Dagblaðið Vísir - DV - 16.09.1994, Blaðsíða 26
34
FÖSTUDAGUR 16. SEPTEMBER 1994
Afmæli
Sigurjón Þóroddsson
Sigurjón Þóroddsson húsgagna-
smíðameistari, Skagfirðingabraut
37, Sauðárkróki, er áttræður í dag.
Starfsferill
Sigurjón fæddist að Alviðru í
Dýrafirði og ólst þar upp. Um tíu
ára aldur hófu þeir bræður sjósókn
á árabát með föður sínum en Sigur-
jón stundaði síðan sjósókn á stærri
bátum frá Flateyri og ísafirði er
hann var sextán ára.
Hann réð sig að Núpsbúinu 1935,
starfaði þar um sumarið en var
nemandi við skólann um veturinn
og vann síðan við búið næsta ár.
Hann fór í iönnám til Akureyrar
1938 til Kristjáns Aðalsteinssonar
húsgagnameistara, lauk þar sveins-
prófi og fékk meistarabréf í iðninni
1945.
Sigurjón flutti til Sauðárkróks
1950 og starfaði þar við trésmíðar,
fyrstu þrjú árin hjá Kaupfélagi
Skagfirðinga en síðan sjálfstætt
næstu árin. Loks starfaði hann hjá
Byggingafélaginu Hlyn hf. á Sauðár-
króki 1971-86.
Á Akureyri tók Siguijón virkan
þátt í félagslífi staðarins, söng í
Kantötukór Akureyrar og í kirkju-
kór Akureyrarkirkju, auk þess sem
hann starfaði meö Leikfélagi Akur-
eyrarínokkurár.
Fjölskylda
Sigurjón kvæntist 4.7.1943 Huldu
Ingibjörgu Sigurbjörnsdóttur iðn-
verkakonu, f. 4.9.1922, en foreldrar
hennar voru Sigurbjörn Tryggva-
son, b. á Grófargili í Seyluhreppi í
Skagafirði, og k.h„ Jóhanna Jóns-
dóttir húsfreyja.
Börn Sigurjóns og Huldu eru íris
Dagmar, f. 24.10.1942, hárgreiðslu-
meistari, gift Skúla Jóhannssyni
iðnverkamanni og eiga þau fjögur
börn; Guðbjörg Elsa, f. 25.9.1946,
skrifstofustúlka hjá Pósti og síma í
Kópavogi, gift Níelsi Níelssyni bif-
vélavirkja og eiga þau þrjú börn;
Jónanna María, f. 3.11.1951, af-
greiðslustúlka, gift Þorvaldi Sveins-
syni, búfræðingi og b. á Kjartans-
stöðum í Flóa, og eiga þau tvö börn.
Foreldar Sigurjóns áttu ellefu
börn.
Foreldrar Sigurjóns voru Þórodd-
ur Davíðsson, b. að Alviðru í Dýra-
firði, f. 1874, og kona hans, María
Bjamadóttir, f. 1881, d. 1969.
Ætt
Þóroddur var sonur Davíðs, b. að
Vöðlum í Dýrafirði, Pálssonar, b. á
Melanesi á Rauðasandi, Pálssonar.
Móðir Davíðs var Bergljót Jónsdótt-
ir Thorberg, verslunarstjóra á Pat-
reksfirði, bróður Hjalta, prests á
Kirkjubóli í Langadal, föðurafa
Bergs Thorbergs landshöfðinga.
Systir Bergs var Kristín, fóður-
amma Einars Guðfmnssonar í Bol-
ungarvík. Móöir Bergljótar var Sig-
ríður Þóroddsdóttir, systir Þórðar,
ættföður Thoroddsenættarinnar.
Móðir Þórodds var Ragnheiður,
dóttir Hallgríms, b. á Brekku á Ingj-
aldssandi Guðmundssonar, og Guð-
rúnar, systur Bergljótar.
María var dóttir Bjarna, b. á Arn-
arnesi í Dýrafirði, Jónssonar, b. á
Ytra-Lambadal, Bjarnasonar. Móðir
Jóns í Ytri-Lambadal var Elísabet
Markúsdóttir, prests á Söndum í
Dýrafirði, Eyjólfssonar. Móðir El-
ísabetar var Elísabet, systir Mark-
úsar, prests á Álftamýri í Arnar-
firði, langafa Ásgeirs Ásgeirssonar
forseta. Elísabet var dóttir Þórðar,
ættföður Vigurættarinnar, Systir
Þórðar var Ingibjörg, amma Jóns
Sigurðssonar forseta.
