýmsum myndum. Af nógu
er að taka: Indira Gandhi myrt og
þúsundir drepnir á Indlandi í
kjölfar morðsins á forsætisráð-
herranum. írski lýðveldisherinn
heldur áfram fyrri iðju, en færir
heldur út kvíarnar með sprengju-
tilræðum í London. Vitfirringin
heldur áfram í Austurlöndum
nær. íranir og írakar slátra hvorir
öðrum eftir bestu getu, en það
stríð tók nýja stefnu við sprengju-
árásirnar á olíuskipin á Persaflóa.
Nú getur þú látið
drauminn rætast
Bjóöum ýmsar stæröir
seglbáta á veröi og kjörum er ekki hafa þekkst áöur.
Útborgun frá 20% og eftirstöövar
í allt aö 4 ár meö 8 afborgunum.
Attalia QHB
9,70 metrar.
Verð kr. 1.256.000 m/sötusk.
6 svefnpláss.
Benco
Bolholti 4, Reykjavík
simi 91-21945/84077.
Arcadía QHB
Lengd 9 metrar
Áætlaö verö kr. 1.040.000 m/sölu-
skatti.
6 svefnpláss.