Morgunblaðið - 28.02.1988, Blaðsíða 54
8861 HAfJflffiN ,8S flUOAaUHMUg .GiaAjgWUOflOÍ
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. FEBRUAR 1988
i/r
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
Sendill
Óskum eftir að ráða sendil til starfa allan
daginn.
Hafnarhvoli v/ Tryggvagötu.
sími 29500.
Hásetar
Tvo háseta vantar á netabát frá Austfjörðum.
Upplýsingar í síma 32002.
iý7T< TI í\'4'í/7TT-7D/Tim
Hafnarhvoli v/ Tryggvagötu.
sími29500.
Opinber stofnun
óskar að ráða starfsmann til skrifstofustarfa
hálfan eða allan daginn.
Upplýsingar um aldur og fyrri störf sendist
auglýsingadeild Mbl. fyrir 7. mars merkt:
„Samviskusamur - 501".
Laus staða
Staða bókavarðar í Landsbókasafni íslands
er laus til umsóknar. Ráðið verður í stöðuna
frá 1. apríl næstkomandi. Æskilegt er að
umsækjendur hafi lokið háskólaprófi í bóka-
safnsfræði. Starfið er einkum fólgið í skrán-
ingu blaða og tímarita í þjóðdeild safnsins.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna
ríkisins.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun
og starfsferil skulu hafa borist menntamála-
ráðuneytinu fyrir 22. mars næstkomandi.
Menntamálaráðuneytið,
23. febrúar 1988.
Faglært og
ófaglært fólk
Oskum eftir fólki, faglærðu og ófaglærðu, til
almennra framleiðslustarfa í trésmiðju okkar.
Einnig viljum við bæta við manni í lakkdeild.
Helst vönum.
Umsækjendur þurfa að geta hafið störf strax
eða eftir nánara samkomulagi við fram-
leiðslustjóra á staðnum.
Bifvélavirkjar
- rafvélavirkjar
Til sölu rafvélaverkstæði í fullum rekstri.
Gott atvinnutækifæri fyrir laghenta menn
sem eru vel að sér í bílarafmagni og vilja
starfa sjálfstætt. Gott leiguhúsnæði og góð
staðsetning.
Tilboð sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir 3.
mars merkt: „R - 4687“.
Innflutningsritari
Laus er til umsóknar staða innflutningsrit-
ara. í starfinu felst m.a. afstemming innflutn-
ingspappíra, tölvutelex, skjalavistun og
pantanagerð. Skilyrði er að viðkomandi geti
talað og ritað sjálfstætt á ensku og unnið
með tölur. Við leitum að manneskju sem
getur unnið sjálfstætt og í samvinnu við
aðra. Fyrirtækið býður uppá góða vinnuað-
stöðu í nýju húsi. Æskilegur aldur 22-40 ára.
Einungis heilsdagsstarf kemur til greina.
Eiginhandarumsóknum sé skilað á auglýs-
ingadeild Morgunblaðsins fyrir 8. mars nk.
merktum: „B - 4492“. Öllum umsóknum
svarað. Upplýsingar ekki gefnar í síma.
Þýsk-íslenska hf.
Kerfisfræðingar
Visa-ísland/Greiðslumiðlun hf.
Höfðabakka 9, Reykjavík,
vill ráða tvo kerfisfræðinga til starfa sem
fyrst.
Þekking á COBOL/forritunarmáli nauðsynleg
og einhver þekking á ADABAS/NATURAL
gagnagrunnskerfi æskileg, en þó ekki skil-
yrði.
Allar nánari upplýsingar eru veittar á skrif-
stofu okkar.
Umsóknir er tilgreini aldur, menntun ásamt
starfsreynslu sendist skrifstofu okkar sem
fyrst, en eigi síðar en 10. mars nk.
GuðniTónsson
RÁDCJÖF & RÁPNINGARÞJÓNUSTA
TÚNGÖTU 5. 101 RHYKJAVÍK - PÓSTHÓIT 693 SÍMI621322
Þjónustustjóri
Eitt stærsta bifreiðaumboð landsins óskar
að ráða þjónustustjóra.
Starfssvið. Starfið felst í því að hafa yfirum-
sjón með þjónustu fyrir bifreiðar sem seldar
eru af umboðinu. Þjónustustjóri fjallar um
ábyrgðarviðgerðir og ákveður hvað fellur
undir ábyrgðarviðgerðir. Þjónustustjóri hefur
yfirumsjón með þjónustuverkstæðum. Hann
veitir upplýsingar til verkstæða og hefur með
þeim fundi um nýjungar og upplýsingar frá
framleiðendum en þær berast fyrst þjónustu-
stjóra. í starfinu felst ferðalög erlendis á
ráðstefnur framleiðenda um þjónustumál.
Starf þjónustustjóra hefur breyst í þá veru
að síaukin áhersla er lögð á samband hans
og þjónustuverkstæða við viðskiptavininn.
Menntun. Þjónustustjóri er tæknimaður.
Hann þarf að hafa hlotið menntun á tækni-
sviði. Um starfið geta því sótt bifvélavirkjar,
vélvirkjar og menn með ýmsa tæknimennt-
un. í starfinu felst skipulagsvinna og nokkrar
bréfaskriftir. Enskukunnátta er áskilin.
Skilyrði fyrri ráðningu auk reglusemi og
vinnusemi er að viðkomandi eigi auðvelt með
að vinna með öðrum og eigi auðvelt með
að tjá sig. Leitað er að hugmyndaríkum
manni en starfið býður upp á ótal möguleika
t.d. að hrinda í framkvæmd nýjungum á sviði
þjónustu sem ekki hafa verið reyndar hér-
lendis.
