Morgunblaðið - 31.08.1999, Side 57
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 31. ÁGÚST 1999 5 7\
HAFNARBORG, menningar og listastofnun Hafnarfiaröar
opin alla daga nema þriðjud. frá kl. 12-18.___
KJARVALSSTAÐIR: Opið daglega frá kl. 10-18. Safna-
leiðsögn kl. 16 á sunnudögum. ________
LANDSBÓKASAFN ÍSLANDS _ HÁSKÓLABÓKASAFN:
Opið mán.-fimmtud. kl. 8.15-22. Föstud. kl. 8.15-19 og
laugd. 9-17. Sunnud. kl. 11-17. Þjóðdeild lokuð á
sunnud. og handritadeild er lokuð á laugard. og
sunnud. S: 525-5600, bréfs: 525-5615._______
LISTASAFN ÁRNESINOA, Tryggvagötn 23, Selíossi:
Opið eftir samkomulagi. S. 482-2703.__________
USTASAFN EINARS JÓNSSONAR: Höggmyndagarður-
inn er opinn alla daga. Safnið er opið alla daga nema
mánudaga, frá kl. 14-17.______________________
LISTASAFN ÍSLANDS, Fríkirlguvegi. Sýningarsalir,
kaffistofa og safnbúð: Opið daglega kl. 11-17, lokaö
mánudaga. Skrifstofa safnsins og upplýsingar um leið-
sögn: Opið alla virka daga kl. 8-16. Bókasafn: Opið
þriðjud.-föstud. kl. 13-16. Aðgangur er ókeypis á mið-
vikudögum. Uppl. um dagskrá á internetinu:
http/Avww.natgall.is________________________
LISTASAFN KÓPAVOGS - GERÐARSAFN: Opið daglega
kl. 12-18 ncma mánud._________________________
LISTASAFN SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR: Safnið er opiö
daglega nema mánudaga kl. 14-17. Upplýsingar í síma
553-2906.___________________________
LJÓSMYNDASAFN REYKJAVÍKUR: Borgartúni 1. Opið
alla daga frá kl. 13-16. Simi 563-2530._____
LYFJAFRÆÐISAFNIÐ: Neströð, Seltjarnarnesi. í sumar
verður opiö á sunnud., þriðjud., fimmtud. og laugard.
milli kl. 13 og 17._____________
MINJASAFN AKUREYRAR, Mipjasafnið á Akureyri, Að-
alstræti 68, Akureyri. S. 462-4162. Opið frá 19.6. - 16.9.
alla daga frá kl. 11-17. Einnig á þriðjudags- og fimmtu-
dagskvöldum í júlí og ágúst frá kl. 20-21 í tengslum við
Söngvökur i Mir\jasafnskirkjunni sömu kvöld kl. 21.
MINJASAFN AUSTURLANDS, Safnahúsinu Laufskógum
1, Egilsstööum er opið alla daga nema mánudaga kl. 11-
17 til 1. september. Alla sunnudaga frá kl. 14-17 má
reyna sig við gamalt handbragð í tóvinnu undir leiðsögn
eldri borgara. Safnbúð með miiyagripum og handverks-
munum. Kaffi, kandís og kleinur. Sími 471-1412, net-
fang minaust@eldhom.is._______________________
MINJASAFN ORKUVEITU Reykjavíkur v/rafstöðina
v/Elliöaár. Opið alla daga nema mánudaga frá kl. 13-17
eða eftir samkomulagi. S. 567-9009.___________
MINJASAFN SLYSAVARNAFÉLAGS ÍSLANDS Þor-
steinsbúð við Gerðaveg, Garði. Opið alla daga í sumar
frá kl. 13-17. Hægt er að panta á öðrum tfmum í síma
_ 422-7253.__________________________________
IÐNAÐARSAFNIÐ Á AKUREYRI, Dalsbraut 1 er opið
frá 1. júní til 31. ágúst kl. 14-18, en lokað á mánudög-
um. Sfmi 462-3550 og 897-0206.______________
HYNTSAFN SEDLABANKA/MÓDHINJASAFNS, Ein-
holti 4, sími 560-9964. Opiö virka daga kl. 9-17 og á öðr-
um tlma eftir samkomulagi.___________________
NÁTTÚRUFRÆDISTOFA KÓPAVOGS, Digranesvegi 12.
