Dagblaðið Vísir - DV - 16.09.1994, Blaðsíða 16
16
FÖSTUDAGUR 16. SEPTEMBER 1994
.
íþróttir
Evrópumótin í handknattleik:
Haukarog
FH leika báða
leikina heima
- og Selfyssingar sína í Slóveníu
íslensku karlaliðin, sem taka þátt
í Evrópumótunum í handknattleik,
hafa öÚ komist að samkomulagi við
andstæðinga sína um leikdaga og
leikstaði. Eins og komið hefur fram
ætla Valsmenn að leika báða sína
leiki gegn danska liðinu Kolding í
Danmörku. í vikunni komust FH-
ingar að samkomulagi við slóvakíska
liðið Prevent um að leika báða leik-
ina í Hafnarfirði. Haukamenn kom-
ust einnig að samkomulagi viö úkra-
ínska liðið Olimpic Lvov um að leika
báða leikina hér á landi. Nú síðast
ákváðu svo Selfyssingar að leika
báða leiki sína við Georgic Velenje
frá Slóveníu ytra.
„Við gerðum úkraínska liðinu til-
boð sem það féllst síðan á. Þaö kemur
hagstæðara út fyrir okkur að fá þá
hingað til lands í báða leikina og með
þessu fyrirkomulagi komumst við
frá þessu dæmi á sléttu. í fljótu
bragði virðast þessi hð áþekk að getu
en við erum samt að gera okkur von-
ir um að komast áfram í 2. umferð.
Við urðum okkur úti um spólu frá
leik þeirra á móti í Prag á sl. vori og
er hún á leiðinni til landsins," sagði
Svavar Geirsson, varaformaður
handknattleiksdeildar Hauka, í sam-
tali við DV.
Haukarnir leika sína leiki í íþrótta-
húsinu við Strandgötu 8. og 9. októb-
er.
Jón Auðunn Jónsson, formaður
handknattleiksdeildar FH, sagði að
það hefðu hafist á endanum samn-
ingar við forráðamenn liðsins frá
Slóvakíu. „Til að sleppa sléttir frá
dæminu kom sterkast út að leika
báða leikina í Hafnarfirði. Hitt heföi
verið borðleggjandi tap,“ sagði Jón
Auðunn Jónsson. Leikirnir verða 14.
og 15. október.
Selfyssingar ákváðu að leika báða
leikina ytra og verða þeir í Slóveníu
14. og 16. október. Með þessu vonast
Selfyssingar til að sleppa vel frá æv-
intýrinu. Hinn kosturinn hefði ekki
verið undir einni milljón.
Úrslit í Evrópukeppni bikarhafa
CSKA Moskva (Rússlandi) - Ferencvaros (Ungverjalandi).2-1
Sergei Mamchur (50.), Oleg Sergeyev (58.) - Kenneth Christiansen (58.).
Áhorfendur: 6.000.
Zhalgiris Vilnius (Litháen) - Feyenoord (Hollandi)....1-1
Andrius Tereskinas (87.) - Henrik Larsson (9.). Áhorfendur: 11.000.
Croatia Zagreb (Króatia) - Auxerre (Frakklandi)................3-1
Josko Jelicic (2.), Zvonimir Soldo (40.), Igor Pamic (65.)-Bemard Diomede
(21.). Áhorfendur: 18.000.
Gloria Bistrita (Rúmeníu) - Real Zaragoza (Spáni)..............2-1
Marius Raduta (51.), Adrian Lungu (54.) - Esnaider (43.). Áhorfendur: 13.000.
FC Pirin (Búlgaríu) - Panathinaikos (Grikklandi).................0-2
Nikos Nioples (70.), Alexis Alexoudis (83.). Áhorfendur: 25.000.
Omonia Nicosia (Kýpur) - Arsenal (Englandi)......................1-3
Costas Malekkos (72.) - Paul Merson (37.-78.), Ian Wright (50.). Áhorfendur:
14.500.
Besiktas (Tyrkiandi) - HJK Helsinki..............................2-0
Oktay (28.), Ertugnú (36. víti). Áhorfendur: 35.000.
Grasshoppers (Sviss) - Chernomorets (Úkraína)....................3-0
Thomas Bickel (41.), Marcel Köller (52.), Nestor Subiat (85.). Áhorfendur:
3.600.
Bröndby (Danmörku) - Tirana (Albania)............................3-0
Brian Jensen (19. víti), Bo Hansen (56.), Ole Bjur (66.). Áhorfendur: 6.035.
Bodö/Glimt (Noregi) - Sampdoria (ítaliu).........................3-2
Tom Kaare Staurvik (1.), Bent Inge Johnsen (32.-58.) - Mauro Bertarelli
(46.), David Platt (68.) Áhorfendur: 2.105.
