Dagblaðið Vísir - DV - 16.09.1994, Page 4
4
FÖSTUDAGUR 16. SEPTEMBER 1994
Fréttir
Byggðastofhun endurreisti aðalíyrirtækið á Bíldudal:
Fyrirtækið aftur í þrot
eftir sjo manuði
- óvissa um atvmnuhorfur og fólksflótti frá staðnum
„Við erum búnir að taka bátinn
aftur. Það er þó markmið okkar að
halda þeim veiðiheimildum sem á
honum eru heima í héraöi,“ segir
Guðmundur Malmquist, forstjóri
Byggðastofnunar, en stofnunin
hefur leyst bátinn Stapa BA, sem
hún seldi Sæfrosti hf. á Bíldudal,
til sín aftur. í vor var Sæfrost hf. á
Bíldudal innsiglað vegna vanskila
á staðgreiðsluskatti. í framhaldi af
því missti fyrirtækið bát sinn,
Stapa BA.
Það sem vekur athygli í þessu
máli er aö Sæfrost, sem var stofnað
á rústum Fiskvinnslunnar á
Bíldudal, átti ekki langa lífdaga í
rekstri. Fyrirtækið starfaði aðeins
sjö mánuði áður en það fór í þrot.
Sömu einstaklingar eru í lykilstöð-
um í hinu nýja fyrirtæki og voru í
því gamla. Einstaklingar lögðu
fram um 15 milljónir í hlutafé. Þeir
sem þar eru stærstir eru jafnframt
þeir sem stjórnuðu hinu fallna fyr-
irtæki. Byggðastofnun lagði fram
það fé sem lagt var í hlutafjárkaup.
Þá seldi Byggðastofnun fyrirtæk-
inu bátinn Stapa BA sem kostaði
rúmar 100 milljónir. Hann byrjaði
róðra um áramót en var innsiglað-
ur í maí eða 5 mánuðum síðar.
Það sem kannski er einkennileg-
ast við málið er það að fyrirtækið
hélt ekki dampi nema sjö mánuði.
Nú virðist hlutaféð vera glatað og
lítið fram undan í rekstrinum.
Bráðabirgðalausn
„Við erum með á bilinu 15 til 18
manns í vinnu við Rússafisk. Við
leigjum þetta af Sæfrosti hf. í þrjá
mánuði eða þar til um miöjan nóv-
ember. Sveitarfélagið fékk styrk
úr Atvinnuleysistryggingasjóði til
atvinnuátaks á Bíidudal. Þetta er
gert til að brúa bil meðan eigendur
fyrirtækisins og aðrir eru að finna
lausn á atvinnumálum Bílddæl-
inga,“ segir Sigm-ður Viggósson,
framkvæmdastjóri Ödda hf. á Pat-
reksfirði.
Sigurður vitnar þama til þess að
Oddi hf. er með frystihús Sæfrosts
hf. á Bíldudal í leigu. Hann segir
að þegar fyrirtækið hafi komið að
þessum málum hafi verið um 50
manns á atvinnuleysisskrá en nú
sé aftur á móti enginn á skrá.
Samkvæmt heimiidum DV hefur
verið fólksflótti frá Bíldudal í kjöl-
far þess að Sæfrost var innsiglað
og hætti starfsemi. Margar íjöl-
skyldur hafa tekið sig upp og farið.
Nú. virðist ríkja fuUkomin óvissa
um það hvað tekur við á staðnum
þegar leigutími Odda hf. rennur út.
Sæfrost mun vera meðal um-
sækjenda um Vestfjarðaaðstoð eftir
því sem næst verður komist. Sú
umsókn er þó ekki talin líkleg til
aö skila árangri þar sem ekki er
um það að ræða að fyrirtækið sam-
einist öðru fyrirtæki.
Foldahverfi:
Oánægjameð
gamatt hús I
nýju hverfi
„Mikil óánægja er með þetta hús
en við getum lítið gert. Við ákváðum
aö kaupa nýtt hús í nýju hverfi og
þess vegna vorum við ákaflega undr-
andi þegar við sáum einn morguninn
að gamalt hús var komið inn í hverf-
ið okkar. Húsið stingur mjög í stúf
héma og hver veit nema við fáum
fjárhús eða hlöðu á lóðina við hlið-
ina. Mér finnst að gömul hús eigi aö
vera í gömlum hverfum," segir
Margrét Aronsdóttir, íbúi við Vestur-
fold í Grafarvogi.
íbúar við Vesturfold 1 Grafarvogi
em óánægöir með að Borgarskipulag
skuli hafa íbúum gamals húss í Sel-
áshverfi leyfi til að flytja húsiö á
nýja lóð við Vesturfold en þar standa
einungis nýbyggingar. Kristinn El-
íasson, eigandi hússins, segir að tek-
ið hafi sex mánuði að fá lóð hjá borg-
aryfirvöldum. Húsið hafi verið flutt
að Vesturfold að tillögu Borgarskipu-
lags.
