Dagblaðið Vísir - DV - 16.09.1994, Page 32
F R ÉTTASKOTI
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast
hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert frétta- 7.000 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við
skot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn.
3.000 krónur.
Ritstiórn - Augiýsingar - Áskrift - Dreifíng: Simi 6327 00
Viðræður um Smuguna:
Frjálst,óháÖ dagblað
FÖSTUDAGUR 16. SEPTEMBER 1994.
Anægja með
niðurstöðuna
- segirEiðurGuðnason
„Ég held aö menn séu almennt
ánægöir hér meö þá niðurstöðu að
það skuli vera búið að ákveða þessar
viðræður," segir Eiður Guðnason,
sendiherra íslands í Ósló.
Utanríkisráðherrar íslands, Nor-
egs og Rússlands hafa ákveðið að
hefja embættismannaviðræður um
sameiginleg hagsmunamál á sviði
sjávarútvegs og fiskveiða. Viðræð-
umar hefjast meö fundi íslenskra og
norskra embættismanna þann 11.
október.
- sjá bls. 8
Bifreiðaskoðun
Bifreiðaskoðun íslands hefur nú í
fyrsta sinn fengið umtalsverða sam-
keppni því nýtt hlutafélag hefur ver-
ið stofnað í Hafnarfirði um rekstur
skoðunarstöðvar sem nefnist Aðal-
skoðun hf.
Aðalskoðun mun annast almenna
skoðun bifreiða á höfuðborgarsvæð-
inu. Áætlað er að hefja starfsemi í
upphafi næsta árs.
Einkaleyfi Bifreiðaskoðunar ís-
lands til skoðunar ökutækja féll nið-
ur um síðustu áramót. Þegar Aðal-
skoðun hf. tekur til starfa verður 60
ára einokun á skoðun bifreiða af-
numin.
Helgi Áss
heimsmeistari
Helgi Áss Grétarsson varð í gær
heimsmeistari í flokki skákmanna
20 ára og yngri eftir sigur á Þjóðverj-
anum Gabriel.
Mótið fór fram í Brasilíu og lauk í
gærkvöld. Þetta er einn besti árang-
ur íslendings í skák til þess en Helgi
hlaut hálfan tíunda vinning.
Hafnarfjörður:
Sérstakurfund-
ur um úttektina
Niðurstöður úttektar löggiltra end-
urskoðenda á fjármálum Hafnar-
fjarðarbæjar verða lagðar fram á
bæjarráðsfundi eldsnemma á mánu-
dagsmorgun en nýi meirihlutinn fær
skýrsluna í hendurnar um helgina.
Magnús Jón Árnason bæjarstjóri
segist hafa boðað til fundarins vegna
loforðs um að minnihlutinn fengi að
sjá skýrsluna áður en hún yrði gerð
opinber.
Brot ráðherra ber að
skoða mjög alvarlega
„Það gilda sömu reglur um ráð- un, þar sem hann var staddur á veki sérstaka athygli sína að for- félögumn sem þeir eru í. Þeir hafa
herra eirts og um aðra opinbera hóteli í Kaupmannahöfh. maður Fijálslyndra jafnaöar- fuUan rétt á þvi aö hafa þær skoð-
starfsmenn. Ef þeir bijóta af sér í Að sögn Sighvats er honum með manna er Margrét Björnsdóttir, anir sem þeir vilja."
starfi ber að skoða þeirra mál n\jög öllu ókunnugt um samþykkt aöstoðarmaður Sighvats. Sighvat- Aðspurður vill Sighvatur ekki
alvarlega. Hins vegar verða ráð- stjómar Félags frjálslyndra jafiiað- ur segist hins vegar ekki sjá neitt kveða upp dóm um það hvort Guð-
hemar að una því að þeir eru stöð- armanna um að Guðmundur Árni samhengi milli sín og Margrétar i mundur Árni eigi aö segja af sér
ugt á milli tannanna á fólki og það Stefánsson verði aðgerahreintfyr- þessu máli enda hafi hún veriö eðaekki.Áhinnbóginnsegirhann
vill oft verða þannig að allar ávirð- ir sínum dyrum en segja af sér ella komin í stjórn félagsins löngu áöur að almennt séð verði stjómmála-
ingar þeirra, bæði sannar og sem varaformaður Aiþýðuflokks- en hún gerðist aðstoöarmaður menn að vera undir slíkt búnir
ósannar, eru dregnar upp. Það er ins og ráöherra. „Ég kem af fjöllum hans. „Þaö aö setja það í samband reynist ásakanir á hendur þeim
hluti af stjórnmálunum eins og þau og hef ekkert frétt af þessari sam- við þessa samþykkt að aðstoðar- réttmætar.
gerast á íslandi í dag,“ segir Sig- þykkt enda verið erlendis í lOdaga. maður minn sé í stjórn félagsíns DV reyndi árangurslaust að ná i
hvatur Björgvinsson heilbrigðis- Eg er að heyra þetta fyrst núna.“ er út í hött. Ég stjórna ekki hvaö Margréti Björnsdóttur í gær og í
ráðherra í samtali við DV í morg- Guðmundur Arni segir að það aðstoðarmenn mínir gera í þeim morgun.