Chelsea (Englandi) - Viktoria Zizkov (Tékklandi).................4-2
Paul Furlong (2.), Frank Sinclair (4.), David Rocastle (52.), Dennis Wise
(69.) - Josef Majoroe (35.^41.) Áhorfendur: 22.036.
Sligo Rovers (frlandi) - Club Brugge (Belgíu)....................1-2
Kenny (44.) - Sven Vermant (10.), Gert Verheyen (63.). Áhorfendur: 6.000.
Dundee United (Skotlandi) - Tatran Presov (Slóvakía).............3-2
Gordan Petric (16.), Jerren Nixon (66.), David Hannah (69.) - Marian Salka
(10.), Vadislav Zvara (41.) Áhorfenáur: 9.454.
Maribor Branik (Slóvenía) - Austria Vín (Austurríki).............1-1
Porto (Portúgal) - LKS Lodz (Póllandi)...........................2-0
Domingos Olivera (72.), Rui Barros (77.). Áhorfendur: 25.000.
Evrópukeppni félagsliða:
Inter Milan (Ítalíu - Aston Villa (Englandi).....................1-0
Dennis Bergkamp (75.) Áhorfendur: 25.000.
SCT Olimpija (Slóvenía) - Eintracht Frankfurt (Þýskalandi).......1-1
Ermin Siljak (3.) - Thorsten Legat (84.) Áhorfendur: 3.000.
^Sizuno
PRESSULEIKUR
MIZUNO-DEILDARINNAR.
Síðasti kvennaleikur ársins í knattspyrnu
á Kópavogsvelli sunnudaginn 18. sept. kl. 16.00.
íslenska kvennalandsliðið
gegn
pressuliði Mizuno-deildarinnar.
Fjölmennum á völlinn Aðgangur ókeypis
Björn Jílsen, hinn gamalkunni
sænski handknattleiksmaður
sem oft gei-öi íslendingum lífið
leitt, hefur verið ráðinn þjálfari
þýska úrvalsdeildarliðsins Wal-
lau Massenheim.
Þriggja mánaða bann
Breski spretthlauparinn
Solomon Wariso var i gær dæmd-
urí þriggja mánaða keppnisbann
fyrir að taka inn náttúrulækn-
ingatöflur sem innihéldu ólöglegt
efni, ephedrine.
Rúmenarnirmætast
Gheorghe Hagi og Florin
Raducioiu, hetjur Rúmena úr HM
í knattspyrnu, mætast með ná-
grannaliðunum, Barcelona og
Espanol, í spænsku 1. deildinni
um helgina. Hagi leikur sinn
fyrsta leik fyrir Barcelona en
Raducioiu hefur farið á kostum
með Espanol sem óvænt er efst í
deildinni.
Dinamo Kiev, úkraínsku meist-
ararnir, fengu um mifljón fyrir-
spurnir um miða á leik liðsins við
Spartak Moskva, rússnesku
meistarana, í Evrópukeppninni í
knattspymu sem fram fór í fyrra-
kvöld. „Aöeins“ 100 þúsund
heppnir sáu Kiev vinna leik þess-
ara fyrrum sovésku stórvelda.
Golfinufrestað
Hætta þurfti við alla keppni á
fyrirhuguðum fyrsta degi breska
meistaramótsins i golfx í gær
vegna ausandi rigningar. Keppni
átti að hefjast i morgun í staðinn
en gæti samt lokið á sunnudag.
Faldogagnrýninn
Nick Faldo frá Bretlandi, þriðji
besti kylfingur heims, gagnrýndi
evrópska golfvelli harðlega dag-
inn fyrir mótið og sagöist íhuga
alvarlega að keppa eingöngu í
Bandaríkjunum á næsta ári.
í öðrum heimi
Mark James, landi Faldos,
sagði að Faldo virtist lifa i öðram
heimi en flestir aðrir kylfingar
og ástæðan fyrir gagnrýni hans
væri sú að hann fengi ekki nógu
miklar aukagreiöslur fyrir aö
keppa í Evrópu.
Colin Jackson frá Bretlandi
náði besta tíma ársins í 110 metra
gríndahlaupi þegar hann hljóp á
12,98 sekúndum á rnótí, i Japan i
gær. Þetta var jafhframt 36. sigur
Jacksons í röð.
Vonbrígði hjá Powell
Mike Powell, heimsmethafmn í
langslökki, olli miklum vonbrigö-
um þegar hann stökk aðeins 7,90
metra, tíu sentímetrum skemur
en íslandsmet Jón9 Arnars
Magitússonar og var annar á eftir
Geng frá Kína sem stökk sömu
vegalengd.