Opið miðvikud. og laugd. 13-18. S. 654-0630._
NÁTTÚRUGRIPASAFNIÐ, sýningarsalir Hverfisgötu 116
eru opnir sunnud. þriðjud. fimmtud. og laugard. kl.
13.30-16.___________________________________
NESSTOFUSAFN, safnið er opið þriðjudaga, fimmtudaga,
laugardaga og sunnudaga frá kl. 13-17.________
NORRÆNA HÚSIÐ. Bókasafnið. 13-18, sunnud. 14-17.
Kaffistofan 9-18, mánud. - laugard. 12-18 sunnud. Sýn-
ingarsalir: 14—18 þriðjud.-sunnud. Lokað mánud.
PÓST- OG SÍMAHINJASAFNIÐ: Austurgötu 11, Hafnar-
firði. Opið þriöjudaga og sunnudaga 15-18. Sfmi 555-
4321 ____________________________
SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR, Bergstaðastræti 74, s.
551-3644. Sýning á uppstillingum og landslagsmyndum.
Stendur til marsloka. Opin laugardaga og sunnudaga kl.
13.30- 16. ______________________________
SJÓMINJASAFN ÍSLANDS, Vesturgötu 8, Hafnarfirði, er
_ opið alla daga frá kl. 13-17. S: 565-4442, bréfs. 565-4251.
SJÓMINJA- ÖG SMIÐJUSAFN JÓSAFATS
HINRIKSSONAR, Súðarvogi 4. Opið þriðjud. - laugard.
frá Id. 13-17. S. 581-4677._____________
SJÓMINJASAFNIÐ Á EYRARBAKKA: Hópar skv. samkl.
Uppl.fs: 483-1165, 483-1443.______________
SNORRASTOFA, Rcykholti: Sýningar alla daga kl. 10-18.
Sfmi 435 1490.________________________________
SÍÖFNUN ÁRNA MAGNtJSSONAR, Árnagarði v/Suður-
götu. Handritaaýning opin daglega frá 1. júní til 31.
ágúst kl. 13-17. _________________________
STEINARÍKIÍSLANDS Á AKRANESI: Opið alla daga kl.
13- 18 nema mánudaga. Sfmi 431-5566._____
WÓÐMINJASAFN ÍSLANDS: Opið alla daga nema
mánudaga kl. 11-17._________________________
ÁMTSBÓKASAFNIÐ Á AKUREYRI: Mánudaga til fðstu-
daga kl. 10-19. Laugard. 10-15. ____________
USTASAFNIÐ Á AKUREYRI: Opið alla daga frá kl.
14- 18. Lokað mánudaga. ____________________
NAlrÚRUGRIPASAFNIÐ, Hafnarstræti. Opið alla daga
frá kl, 10-17. Slmi 462-2983. ______________
NÖNNAHÚS, Aðalstræti 54. Opið a.d. kl. 10-17 frá 1. júnl
-1. sept. Uppl. f sfma 462 3555. ___________
NORSKA HÚSIÐ í STYKKISHÓLMI: Opið daglega í sum-
_ arfrákl. 11-17._____________________________
ORÐ DAGSINS
Keyklavfk sími 551-0000. ____________________
Akureyri s. 462-1840.________________________
SUNDSTAÐIR __________________________________
SUNDSTAÐIR í REYKJAVÍK: Sundhöllin er opin v.d. kl.
6.30- 21.30, helgar kl. 8-19. Opið í bað og heita potta alla
daga. Vesturbæjarlaug er opin v.d. 6.30-21.30, helgar 8-
19. Laugardalslaug er opin v.d. 6.50-21.30, helgar 8-19.
Breiðholtslaug er opin v.d. kl. 6.60-22, helgar kl. 8-20.