Umsóknir sendist á auglýsingadeild Mbl.
merkt: „Þ - 502".
SELXO
SIGURÐUR ELÍASSON HF.
SMIÐJUVEGt 9 - 202 KÓPAVOGI
Norðurlandaráð
auglýsir til umsóknar stöðu ritara
menningarmáianefndar
Norðurlandaráð er samstarfsvettvangur
þjóðþinga og ríkisstjórna Norðurlanda. Á
milli hinna árlegu þinga Norðurlandaráðs
leiðir og samræmir forsætisnefnd ráðsins
þann hluta samstarfsins sem varðar þjóð-
þing og nýtur við það atbeina skrifstofu for-
sætisnefndar Norðurlandaráðs, Tyrgatan 7,
Stokkhólmi.
Menningarmálanefnd er ein sex fastanefnda
Norðurlandaráðs, sem í eiga sæti norrænir
þingmenn. Hún fjallar um norrænt samstarf
á sviði menntamála, rannsókna, fjölmiðla-
og menningarmála. Ritari nefndarinnar und-
irbýr fundi nefndarinnar og semur og leggur
fram drög að ákvörðunum hennar á grund-
velli umræðna þar. Hann annast önnur störf
er nefndin felur honum.
Ritarinn hefur starfsaðstöðu á skrifstofu for-
sætisnefndar í Stokkhólmi. Ráðningartíminn
er fjögur ár, en mögulegt er að framlengja
hann. Ríkisstarfsmenn eiga rétt á leyfi frá
störfum vegna starfa hjá Norðurlandaráði.
Starfinu fylgja ferðalög um Norðurlönd. Á
skrifstofu Norðurlandaráðs eru notuð jöfnum
höndum danska, norska og sænska og kraf-
ist er góðrar kunnáttu í einhverju þessara
mála.
Góð kjör eru í boði, en um þau gilda sérstak-
ar norrænar reglur.
Meiri hluti nefndarritara við skrifstofuna er
karlmenn, en leitast er við að fjöldi karla og
kvenna í stöðum þessum verði sem jafnastur.
Nánari upplýsingar veita aðstoðarfram-
kvæmdastjóri skrifstofunnar, Gustav Stjern-
berg og Guy Lindström núverandi ritari
menningarmálanefndarinnar í síma 9046 8
143420 og Snjólaug Ólafsdóttir, skrifstofu-
stjóri íslandsdeildar Norðurlandaráðs í síma
91-11560.
Formaður starfsmannafélagsins á forsætis-
nefndarskrifstofunni erTómas H. Sveinsson.
Umsóknum skal beina til forsætisnefndar
Norðurlandaráðs og skulu þær berast skrif-
stofu forsætisnefndar (Nordiska rádets
presidiesekretariat, Box 19506, S-104 Stock-
holm) fyrír 16. mars nk.
Norðurlandaráð
auglýsir
lausa til umsóknar stöðu aðstoðar-
framkvæmdastjóra skrifstofu Norð-
urlandaráðs í Stokkhólmi
Norðurlandaráð er samstarfsvettvangur
þjóðþinga og ríkisstjórna Norðurlanda. Á
milli hinna árlegu þinga Norðurlandaráðs
leiðir og samræmir forsætisnefnd ráðsins
þann hluta samstarfsins sem varðar þjóð-
þingin. Forsætisnefnd nýtur við það atbeina
skrifstofu forsætisnefndar Norðurlandaráðs,
Tyrgatan 7, Stokkhólmi.
Við skrifstofu forsætisnefndar Norðurlanda-
ráðs, sem hefur stöðu alþjóðlegrar stofnunn-
ar, starfa þrjátíu manns. Þar eru notuð jöfn-
um höndum danska , norska og sænska og
krafist er góðrar kunnáttu í einhverju þess-
ara mála.
Skrifstofunni stjórna aðalframkvæmdastjór-
inn, tveir aðstoðarframkvæmdastjórar og
upplýsingastjóri. Starf það sem nú er aug-
lýst felst m.a. í skipulagningu og samræm-
ingu á störfum ráðsins og fundahöldum.
Einnig mun viðkomandi fylgjast með sérstök-
um nánar tilteknum málaflokkum.
Umsækjendur skulu hafa víðtæka reynslu
af opinberum störfum, atvinnulífi eða störf-
um félagasamtaka. Þekking á þjóðfélags-
háttum á Norðurlöndum og norrænu sam-
starfi er æskileg.
Framkvæmdastjórar og upplýsingastjóri
skrifstofunnar eru karlmenn, en leitast er við
að fjöldi karla og kvenna í stöðum þessum
verði sem jafnastur.
í boði eru góð kjör en um þau fer skv. sér-
stökum norrænum reglu.
Ráðningartími er fjögur ár og hefst 1. ágúst
nk. Ríkisstarfsmenn eiga rétt á íeyfi frá störf-
um vegna starfa hjá Norðurlandaráði.
Nánari upplýsingar veita aðalframkvæmda-
stjóri skrifstofunnar, Gerhard af Schultén,
og aðstoðarframkvæmdastjóri hennar, Kjell
Myhre-Jensen í síma 9046 8 143420 og
Snjólaug Ólafsdóttir í síma 91/11560. for-
maður starfsmannafélagsins á skrifstofu
Norðurlandaráðs er Tómas H. Sveinsson.
Umsóknum skal beina til forsætisnefndar
Norðurlandaráðs (Nordiska rádets presid-
ium) og skulu þær berast skrifstofu forsætis-
nefndar Norðurlandaráðs (Nordiska rádets
presidiesekretariat, box 19506, S-104 32
Stokkholm) fyrir 16. mars nk.