Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.1995, Síða 32
60
MIÐVIKUDAGUR 29. MARS 1995
Þingeyringar vonast eftir sam-
einingu.
Þingeyringar á fjár-
festingarfylliríi
„Þingeyringar hafa verið á fjár-
festíngarfylliríi vegna fyrirhug-
aðrar sameiningar."
Sigurður Hafberg í DV.
Skýtur sig í fótinn
„Vondar niðurstöður skoðana-
kannana koma Ólafi Ragnari
Grímssyni úr jafnvægi. Hann
grípur þá til örþrifaráða og endar
með því að skjóta sig í fótinn."
Jón Baldvin Hannibalsson i
Alþýðublaðinu.
Ummæli
Ætlum að afla vel
„Við erum harðir á því að fara í
Smuguna þegar sá tími kemur í
vor og afla fyrir 3-4 milljarða."
Jóhann A. Jónsson i DV.
Ver titilinn í nokkur ár
„Eftir því sem fram líða stundir
þá sækja aðrir fastar að mér, en
ég held að ég búi yfir nægri orku
til að verja titilinn í allnokkur ár
í viðbót."
Garry Kasparov i Morgunblaðinu.
Strunsaði út
„Hún steytti að mér hnefann og
kallaði að sjálfstæðismönnum
yrði ýtt út úr forsætisráðuneyt-
inu. Að því búnu strunsaði hún
út úr Kolaportinu."
Guðmundur Hallvarðsson um við-
brögð Jóhönnu Sigurðardóttur.
Engin samúð
„Sá sem tekur ákvörðun um að
fara í verkfall eða einhverjar að-
gerðir býst ekki við samúð al-
mennings."
Hálfdán Hermannsson í DV.
Fossar geta verið tilkomumiklir.
Hæstu og stærstu
fossamir
Hæsti foss heims er Salto Angel
í kvísl í Carraoá, sem er þverá
Caroni í Venesúela. Heildarhæð-
in er 979 m, þar af eru í einu falli
807 m. Indíánar hafa lengi þekkt
þennan foss undir nafninu Cher-
un-Meru. Hvíti maðurinn kynnt-
ist fossinum fyrst í frásögnum
Ernesto Sanchez La Cruz árið
1910. Hann gleymdist svo þar til
bandarískur flugmaður, James
Angel, fann hann þegar hann
brotlenti þar í grennd 9. október
1937. Við hann er fossinn kennd-
ur.
Blessuð veröldin
Mestir fossa
Ef miöað er við árlegt meðal-
rennsli eru Bayoma-fossaer (áður
Stanley-fossar.) Um þá falla að
meðaltali 17.000 m3 sek. Þegar
mest var í fossinum Guaíra í Alto
Paraná fljóti á landamærum
Brasilíu og Parguay lét nærri að
rennsli væri 50.000 m3 sek. Itaipu-
stíflan sem var fullgerð 1982 hef-
ur bundið enda á frekari frægð.
Rigning og skúrir
Um landið verður allhvöss eða hvöss
sunnanátt og rigning fram yfir há-
degi en síðan suðvestan stinnings-
Veðrið í dag
kaldi eða allhvasst og skúrir. Þar
verður aftur hvöss suöaustanátt og
rigning í nótt. Um landið norðaust-
anvert er vaxandi sunnanátt, all-
hvasst og rigning síðdegis en léttir
til með suðvestan stinningskalda i
kvöld Suðaustanlands gengur í all-
hvassa suðvestanátt með skúrum
síðdegis. Veður fer hlýnandi. Á höf-
uöborgarsvæðinu gengur í allhvassa
suðvestanátt með skúrum síðdegis. í
nótt verður aUhvöss suðaustanátt.
Hiti verður á bilinu 2 til 7 stig.