Móðir Maríu var Sólveig Zakar-
íasdóttir, b. í Holti á Barðaströnd,
Jónssonar, b. í Kvígindisfirði, Gísla-
sonar.
Siguijón verður að heiman á af-
mælisdaginn.
Eggert Egill Lárusson
Eggert Egill Lárusson flokksstjóri,
Túngötu 22, Keflavík, er sextugur í
dag.
Starfsferill
Eggert fæddist á Blönduósi og ólst
upp í foreldrahúsum í Grímstungu
í Vatnsdal í Austur-Húnavatns-
sýslu. Hann var fjóra vetur í far-
skóla Ásahrepps, stundaði nám í
Reykholti í Borgarflrði, við Iðnskól-
ann á Sauðárkróki og lauk búfræði-
prófl frá Hvanneyri 1955. Auk þess
hefur Eggert sótt ýmis námskeið er
lúta að verkstjórn og öðru sem
tengst hefur störfum hans.
Eggert starfaði síðan á búi for-
eldra sinna í Grímstungu til 1958,
hóf þá sjálfur búskap á hluta jarðar-
innar og stofnaði nýbýlið Hjarðar-
tungu úr Grímstungulandi 1959.
Hann keypti síðan Grímstungujörð-
ina alla auk jarðarinnar Kvisthaga
1969 og stundaði áfram búskap til
1984.
Eftir að Eggert brá búi átti hann
heima á Blönduósi í rúmt ár, var
síðan bæjarverkstjóri á Seyðisfirði
í rúm fimm ár en flutti til Keflavík-
ur 1991 og hefur verið þar flokks-
stjóri hjá Keflavíkurbæ síðan.
Eggert var gangnastjóri á Gríms-
tunguheiði, sat í hreppsnefnd Ása-
hrepps og gegndi ýmsum öðrum
trúnaðarstörfum fyrir hreppinn.
Fjölskylda
Eggert kvæntist 15.6.1963 Kristínu
Hjördísi Líndal, f. 26.6.1941, hjúkr-
unarfræðingi. Hún er dóttir Jónat-
ans Líndal, hreppstjóra á Holtastöð-
um í Langadal, og Soffíu Pétursdótt-
ur Líndal, hjúkrunarfræðings og
húsfreyjuþar.
Börn Eggerts og Kristínar Hjör-
dísar eru Sigríður Jóna, f. 17.11.
1958, gift Lýði Viktorssyni og eiga
þau þrjú börn, Hjalta, Ernu og Sig-
urdísi Sóleyju; Soffla, f. 6.9.1964, en
sambýlismaður hennar er Stein-
grímur Reynisson og eiga þau eina
dóttur, Hafdísi; Páll Örn Líndal, f.
22.5.1967, en sambýliskona hans er
Ólöf Sigurjónsdóttir og er dóttir
þeirra Eydís Arna; Þröstur Heiðar
Líndal, f. 24.5.1972; Jónatan Líndal,
f.26.6.1973.
Systkini Eggerts: Helga Sigríður,
f. 19.5.1916, d. 2.11.1920; Björn Jak-
ob, f. 10.9.1918, kvæntur Erlu Guð-
mundsdóttur; Helgi Sigurður, f. 11.8.
1920, d. 13.4.1939; Helga Sigríöur, f.
14.4.1922., gift Helga Sveinbjörns-
syni; Ragnar Jóhann, f. 5.7.1924,
kvæntur Elínu Jónsdóttur; Grímur
Heiðland, f. 3.6.1926, kvæntur
Magneu Halldórsdóttur; Kristín
Ingibjörg, f. 5.12.1931, gift Jóni
Bjarnasyni.
Foreldrar Eggerts voru Lárus
Björnsson, f. 10.12.1889, d. 27.5.1987,
bóndi í Grímstungu, og Pétursína
Eggert Egill Lárusson.
Björg Jóhannsdóttir, f. 22.8.1896, d.
27.7.1985, húsfreyja.
