Morgunblaðið - 15.01.1993, Blaðsíða 13
:;<M0RG'UN»llAeiÐ-iFÖSTllIIDAÖtHÍ(ill5I/JANÚARía'a93
213
Síðustu sýning-
ar á Ævintýri á
okkar tímum
SÝNINGUM á hreyfimyndinni
Ævintýri á okkar tímum eftir
Ingu Lísu Middleton hefur verið
hætt á undan 7-sýningum Karla-
kórsins Heklu en ákveðið hefur
verið að sýna myndina eina og
sér kl. 8.30 nk. föstudag, laugar-
dag og sunnudag í sal 3 í Há-
skólabíói. Þetta verða jafnframt
síðustu sýningar á myndinni.
Miðaverð er 90 krónur.
Myndin er eins og nafnið gefur
til kynna ævintýramynd og lýsir
baráttu „hetjunnar“ sem er per-
sónugerfingur hins náttúrumeðvit-
aða manns við „risann" sem er
tákn mengunar og náttúrufjand-
samlegra afla. „Thema“ myndar-
innar er þó umgengni okkar við
náttúruna og neikvæðar hliðar
mengunar og ofnýtingar. Með
myndinni tekst á sjaldgæfan hátt
að klæða umhverfismál í listrænan
búning.
(Fréttatilkynning)
------» ♦ I-----
„Landslag
Reynis“ í
Galleríi Fold
„Landslag Reynis“ nefnist ^
sýning á verkum myndlistar-
mannsins Reynis Sigurðssonar í
Galleríi Fold, Austurstræti 3,
Reykjavík. Sýningin verður opn-
uð laugardaginn 16. janúar og
stendur til 30. janúar.
Reynir Sigurðsson er fæddur
1957. Hann útskrifaðist úr málara-
deild Myndlista- og handíðaskóla
íslands 1980. Næstu ár starfaði
hann í Noregi. Þar er hann félagi
í samtökum norskra myndlistar-
manna. Ennfremur er hann félagi
í Evolusion, sem er alþjóðlegur
félagsskapur listamanna. Reynir
er nú búsettur í Keflavík.
Reynir hefur haldið einkasýn-
ingar og tekið þátt í fjölda samsýn-
inga innanlands og utan. Myndirn-
ar sem hann sýnir nú í Galleríi
Fold eru unnar í olíu og akríl.
Sýningin er sölusýning.
Gallerí Fold er opið virka daga
kl. 11-18, nema laugardaga kl.
11-16.
X
með frönskum og sósu
=995.-
uu/
Jarlinn
^vottapokai
Lmifartnaður
1 metri
Skeifunni 13 Auöbrekku 3 Norðurtanga 3
108 Reykjavik 200 kópavogi 600 Akureyri
(91)68 74 99 (91)4 04 60 (96)2 66 62
Nokkur dæmi
er á fullu meb frábærum tilbobum...
Komdu og gerbu gób kaup!