Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.01.1882, Blaðsíða 15
annálum og óprentuðum bréfum, er finnast i handrita-
safni Á-rna Magnússonar og víðar.
Af Byskupa sögum hefir Kaupmannahafnar-
deildin gefið út tvö bindi, Kh. 1858 og 1878.
Jón Sigurðsson hefir búið undir prentun Kristni-
sögu, er fremst stendr i hinu fyrra bindi, og án efa
ráðið, hvað upp skyldi taka í bindið ; hefir þar að
auk tekið þátt í prófarkalesningunni með Guðbrandi
Vigfússyni, sem að öðru leyti hefir gefið þetta bindi
út og ritað formálann. Nafnaskrárnar aftan við bindið
hefir Sigurðr Hansen samið. í öðru bindi af Bysk-
upa sögum hefir Jón Sigurðsson átt töluverðan þátt,
sem sjá má af formálanum. Að þessu bindi hafa að
öðru leyti starfað Guðbrandr Vigfússon, þorvaldr
Bjarnarson, Eiríkr Jónsson og Sigurðr Hansen. þá
er þetta bindi kom út, var Jón Sigurðsson orðinn
sjúkr. Annars myndi hann hafa 1 formálanum fyrir
þessu bindi ritað, eins og hann var vanr að gera við
öll þau fornrit, er hann gaf út, nákvæma og greini-
lega lýsing á öllum þeim handritum, er höfð vóru við
útgefning þessa bindis. í stað þess er nú formálinn
fáeinar línur, og nefnir að eins þá menn, er að bind-
inu hafa unnið.
Diplomatarium Islandicum. íslenzkt Fornbréfa-
safn. Fyrsta bindi 834—1264. Kh. 1857—76. xxvi
+ 858 bls. 8.
Rit þetta er eitt af hinum mikilvægustu hjálpar-
meðölum til íslands sögu, er út hafa komið. Bréfin
eru prentuð stafrétt eftir hinum elztu og beztu hand-
ritum, er þau finnast í. Hverju bréfi fylgir nákvæm
lýsing á þeim handritum, er það finst í, og þar að
auk við mörg bréf fróðlegr sögulegr inngangr. Aftan
við bindið er mjög fullkomið nafna tal og hluta. Sú
aðferð, að prenta bréfin stafrétt, er hin eina rétta.
Verk þetta er í alla staði vandað, og óhætt mun vera