Grafarvogslaug er opin v.d. kl. 6.60-22.30, helgar kl. 8-
20.30. Árbæjarlaug er opin v.d. kl. 6.60-22.30, helgar kl.
8-22. I^jalarneslaug opin mán. og fimmt. kl. 11-16. þri.,
mið. og föstud. kl. 17-21.__________________
SUNDLAUG KÓPAVOGS: Opin virka daga 7-22. Laugd.
og sud. 8-19. Sölu hætt háiftfma firir lokun._
GARÐABÆR: Sundlaugin opin mád.-föst. 7-20.30. Laugd.
og sud. 8-17. Sölu hætt hálftfma fyrir lokun._
HAFNARFJÖRÐUR. Suöurbæjarlaug: Mád.-föst. 7-21.
Laugd. 8-18. Sud. 8-17. Sundhöll HafnarQaröar: Mád.-
föst. 6.30-21. Laugd. og sunnud. 8-12.________
VARMÁRLAUG í MOSFELLSBÆ: Opiö virka daga kl.
_ 6.30-7.45 og kl. 16-21. Um helgar kl. 9-18._
SUNDLAUGIN í GRINDAVÍK:Opiö alla virka daga kl. 7-
21 og kl. 11-15 um helgar. Sfmi 426-7556.____
SUNDLAUG KJALANESS: Opin v.d. 6.45-8.30 og 14-22,
_ helgar 11-18._______________________________
SUNDMIÐSTÖÐ KEFLAVÍKUR: Opin mánud.-föstud. kl.
7-21. Laugard. kl.8-17. Sunnud. kl. 9-16.___
SUNDLAUGIN í GARÐI: Opin mán.-fóst. kl. 7-9 og 15.30-
21. Laugardaga og sunnudaga. kl. 10-17. S: 422-7300.
SUNDLAUG AKUREYRAR er opin v.d. kl. 7-21. Laugard.
og sunnud. kl. 8-18. Sfmi 461-2532._________
SUNDLAUG SELTJARNARNESS: Opin mád.-föst. 7-
20.30, Laugard, og sunnud. kl. 8-17.30.______
JAÐARSÍAKKALAUG, AKRANESI: Opin mád.-föst. 7-
21, lauttd. og sud. 9-18. S: 431-2643.
BLÁA LÓNIÐ: Opið v.d. M. 11-20, helgar kl, 10-21.
ÚTIVIST arsvæði
FJOLSKYLDU- OG HÚSDÝRAGARÐURINN er opinn alla
daga kl. 10-18. Kaffihúsið opið á sama tíma. Stmi 5757-800.
SÖRPA
SKRIFSTOFA SORPU er opin kl. 8.20-16.15. Endur-
vinnslustöðvar eru opnar a.d. kl. 12.30-19.30 en lokaöar á
stórhátíðum. Að auki verða Ánanaust, Garðabær og Sæv-
arhöfði opnar kl. 8-19.30 virka daga. Uppl.sími 520-2205.
Aðsendar greinar á Netinu
v^mbl.is
-4LLTA/= eiTTH'u'AO HÝTl-
ÞJÓNUSTA/FRÉTTIR
IRi \i y; 1-
m
Morgunblaðið/Jim Smart
Gáfu peninga til
barnaspítalans
ÞESSAR ungu stúlkur, Rósa Líf
Christiansen, Ólína Kristjánsdótt-
ir og Edda Árnadóttir, afhentu
bamaspítala Hringsins 32 þús. kr.
sem þær söfnuðu á flóamarkaði í
Mjódd. Þær voru útsjónarsamar
við að afla hluta á markaðinn og
leituðu m.a. til Steingríms Her-
mannssonar, fyrrverandi forsæt-
isráðherra, sem brást vel við eins
og fleiri. Það voru læknamir Ás-
geir Haraldsson og Atli Dag-
bjartsson sem tóku við peningun-
um fyrir hönd barnaspítalans, en
þeir koma að góðum notum því nú
er verið að byrja að byggja hann.