Tollerað
íMR
Það var mikið um að vera á lóð Menntaskólans i Reykjavik i gær þegar
busavigslan fór fram. Þá var að sjálfsögðu tollerað en það er gamall siður
eldri skólanema að taka nýja nemendur þannig formlega inn í skólann.
DV-mynd BG
Guðmundur Ami Stefánsson í kröppum dansi:
Ég mun að sjálfsögðu
berjast gegn þessu liði
„Það vekur athygh mína varðandi
þessa hönnuðu atburöarás að for-
maður stjórnar þessa félags er
Margrét S. Bjömsdóttir, aðstoðar-
maður Sighvats Björgvinssonar. Ég
mun að sjálfsögðu berjast gegn þessu
liði. Ég hef verið lengur í Alþýðu-
flokknum og unnið þar meira starf
en þau og ég ætla mér að vera lengur
í flokknum en þau,“ sagöi Guðmund-
ur Árni Stefánsson félagsmálaráð-
herra í samtali við DV um ályktun
stjórnar Félags fijálslyndra jafnað-
armanna um Guðmund Árna og störf
hans.
„Yfirlýsing þessara fimmmenninga
í stjórn Félags fijálslyndra jafnaðar-
manna kemur mér að sjálfsögðu á
óvart. Enda þótt þau séu ekki í hópi
minna stuðningsmanna innan
flokksins átti ég von á því að þau,
eins og hundruð flokksmanna sem
hafa verið í sambandi við mig síðustu
daga, hlustuðu á það sem ég hef sagt.
Þess í stað halda þau áfram að hamra
á því sem andstæðingar mínir hafa
borið á mig. Það sér það hver maöur
að þessi linnulausi áróður gegn mér
og óhróður sem á mig er borinn er
skipulögð aðfór. Menn hafa velt því
fyrir sér hvar miðstöðin sé. Ég veit
að hvað Hafnarfjarðarmálin varðar
kemur þetta frá þeim sjálfstæðis-
mönnum þar sem hafa orðið undir í
pólitískum átökum við mig en gerast
nú hælbítar mínir. Hvaö annaö varð-
ar þá sjá nú allir hvaðan það kem-
ur,“ sagði Guðmundur Árni.
Skóladeilan að leysast?
Samkomulag var í augsýn í deilu
Suðursveitunga og sveitarstjórnar
Skútustaðahrepps í morgun, en
skólanefnd Reykjahlíðarskóla hittist
síðar í dag og ræöir hvort niðurstað-
an sé ásættanleg.
Sveitarstjórn fundaði í gær um það
hvemig hægt væri-að leysa skóla-
deiluna í Mývatnssveit.
Samkvæmt upplýsingum DV bygg-
ist væntanlegt samkomulag á þvi til-
boði menntamálaráðuneytisins að
laun fáist greidd úr ríkissjóði fyrir
eitt stööugildi kennara í skólaselinu
í Skútustaðahreppi. Þessu tilboði
hafði sveitarstjórn áður hafnað en
það er nú aftur á borðinu eftir að
ráðherra ítrekaði það á fundi með
sendinefnd foreldra barnanna sem
ekki hafa sótt skóla í viku.
Enn hefur þó ekki veriö útilokaður
sá möguleiki að Suðursveitungar
semji við aðra sveitarstjórn um
kennslu sinna bama í öðru héraði.
LOKI
Eitt er víst! Ég segi ekki af
mér hvað sem á dynur!
Veðriöámorgun:
Vaxandi
sunnanátt
Á morgun verður vaxandi sunnan-
itt og fer að rigna vestanlands en
íægari suðvestanátt og lengst af
ijart veður austan til á landinu. Hiti
’-U stig yfir daginn.
Veðrið í dag er á bls. 36
/ v / /
/
Reimar og reimskífur
M*itÞUÍS4*n
SuAurtondsbraut 10. S. 886499.