Lárus var sonur Bjöms Eysteins-
sonar, b. í Grímstungu, og Helgu
Sigurgeirsdóttur húsfreyju, af
Hraunkotsætt.
Pétursína var dóttir Jóhanns
Skarphéðinssonar, b. á Hvoli í Vest-
urhópi, og Höllu Ragnheiðar Egg-
ertsdóttur.
Ólöf J. Sigurgeirsdóttir
Ólöf Jóna Sigurgeirsdóttir síma-
dama, Rituhólum 3, Reykjavík, er
fimmtugídag.
Starfsferill
Ólöf fæddist í Vestmannaeyjum,
ólst þar upp og lauk þar gagnfræða-
prófi. Auk húsmóðurstarfa stundaði
hún skrifstofu- og verslunarstörf.
Þá hefur hún stundað heimilisiðn-
að, verið meö iðnrekstur í tólf ár og
unniö við símavörslu.
Ólöf er félagi í Soroptimistaklúbbi
Reykjavíkur og systir í Oddfellow
Rebekkustúkunni nr. 1, Bergþóru.
Fjölskylda
Ólöf giftist 14.11.1964 Jóni Sig-
urðssyni, f. 8.12.1941, framkvæmda-
stjóra. Hann er sonur Sigurðar Jó-
hannssonar, sem lést 1965, og Ásu
Bjömsdóttur.
Börn Ólafar og Jóns eru Ólafur
Jón, f. 5.8.1966, fulltrúi markaðs-
deildar Stöðvar 2, kvæntur Gerði
Petreu Guðlaugsdóttur og em börn
þeirra Guðjón Bjarki, f. 26.3.1989,
og Jón Axel, f. 2.11.1992; Ásgeir, f.
1.10.1967, nemi við Handíða- og
myndlistaskólann, en unnusta hans
er Guðbjörg Matthíasdóttir; Elísa
Guðlaug, f. 16.4.1973, nemi í uppeld-
isfræði í Seattle í Bandaríkjunum,
en unnusti hennar er Valtýr Þóris-
son.
Alsystir Ólafar er Ruth Halla Sig-
urgeirsdóttir, gift Ólafi Axelssyni og
eigaþauþrjásyni.
Hálfsystir Ólafar, sammæðra, er
Guðrún J. Jónsdóttir, gift Sveini Kr.
Péturssyni og eiga þau einn son.
Hálfsystkini Ólafar, samfeðra, eru
Eiríkur Heiðar, kvæntur Sigríði
Dagbjartsdóttur og eiga þau þijár
dætur; Guðfmna Guöný, var gift
Hermanni Inga Hermannssyni og
eiga þau fjögur börn; Sæfinna Ásta,
gift Þorbimi Númasyni og eiga þau
þrjú börn, Emma Hinrikka, gift Ól-
aíi Lárussyni og eiga þau tvö syni;
Þór, var kvæntur Hjördísi Kristins-
dóttur og eiga þau tvö börn.
Foreldrar Ólafar: Sigurgeir Ólafs-
son, f. 21.6.1925, starfsmaður hafn-
arstjórnar í Vestmannaeyjum og
fyrrv. forseti bæjarstjórnar þar, og
Elísa Guðlaug Jónsdóttir húsmóðir.
Ólöf var ahn upp hjá móðurfor-
eldram sínum í Vestmannaeyjum,
Jóni Einarssyni, f. 13.6.1895, d. 27.11.
Ólöf Jóna Sigurgeirsdóttlr.
1989, og Ólöfu Friðfinnsdóttur, f.
11.11.1902, d. 5.11.1985.
Ólöf Jóna og Jón taka á móti gest-
um í Akogessalnum, Sigtúni 3, milli
kl. 17.00 og 19.00 á afmælisdaginn.
Georg Már Michelsen
Georg Már Michelsen bakarameist-
ari, Heinabergi, Þorlákshöfn, verð-
ur fimmtugur mánudaginn 19.9. nk.
Starfsferill
Georg Már fæddist í Hveragerði
og ólst þar upp. Hann lærði bakara-
iðn í Hveragerði hjá fóðurbróður
sínum, Georg Michelsen, og starfaði
þar um skeið, auk þess að vera í
slökkviliði Hveragerðis.
Georg Már rekur nú sitt eigið bak-
arí í Þorlákshöfn sem hann stofnaöi
ásamt konu sinni árið 1982. Þá er
hann einn af stofnendum og
rekstraraöili að Innkaupasambandi
bakara sem var stofnað 1989.