Næstsíðasta kvöld
gangan í Viðey
NÚ er sá tími kominn þegar flest-
um sumardagskrám lýkur. Svo er
einnig í Viðey. I dag verður kallað
til kvöldgöngu í næstsíðasta sinn á
þessu sumri. Næsta laugardag og
sunnudag verður síðasta helgar-
dagskráin.
Þriðjudaginn þar á eftir verður
svo síðasta kvöldgangan. Eftir
sem áður verður þó hægt að veita
hópum leiðsögn. Þær ferðir þarf
að panta sérstaklega hjá staðar-
haldara. í kvöld verður gengið um
Suðaustureyna. Farið verður með
Viðeyjarferjunni klukkan 19.30.
Gengið verður upp að kirkju. Þar
verður gerð grein fyrir nýju
fræðsluskiltunum, sem sett voru
upp fyrir skömmu. Síðan verður
gengið austur á Sundbakka og
„Stöðin“ skoðuð, þorpið sem þarna
var á árunum 1907-1942. Þarna er
margt að sjá, ekki síst á ljós-
myndasýningunni í Skólanum. Þá
verður litið inn í Tankinn, hið
skemmtilega félagsheimili Viðey-
inga, sem þarna er í gömlum 150
tonna steyptum vatnsgeymi. Það-
an verður haldið um suðurströnd-
ina, heim að Stofu og í land. Á suð-
urströndinni er margt áhuga-
verðra örnefna, er sum hafa
skemmtilega sögu að baki sér og
geyma mikinn fróðleik, sem stað-
arhaldari mun leitast við að draga
fram í dagsljósið. Einnig verður
reynt að halda uppi gamanmálum
og söng eftir aðstæðum.
Gangan tekur um tvo tíma.
Göngufólk er minnt á að vera vel
búið, ekki síst til fótanna. Gjald er
ekki annað en ferjutollurinn, 400
kr. fyrir fullorðna og 200 kr. fyrir
börn.
Veitingahúsið í Viðeyjarstofu er
opið daglega. Einnig er hægt að fá
reiðhjól að láni endurgjaldslaust.
Loks er hægt að fá leyfi til að
tjalda í Viðey og það kostar heldur
ekki neitt.
Námskeið í almennri
skyndihjálp
Orgeltónleikar
í Selfosskirkju
TÓNLEIKARÖÐ Selfosskirkju
verður framhaldið í kvöld, þriðju-
dagskvöld. Þá leikur Reynir Jónas-
son, organisti við Neskirkju í
Reykjavík, á orgelið klukkan
20.30.
Reynir hóf nám í orgelleik hjá
Páli Kr. Pálssyni og var í einn vet-
ur við nám í Danmörku. Hann
stundaði nám hjá dr. Róbert A.
Ottóssyni í söngstjóm og tónfræði.
Hann var organisti og stjómandi
lúðrarsveitar á Húsavík. Hann hef-
ur ennfremur stundað nám hjá
Antonio Corveiras, Hauki Guð-
laugssyni, Pavel Schmidt o.fl.
Reynir lauk 8. stigi í orgelleik frá
Tónskóla Þjóðkirkjunnar.
RE YK JAVÍ KURDEILD RKÍ
gengst fyrir námskeiði í almennri
skyndihjálp sem hefst miðvikudag-
inn 1. september kl. 19. Kennsludag-
ar verða 1., 6. og 8. september. Nám-
skeiðið telst vera 16 kennslustundir
og verður haldið í Fákafeni 11, 2.
hæð. Þátttaka er heimil öllum 15 ára
og eldri og þeir sem hafa áhuga á að
komast á þetta námskeið geta skráð
sig á skrifstofu Reykavíkurdeildar.
Námskeiðsgjald er 4.000 kr.
Meðal þess sem verður kennt á
námskeiðinu er blástursaðferðin,
endurlífgun með hjartahnoði, hjálp
við bmna, beinbrotum, blæðingum
og sárum. Einnig verður fjallað um
helstu heimaslys, þ.m.t. slys á börn-
um og forvamir almennt. Að nám-
skeiðinu loknu fá nemendur skír-
teini sem hægt er að fá metið í ýms-
um skólum.