Sólarlag í Reykjavík: 20.09
Sólarupprás á morgun: 6.54
Síðdegisflóð í Reykjavík: 17.46
Árdegisflóð á morgun: 6.05
Heimild: Almanak Háskólans
Veðrið kl. 6 í morgun:
Akureyri skýjað 1
Akurnes alskýjað -2
Bergsstaðir skafrenn- ingur 0
Bolungarvik snjóél 0
Keíla vikurílugvöllur rigningog súld 4
Kirkjubæjarklaustur snjókoma -1
Raufarhöfn alskýjað -1
Reykjavík súld 2
Stórhöfði súld 4
Helsinki skýjað -4
Kaupmannahöfn léttskýjað -2
Stokkhólmur skýjað 1
Þórshöfn hálfskýjað -5
Amsterdam úrkomaí grennd 2
Berlín snjókoma 0
Feneyjar skýjað 3
Frankfurt snjókoma 2
Glasgow heiðskírt -6
Hamborg snjóél -2
London léttskýjað 0
LosAngeles heiðskirt 17
Lúxemborg snjóélásíð. klst. -1
Mallorca léttskýjað 13
Montreal heiðskírt 1
Nice léttskýjað 11
Paris skúrásíð. klst. 4
BrynjaBjörkHarðardóttir, fegurðardrottning Suðurnesja:
Góðir vinir mínir
studdu við bakið á mér
ferð meö skólanum til Taílands í
janúar og segír hún aö sú ferð hafi
verið spennandi. Það var þegar hún
i ■;; kom úr þessari ferð að hún var .
beðin að taka þátt í keppninni.
Brynja scgir að hún hafi einnig
verið beðin um að taka þátt i
keppninni í fyrra en þá hafi hún
; ekíd; verið tilbúin. Hún ;slarfar
þessa dagana í nokkrum hluta-
störfum, Sólhúsinu, Nýja bakarí-
inu og hjá Kynnisferðum. Brypja
segir aö draumurinn sé að leggja
fyrir sig tannlækningar og læra
frönsku. „Ég ætla að fara til Parísar
í haust til að læra frönsku. Fransk-
an er heillandi mál og hefur mér
„Það var frábær stemning í hús- Brynja Björk Harðardóttir. gengið vel að læra hana. Ég veit
inu og gaman að sjá hvað fólk í DV-mynd Ægir Mór ekki hvað ég ætla að dvelja lengi í
salnum tók mikinn þátt í þvi sem París, það verður aö koma í ljós,“
var að gerast. Þama voru góðir Langbest og fékk mér eina risasam- Áhugamál Brynju eru íþróttir og
vinirmínirsemstudduvelviðbak- loku með öllu tilheyrandi og um tónlist, en hún stundar píanónám
ið á mér.“ kvöldiö fór ég á Hard Rock Café og í Tónlistarskóla Njarðvíkur. For-
Brynja segist hafa tekið það ró- fékk mér langþráðan ís. eldrar Brynju eru Höröur Karlsson
lega á sunnudeginum: „Eg svaf til Brynja Björk er fædd og uppaiin og Anna Sigurðardóttir og á hún
hádegis. Eftir það komu margir í Njarðvík og er hún stúdent af sjö systkini, þrjár alsystur og fjög-
gestir í heimsókn og ég fékk heil- málabraut írá Fjölbrautaskóla urhálfsystkini,þarafereinnbróð-
mikið af blómum. Síðan fór ég á Suðurnesja. Hún fór í útskriftar- ir og þrjár systur.
Ægir Már Kárason, DV, Suðumesjum:
„Það var gaman að taka þátt i
keppninni. Auðvitað langar alla til
aö sigra og þaö var virkilega gaman
að standa uppi sem sigurvegari, en
þetta var erfitt á köflum, en nú sé
ég ekki eftir þeim tíma sem fór í
keppnina,“ segir Brynja Björk
Maöur dagsins
Harðardóttir, 19 ára Njarövíkur-
mær, en hún var kjörin fegurðar-
drottning Suðurnesja í Stapanum
síðastliðið laugardagskvöld.