Fjölskylda
Georg Már kvæntist 19.9.1963
Önnu Sigurlaugu Þorvaldsdóttur, f.
19.3.1944, verslunarmanni. Hún er
dóttir Þorvalds Sveinssonar sjó-
manns og Sigríðar Einarsdóttur
húsmóður sem bæði eru látin.
Börn Georgs Más og Önnu Sigur-
laugar em Páll Michelsen, f. 1.6.
1963, bakari í Þorlákshöfn, kvæntur
Leu Michelsen og eru böm þeirra
Eva Rún, f. 7.6.1984 og Axel Nic-
olai, f. 15.9.1992; Sigríður Michelsen,
f. 12.8.1964,húsmóðiríReykjavík,
gift Svani Ö. Tómassyni smið og em
böm þeirra Ragnar Már, f. 5.8.1981,
Hreiðar Örn, f. 29.6.1988, og Aron
Ingi, f. 27.12.1990; Örvar Már Mic-
helsen, f. 3.7.1973, nemi í foreldra-
húsum.
Bræður Georgs Más eru Frank
Michelsen, f. 10.11.1941, sendibíl-
stjóri í Reykjavík, kvæntur Svein-
björgu Steinþórsdóttur og eiga þau
þijá syni; Ragnar Michelsen, f. 4.7.
1945, blómaskreytingamaður í
Reykjavík.
Foreldrar Georgs Más: Paul Valdi-
mar Michelsen, f. 17.7.1917, fyrrv.
forstjóri í Reykjavík, og Sigríður R.
Michelsen, f. 14.2.1916, d. 7.6.1988,
hárgreiðslukona.
Georg Már tekur á móti gestum í
Georg Már Michelsen.
Hótel Örk í Hveragerði laugardag-
inn 17.9. milli kl. 17.00 og 19.00.
Sigurjón Þóroddsson.
Til hamingju meö af-
mælið 16. september
Þórunn Ágústsdóttir,
Austurbyggð 17, Akureyri.
Kristín Helgadóttir,
Njálsgötu 87, Reykjavík.
Bjarni M. Stefánsson,
Lindargötu 61, Reykjavík.
Svanhvít Hávarðsdóttir,
Múlavegi28, Seyðisfirði.
Gísli
Ólafur
Emilsson,
Hjallabraut62,
Haiharílrði.
Gíshverður
að heiman.
Hjálmar Júlíusson,
Lundargötu 13b, Akureyri.
60ára
Eirikur Sigurjónsson,
bóndi á Lýtingsstöðum,
iHolta-ogLandsveit.
Eiginkonahans
er Sigrún Har-
aldsdóttir, hús-
freyja ogbóndi.
í tilefni dagsins
býðurQöl-
skvldan sveit-
ungum. vinum
ogvandamönn-
um til kvöldverðar i Hreppssaln-
um að Laugalandi laugardaginn
24.9. kl. 20.30.
50 ára
Jórunn Andersen,
Amarheiði 12, Hverageröi.
Valgerður Jónasdóttir,
Hafnarbraut 6, Bíldudal.
Guðný Halldórsdóttir hjúkrun-
arfræðingur,
Birkivöllum29, Selfossi.
Guðný tekur á móti gestum að
heimilí sínu að kveldi 17.9.
Arndís Helgadóttir,
Hagamel 51, Reykjavík.
Ingi Karl Ingvarsson,
Hlíðarvegi 16, Bolungarvík.
40ára
Sólrún Björg Kristinsdóttir,
Kringlunni 67, Reykjavik.
Ásta Lunddal Friðriksdóttir,
Lyngbaröi 3, Hafnaríirði.
Guðmundur Jóhann Gíslason,
Foldahrauni 39a, Vestmannaeyj-
um.
Hanna I. Sigurgeirsdóttir,
Rauðarárstíg 33, Reykjavík.
Andrés Kristjánsson,
Setbergi 16, Þorlákshöfh.
Eiríkur Rúnar Hauksson,
Stapaseli 8, Reykjavík.
Ómar Guðjónsson,
Breiðvangi 3, Hafnarfirði.
Sigrún Axelsdóttir,
Hraunbæ 134, Reykjavík.