Önnur námskeið sem eru haldin
hjá Reykjavíkurdeildinni eru um
sálræna skyndihjálp, slys á bömum,
námskeið fyrir barnfóstmr og það
hvemig á að taka á móti þyrlu á
slysstað. Þau verða haldin í maí.
Reykjavikurdeild RKÍ útvegar
leiðbeinendur til að halda ofan-
greind námskeið fyrir þá sem þess
óska.
Afmælisár
Drengjakórs
Laugar neskirkj u
DRENGJAKÓR Laugarneskirkju
er nú að hefja sitt tíunda starfsár.
Auk hefðbundins starfs mun kórinn
taka þátt í alþjóðlegu drengjakóra-
móti í Linz í Áusturríki næsta sum-
ar og ýmislegt annað er á döfinni í
tilefni af 10 ára afmæli kórsins.
Stjómandi kórsins er Friðrik S.
Kristinsson, undirleikari Peter
Máté og raddþjálfari Björk Jóns-
dóttir. Einnig er starfandi við kór-
inn foreldrafélag. Kórinn getur nú
bætt við sig nokkmm drengjum 9
ára og eldri. Innritun og prófun
nýrra kórfélaga fer fram fimmtu-
daginn 2. september kl. 17 í Safnað-
arheimili Laugameskirkju.
M.
Úr dagbók lögreglunnar
Viðbúnaður
vegna upphafs
skólastarfs
27. til 30. ágúst 1999
Fámennt og rólegt var í miðbæn-
um á föstudagskvöld. Fólk hélt sig
að mestu á veitingahúsunum og
gekk heimflutningur síðan ágæt-
lega. Öllu meiri ölvun var að kvöldi
laugardags og fjölmennt á veit-
ingahúsum fram til sunnudags-
morguns.
Vakin er athygli ökumanna á
því að á næstu dögum hefst skóla-
starf gmnnskóla á nýjan leik.
Brýnt er að ökumenn sýni að-
gæslu í nágrenni skóla og verður
lögreglan með nokkum viðbúnað
af þessu tilefni eins og undanfarin
ár. Sjö ökumenn em gmnaðir um
ölvun við akstur eftir helgina og 22
vegna hraðaksturs. Árekstur varð
á Fiétturima síðdegis á föstudag.
Ökumenn bifreiðanna og farþegi
úr annarri voru fluttir á slysa-
deild. Skemmdir urðu á grindverki
og flytja varð bæði ökutækin með
krana af vettvangi.
Ökumaður sem grunaður er um
akstur undir áhrifum lyfja ók um
miðnætti á föstudag norður
Lönguhlíð á móti rauðu ljósi við
Miklubraut. Þegar ökumaður
gerði sér grein fyrir umferðar-
broti sínu sneri hann við og ók
suður sömu götu á öfugum vegar-
helmingi aftur á móti rauðu ljósi
og hafnaði á bifreið sem kom úr
gagnstæðri átt. Flytja varð öku-
mann þeirrar bifreiðar á slysa-
deild. Báðar bifreiðir vom fluttar
af vettvangi með kranabifreið.
Skemmdi bifreiðir
á reiðhjóli
Tilkynntur var árekstur á Bú-
staðabrú að morgni laugardags.
Þegar ökumaður og farþegi bif-
reiðarinnar gerðu sér grein fyrir
því að lögregla var á leiðinni hlupu
þeir af vettvangi. Ökumaður náð-
ist mjög fljótlega í nágrenninu, en
farþegi, sem var að sögn blóðugur
í andliti, komst undan en náðist
síðar um morguninn. Síðdegis á
laugardag hjólaði ölvaður maður á
reiðhjóli utan í tvær bifreiðir og
braut spegil á þeim báðum auk
annarra minniháttar skemmda.
Hjólreiðamaðurinn var fluttur á
lögreglustöð.