Myndgátan
Lausngátunr. 1182:
Herðatré
Myndgátan hér að ofan lýsir hvorugkynsorði
DV
Blak og
knattspyrna
Þótt varla viðri til knattspyrnu
þessa dagana þá hefst Reykjavík-
urmótíð í knattspymu í dag með
leik Fylkis og Víkings. Reykjavík-
urmótið hefur verið í mikilli lægð
undanfarin ár en nú á að reyna
að hefja það til vegs og virðingar
og er það vel því það ætti að vera
stolt hvers félags í Reykjavík að
íþróttir
geta hampað titlinum Reykjavík-
urmeistari. Leikurinn hefst kl.
20,00.
Úrslitakeppnin i blaki er hafið
og verða í kvöld leiknir fjórir leik-
ir í undanúrslitum í karla- og
kvennaflokki. Hjá körlum keppa
HK - KA og Þróttur R - ÍS og hefj-
ast leikirnir kl. 18.30. Hjá konum
leika kL 20.00 HK - ÍS og kf 20.30
Víkingur - KA.
Skák
Danski stórmeistarinn Curt Hansen
var einn efstur á Norðurlanda- og svæða-
mótinu á Hótel Loftleiðum eftir 6 umferð-
ir - hafði hlotið 5 vinninga. Sjöunda
umferð var tefld í gærkvöldi en áttunda
umferð hefst kl. 16 í dag, miðvikudag.
Þessi staða frá mótinu er úr skák Curts
við landa sinn, Sune Berg Hansen. Curt
hafði hvítt í góðri stöðu og vann laglega
úr henni.
8
7
6
5
4
3
2
1
23. b6! axb6 Peðið var komið hættulega
langt. 24. Db5+ Kf8 25. Dxb3 og hvitur
hefur unnið mann. Eftir 25. - Hxg3 26.
Hxd8 + Dxd8 26. Db4 + gafst svartur upp.
Jón L. Árnason
Bridge
I gær sagði frá úrspili danska spilarans
Peters Lund sem fékk verðlaun á Dan-
merkurmeistaramótinu í sveitakeppni,
en í dag segir frá spili sem einnig fékk
verðlaun fyrir úrspil. Þar var sagnhaf-
inn, Seren Bronée í aðalhlutverkinu, en
hann var í næsta vonlitlum þremur
gröndum eftir þessar sagnir. Vestur var
gjafari og AV á hættu:
♦ 97
V 1098763
♦ 874
+ K8
Vestur Norður Austur Suður
Binderk. Kampm. Lund Bronée
14 Dobl Pass 2A
Pass 34 Pass 3 G
p/h
Vestur spOaði út tígli í upphafi og sagn-
hafi fékk slaginn heima á tfuna. Bronée
valdi þessa einu innkomu heim tU þess
að spila laufdrottingunni og hleypa yfir
tU austurs og það leit ekki út fyrir að
vera leiðin tU vinnings í þessari lauflegu.
Lund drap á kónginn og spdaöi tígli sem
vestur drap á ás og spUaði þjartagosa.
Nú virðist sem Bronée hafi verið búinn
að gera sér fullkomlega grein fyrir því
hvar öU spilin lágu því hann spUaði sem
á opnu borði. Hann setti þjartadrottning-
una og síðan spUaði hann lauftíunni í
þeirri von að andstæðingamir myndu
drepa á gosann og gefa sagnhafa inn-
komu á laufníuna. Vestur gaf þann slag
réttUega og þá voru aUir laufslagimir
teknir og tveimur spöðum hent heima.
Vestur henti tveimur tíglum. Ef Bronée
hefði næst tekið hjartaás og spUað hjarta,
hefði vestur eflaust sett kónginn í ásinn.
Þess vegna var hjartafimmu spUað úr
blindum, austur átti slaginn á níuna og
spUaði hjarta áfram. Sagnhafi drap, spU-
aði spaöa á tíuna og vestur varð síðan
að spUa frá háspili í spaða og gefa níunda
slaginn.
ísak Örn Sigurðsson
* KD5
V KG4
♦ Á953
+ G73
* Á86
V ÁD5
♦ D2
+ Áio:
♦ G104
»2
♦ KG1(
+ D96