Starfsáætlun Alþingis:
Alþingi mun starfa í
þrjá og hálfan mánuð
Drög að starfsáætlun Aiþingis
hafa verið lögð fram og þau rædd
innan ríkisstjómarinnar. Síðan
verður þau rædd og endanlega
ákveðin af þingflokkum.
Samkvæmt þeim drögum sem
fyrir liggja kemur Alþingi saman
1. október næstkomandi eins og
lögboðiö er. Þá er gert ráð fyrir að
jólaleyfi þingmanna hefjist laugar-
daginn 17. desember. Þess em hins
vegar nánast engin dæmi að jóla-
leyfi þingmanna hefiist þann dag
sem ætlað er, þing stendur í lang-
flestum tilfellum lengur í desember
en ráð er fyrir gert.
Alþingi kemur svo saman eftir
jólaleyfi mánudaginn 23. janúar og
mun þá starfa í einn mánuð því
þinglok em fyrirhuguð fóstudaginn
24. febrúar. Þinglokin em miðuð við
kosningaundirbúning flokkanna
fyrir alþingiskosningamar sem
fram fara laugardaginn 8. apríl.
ibúar við Vesturfold í Grafarvogi eru óánægðir með að gamalt timburhús skuli hafa verið flutt úr Seláshverfi i
Vesturfold nýlega. íbúunum þykir húsið stinga í stúf við nýbyggingarnar. Húsið var flutt með leyfi Borgarskipulags
og því ekkert við þvi að gera. DV-mynd BG
Breytingar á stjómkerfi og embættum Reykjavíkurborgar:
Faglegan undirbúning vantar
-segirGunnar JóhannBirgisson borgarfulltrúi
„Ef menn ætla að fara í stjóm-
skipulegar breytingar á borgarkerf-
inu þarf að gera það með faglegum
hætti. Engin slík vinna hefur átt sér
staö ennþá og engin umræða hefur
farið fram innan skipulagsnefndar
um þessar hugmyndir. Mikilvægt er
að hafa stjómsýsluna rétt upp
byggða miðað við þær stjómsýslu-
reglur sem gilda í þessu þjóðfélagi.
Þá er hugmyndin um borgararkitekt
ekki ný af nálinni," segir Gunnar
Jóhann Birgisson, borgarfulltrúi,
sem er fulltrúi Sjálfstæðisflokks í
skipulagsnefnd Reykjavíkurborgar.
Guðrún Ágústsdóttir, formaður
skipulagsnefndar, segir að ýmsar
hugmyndir séu uppi um að auka
samvinnu milh Borgarskipulags og
embættis borgarverkfræðings og
koma á fót embætti borgararkitekts.
Samkvæmt heimildum DV er fyrir-
hugaöur fundur um hugmyndir í
þessa vera með skipulagsnefnd og
starfsmönnum Borgarskipulags í lok
mánaðarins.
Fimm bama faðirmn sem var látinn hætta kennslu á Sauðárkróki:
Meint kynferðisbrot rannsakað í Noregi
- niðurstöðu að vænta innan tveggja vikna
Mál grunnskólaleiðbeinandans á
Sauðárkróki, sem sendur var í veik-
indafrí eftir að upplýsingar bárust
um að hann sætti rannsókn vegna
kynferðisafbrota, er enn í rannsókn
hjá lögreglunni í Noregi.
Umræddur maður er fimm bama
faðir. Nýlega sviptu norskir dómstól-
ar manninn forrceði yfir börnunum.
Það mál er nú til meðferðar hjá dóm-
stólum og samkvæmt upplýsingum
DV má vænta niðurstöðu í því máli
innan tveggja vikna. Ástæða þess að
það mál er komið upp er vegna grun-
semda um að hann hafi beitt böm
sín líkamlegu ofbeldi og elsta son
sinn, 9 ára, kynferðislegu ofbeldi.
Lögregluyfirvöld í Noregi rann-
saka nú hvað hæft er í þessum grun-
semdum en rannsókn málsins hófst
í kjölfar þess að Félagsmálastofnun
Hafnarfjarðar sendi bréf til Noregs
um að maðurinn hefði sætt eftirliti
hér heima vegna sömu grunsemda.
Eins og greint hefur verið frá í DV
sætti maðurinn gæsluvarðhaldi
meðan á rannsókn málsins stóð og
eftir því sem næst verður komist má
vænta að rannsókn þess ljúki fyrir
mánaðamót. í framhaldi af því verð-
ur tekin ákvörðun um hvort ástæða
séað gefa út ákæru á hendur honum.
í kjölfar þess að forræðiö var dæmt
af fóðumum, fékkst samþykki hans
fyrir því aö böm hans fimm, sem em
á aldrinum 2ja til 9 ára, yrðu vistuð
saman og hafa barnavemdaryfirvöld
í Noregi fundið þeim heimili þar til
rannsókn málsins lýkur. Maðurinn
er skilinn við móöur bamanna og að
hans sögn er hún ekki hæf til að
annast bömin sökum heilsufars-
brests.
Þá má og geta þess að ríkissaksókn-
ari hefur til meðferðar skjalafalsmál
á hendur manninum en þaö kom til
í kjölfar þess að hann falsaði undir-
skriftir skyldmenna sinna á skulda-
bréf.