Gautaborg nauðlenti
Leiguvél frá SAS, sem flutti
sænsku meistarana úr Gauta-
borg í Evrópuleikinn við Manc-
hester United í fyrrakvöld, varð
aö nauðlenda vegna bilunar
skömmu eftir flugtak frá Manc-
hester eftir leikinn. Engan sakaði
en liðið varð að gista í Manchest-
er um nóttina.
Möllerhættivið
Brasilíski leikmaðurinn Möller
gengur ekki i raðir enska liðsins
Evertons eins allt leit út fyrir.
Everton og Sao Paulo voru búin
að komast að sarakomulagi um
kaupverðið, alls 260 milljónir.
Þegar kom að laimaþættinum
sigldu málin í strand og er Möller
á leiöinni heim á nýjan leik.
Eyjólfur Sverrisson og félagar hans í tyrkneska félaginu Besiktas unnu sigur á fi
bikarhafa í Istanbúl í gærkvöldi. Á myndinni er Oktay Derelioglu í þann veginn a
Evrópumótin í knattspymu í £
Norðurhjar
lagði Samp
- Aston Villa stendur vel að vígi eftir leiki
Óvæntustu úrslitin í Evrópukeppni
bikarhafa er án efa sigur norska liðsins
Bodö/Ghmt gegn ítalska stórliðinu
Sampdoria. Fyrirfram var búist viö að
leikurinn yrði auðveldur fyrir ítalska
liðið enda Bodö/Glimt í fallbaráttu í
norsku deildinni. Liðiö hefur lengstum
verið að leika illa á tímabilinu en í gær-
kvöldi sýndi liðið loksins sínar allar
bestu hliöar.
Kristján Jónsson kom
inn á sem varamaður
Leikurinn var fluttur frá Bodö til Osló
vegna lélegra vallarskilyrða þar norður
frá en veðrið í Osló var heldur ekki til
að hrópa fyrir, kalt og nokkur vindur.
Við þessar aðstæður eru ítalamir ekki
vanir að leika og áttí liðiö oft í vök að
verjast. Kristján Jónsson, sem leikur
með Bodö/Glimt, kom inn á sem vara-
maður þegar tæpur hálftími var til leiks-
loka og skilaði sínu hlutverki vel að sögn
norskra fréttastofa.
Zagreb vann sigur á franska liðinu
Auxerre í Evrópukeppni bikarhafa í
gærkvöldi. Auxerre lék einum leik-
manni færri síðasta stundaríj órðunginn
en varnarmanninum Franck Silvestre
var þá vikið af leikvelli fyrir brot.
Zagreb-liðið var mun betra í leiknum og
verður franska liðið að leika mun betur
á heimavelli í síðari leiknum ætli það
sér áfram í keppninni.
Eyjólfur og félagar
skoruðu aðeins tvívegis
Besiktas, lið Eyjólfs Sverrissonar, er
ekki öruggt eftir 2-0 sigur á finnska lið-
inu HJK í Istanbúl. Eyjólfur, sem verið
hefur á skotskónum síðustu vikurnar,
náði ekki að skora í leiknum. Besiktas
sótti mun meira í leiknum en íleiri mörk
létu standa á sér.
Aston Villa stendur vel að vigi eftir
minnsta ósigur gegn Inter Milan á San
Síró í Mílanó í keppni bikarhafa. Aston
Villa átti ekki síður minna í leiknum og
þurfti Gianluca Pagliuca nokkrum sinn-
um að taka á honum stóra sínum í mark-
Þýski handboltinn hefst um h
„lslendingaleikur(< í f yr
Fyrsta umferðin í þýsku úrvaisdeild- erfiðum útileik gegn Niederwúrzbach.
inni í handknattleik er leikin um helg- Ekki er reiknað með Dormagen,
ina en þar verða þrir íslendingar í eldl- Dússeidorf og Gummersbach í barátt-
ínunni i vetur. Héðinn Gilsson leikur unni um efstu sætin i vetur. Búist er
áfram með HSV Dusseldorf og Júlíus við því að meistarnir frá Kiel verði við
Jónasson er genginn til liðs við Gum- toppinn,ásamtLemgo, WallauMassen-
mersbach. Þá er Kristján Arason tek- heim, Niederwúrzbach og Hameln. Lið
inn viö sem þjálfari Bayer Dormagen. Lemgo þykir hafa gert sérstaklega góð
Strax í fyrstu umferð er um „íslend- kaup í að fá svissnesku stórskyttuna
ingaleik“ aö ræða því Dormagen fær Marc Baumgartner frá BSV Bern.
Dússeldorf í heimsókn. Júiíus og félag- Haim og Júlíus eru einu þekktu útlend-
ar í Gummersbach byrja hins vegar á ingarnir sem keyptir hafa verið til