Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.01.1882, Side 111
III
í stað Narfa frándarsonar (eða ef til vill einungís í
því að skjóta inn í orðunum „ór Gnúpufelli“). En
höfundr Glúmu hefir kunnað vel söguna, en hefir
ruglazt 1 ættunum og blandað saman Nörfunum, er
sína Úlfheiðina Ingjaldsdóttur18 átti hvorr, eðagjörtúr
þeim einn mann, og af því eru sprottnar hinar mis-
fellurnar, er sýnt hefir verið fram á, og verðr á þenna
hátt auðið að ráða í, hvernig á missögnunum stendr.
Til glöggleika skal hér tengd við tafla, er sýni
frændsemi og tengdir þeirra manna, er hér er helzt
máli um að skipta, svo sem hér hefir verið bent til,
að verið muni hafa.
18) Að vísu er eigi full nauðsyn að ímynda sér, að Narfi
þrándarson hafi átt Úlfheiði Ingjaldsdóttur úr Gnúpufelli, og
gætu þeir Klængr bræðr jafnt fyrir því hafa verið synir hans,
og aðrir atburðir hafa verið slíkir, sem hér eru sýnd líkindi
og rök til. En á þenna hátt, að tvær hafi verið Úlfheiðarnar,
er þeir Narfarnir hafi átt sína hvorr, verðr hægast að skilja
í bæði villunni í Landnámu (»ór Gnúpufelli* eða hver sem
hún er) og ruglingnum í Glúmu um vegandann og hinn
vegna.