Rúmlega þrjú aðfaranótt
sunnudags varð árekstur tveggja
bifreiða á Kringlumýrarbraut við
Miklubraut. Ökumenn og farþeg-
ar voru fluttir á slysadeild, alls
sex, en áverkar þeirra ekki taldir
mjög alvarlegir. Þá slösuðust far-
þegar sem ekki notuðu öryggis-
belti er tvær bifreiðir skullu sam-
an á Breiðholtsbraut snemma á
sunnudagsmorgun. Bifreið var ek-
ið út af Suðurlandsvegi við Rauð-
hóla á sunnudagskvöldið. Öku-
maður og farþegi hlutu minnihátt-
ar meiðsl og voru fluttir á slysa-
deijd.
Á eftirlitsmyndavélum lögreglu
sást að morgni laugardags til
tveggja manna í Pósthússtræti
taka upp plastpoka með hvítu
duftkenndu efni og afhenda það
þriðja aðila, sem skoðaði efnið,
skilaði því aftur og gekk á brott.
Lögreglumenn voru sendir á vett-
vang og handtóku þeir tvo menn á
Lækjartorgi skömmu síðar. Á
þeim fundust ætluð ííkniefni og
voru þeir fluttir á lögreglustöð og
síðan í fangahús. Lögreglumenn
höfðu afskipti af borgara aðfara-
nótt mánudags og fundust við leit í
bifreið hans ætluð fíkniefni. Hann
vai' handtekinn og fluttur á lög-
reglustöð.
Kastað í gegnum níðu
Lögreglu bai'st tilkynning um
að fimm menn hefðu ráðist á mann
á Smiðjustíg við Hverfisgötu árla
morguns á laugardag. Árásar-
mennirnir fimm létu sig ekki
muna um að kasta fórnarlambi
sínu í gegnum rúðu á verslun á
staðnum og varð að flytja hann á
slysadeild. Lögreglan er að vinna
úr upplýsingum um hverjir árás-
armennirnir eru. Að morgni
sunnudags urðu átök milli manna í
Austurstræti. Einn einstaklingur
notaði brotna flösku í átökunum
og varð að flytja karlmann á slysa-
deUd með áverka á höfði eftir
átökin. Karlmaður gekk berserks-
gang utan við veitingahús í Þing-
holtsstræti að morgni sunnudags.
Dyraverðir hugðust róa manninn
en kom þá til átaka þeirra á milli. í
átökunum brotnuðu tvær rúður
auk minniháttar áverka. Árás-
armaðurinn var handtekinn og
vistaður í fangahúsi lögreglu. Þá
kom til átaka milli dyravarða og
gests veitingastaðar við Lækjar-
götu aðfaranótt sunnudags. Gest-
urinn var handtekinn af lögreglu
og fluttur á lögreglustöð. Einnig
voru höfð afskipti af öðrum karl-
manni sem ekki gat sætt sig við
störf lögreglu á staðnum.
Reyndi að stela handjárnum
Lögreglu barst tilkynning að
morgni sunnudags um að reyk-
skynjari væri í gangi í íbúð við
Miklubraut. Lögreglumenn gerðu
ráðstafanir og fóru inn í íbúðina og
var þá mikill reykur þar frá potti á
eldavél. íbúi svaf á staðnum og var
fluttur á slysadeild vegna hættu á
reykeitrun. Reykræsta varð íbúð-
ina.
Lögreglu var tilkynnt að lítið
barn hefði fallið rúma tvo metra
ofan af lofti í húsi í Grafarvogi síð-
degis á föstudag. Það var flutt á
slysadeild en meiðsli eru ekki talin
alvarleg. Karlmaður var handtek-
inn í Lækjargötu eftir að hann
hafði gert tilraun til að stela hand-
jámum af lögreglumanni sem þar
var við skyldustörf. Maðurinn var
fluttur á lögreglustöð og má vænta
fjársektar fyrir athæfi sitt. Kona á
þrítugsaldri var handtekin að
morgni sunnudags eftir að hafa
valdið skemmdum á bifreið í Þing-
holtunum. Hún var vistuð í fanga-
húsi lögreglu.
Á fóstudag voru fjögur ung-
menni flutt í athvarf lögreglu, fé-
lagsþjónustunnar og ÍTR þar sem
þau voru úti í trássi við útivistar-
reglur.