Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.1996, Side 2
2
MIÐVIKUDAGUR 18. SEPTEMBER 1996
Fréttir
Tollgæslan í Keflavík fann mikið af amfetamíni og sterum í sælgætisdós:
Kraftlyftingamaður með
á þriðja þúsund töflur
- mikið um að menn reyni slíkan innflutning, segir fulltrúi Tollgæslunnar
Dy Suðurnesjum:
Fíkniefnadeild Tollgæslunnar á
Keflavíkurflugvelli fann í fórum þrí-
tugs manns 2266 töflur sem meðal
annars innihalda fíkniefni. Maður-
inn var að koma ásamt eiginkonu
sinni frá Mallorca aöfaranótt
þriðjudags.
Maðurinn er keppnisíþrótta-
maður í kraftlyftingum og
sagðist flytja töflumar inn
sjálfur til þess að gefa sér
aukið þol, snerpu og orku til
þess að létta sér erfiðið við
æfingarnar. Hann faldi
hluta af töflunum neðst í
kakódós og fyllti hana
síðan af kakói. Afgang-
inn af töflunum setti
hann í innsiglaða sæl-
gætisdós sem fannst við nánari leit
en þyngdin á dósinni var önnur þeg-
ar tollgæslumenn tóku hana upp úr
töskunni. „Maðurinn var
tekinn í úirtaksskoðun
og farangur hans sett-
ur í gegnumlýsingar-
tæki. Þá kom í ljós að
hann hafði í fórum sínum 2266 töfl-
ur sem bæði innihalda amfetamín
og önnur vaxtaaukandi efni
sem meðal annars örva
vaxtarhraða vaxtar-
ræktarmanna og lyft-
ingamanna. Það er
töluvert um að menn
reyni að flytja slík
efni inn,“ sagði Gott-
skálk Ólafsson, aðal-
deildarstjóri ToU-
gæslunnar á
Keflavíkurflug-
veUi, við DV en
toUgæsIan hef-
ur yfir að
ráða góðum
| tækjakosti.
Maðurinn
hefur ekki
áður komið
við sögu
Hluti þeirra efna sem Tollgæslan á Keflavíkurflugvelli gerði
upptæk aðfaranótt þriöjudags. DV-mynd Ægir Már
hjá ToUgæslunni á Keflavíkurflug-
veUi.
Á manninum ftmdust meðal ann-
ars 1043 töflur af Efedríni, sem er
amfetamínskylt efni, en töflurnar
eru veikari en það sem gengur á
götunum en notaðar meðal annars
af íþróttamönnum tU þess að ná
meiri hraða og orku. Efedrín er
talið auka vinnugetu hjartans og
við það hækkar blóðþrýstingur og
það örvar jafnframt öndun. Einnig
er talið að lyfið hafi örvandi áhrif á
miðtaugakerfið. Lyfið er lyfseðUs-
skylt efni hérlendis samkvæmt
reglugerð. Einnig fannst í fórum
mannsins steralyfið Winstrol sem
er þekkt meðal íþróttamanna og oft
misnotað og hafa margir íþrótta-
menn í heiminum verið settir í löng
bönn vegna misnotkunar á því.
„Það er starfandi vinnuhópur,
sem samanstendur af forustumönn-
Stillansar fuku niöur fyrir utan þetta hús i Síöumúla i gær. Mikiö hvassviöri gekk yfir iandiö í gær og voru vindhviö-
urnar allt aö 60 hnútar. f höfuðborginni náöi meöalveöurhæöin 9 vindstigum. DV-mynd S
Mestu vindhviöurnar í gær allt aö 60 hnútar:
Skemmdir og tafir
Stuttar fréttir
Helgarpósturinn í hættu
Erfiðleikar eru í útgáfu Helg-
arpóstsins og óvíst um að blaöið
komi út á morgun, að því er Al-
þýðublaðið segir.
Alþýðuflokkurinn
Síðasti þingflokksfundur Al-
þýðuflokksins var haldinn í gær
en eftir aö þingflokkar Alþýðu-
flokks og Þjóðvaka hafa samein-
ast nefnist þingflokkurinn Þing-
flokkur jafnaðarmanna. Alþýðu-
blaöið segir frá.
Kínverjar í heimsókn
Átta manna sendinefnd hátt-
settra embættismanna er stödd
hér á landi vegna fyrsta fundar
íslensk-kínversku viðskiptavið-
ræðunefndarinnar. Kinverjamir
ræða samstarf á sviði sjávarút-
vegs, jarðvarma og kínverskt ál-
ver á íslandi, segir í frétt frá ut-
anríkisráðuneytinu.
Hússtjórnarnám vinsælt
60 stúlkur hafa sótt um að
komast á námskeið í Hússtjórn-
arskólanum í Reykjavík, en að-
eins er hægt að taka 24 inn í
einu. Áhugi hefur aukist á hús-
mæðranámi undanfarið, að þvi
er segir í Morgunblaðsfrétt.
Verkalýösfélög
vilja sameinast
Verkamannafélagið Hlíf og
Verkakvennafélagið Framtíðin
ræðast þessa dagana við um
sameiningu félaganna. Stefnt er
að sameiningu haustið 1997.
Morgunblaðið segir frá
Stúdentaráð
Stúdentaráð mótmælir hug-
myndum menntamálaráðherra
um að hann skipi rektor Háskól-
ans. Morgunblaðið segir frá.
Mikið hvassviðri gekk yfir sunn-
an- og vestanvert landið í gær.
Mestu vindhviðumar voru allt að 60
hnútar en í Reykjavík náði meðal-
vindhæð 9 vindstigum, að sögn Veð-
urstofunnar.
Veðrið olli töfum á skipaumferð
og á Reykjavíkurflugvelli var um-
ferð í lágmarki. Flugumferð í Kefla-
vík raskaðist hins vegar ekkert
vegna veðursins.
Tvö flutningaskip, Mælifell og
Víkurtindur, þurftu að bíða í marg-
ar klukkustundir á ytri höfninni í
Reykjavík áður en hættulaust var
talið að sigla þeim inn í Sundahöfn.
Þá varð Stapafell að fresta þvi að
leggjast að Eyjagaröi.
Þá var Fagranesið veðurteppt í
Þorlákshöfn frá hádegi í gær en
ekki var talið hættulaust að sigla út
til Vestmannaeyja fyrr en í nótt.
Milli 30 og 40 farþegar vom stranda-
glópar um borð í skipinu í um 15
klukkustundir.
Veðrið í gær var mesta skaðræð-
isveður fyrir gróður í langan tíma.
Verst urðu úti svæði á Mývatnsör-
æfum, Hólsfjöllum og Hólasandi.
-RR
um íþróttahreyfingarinnar hér á
landi og öðrum ráðamönnum, að
samræma þessi ólöglegu efni sem
íþróttamenn eru að misnota - sam-
ræma refsingar lögum um ávana- og
fíkniefni. Að refsingarnar verði
skyldar því sem er að gerast í ná-
grannalöndunum," sagði Elías
Kristjánsson, fulltrúi hjá fíkniefna-
deild Tollgæslunnar á Keflavíkur-
flugvelli. -ÆMK
Sandreyður
Síödegis í gær sáu menn rúmlega
15 metra sandreyði I höfninni í
Sandgerði. Hvalurinn fylgdi bátum
inn í höfnina og virtist vera áttavillt-
ur þegar hann ætlaöi út úr höfninni
aftur og strandaöi síöan viö norður-
garöinn og veltist þar um í fjöru-
boröinu. Mörg Ijót sár sáust á hvaln-
um sem virtist vera kvalinn. Mikill
fjöldi fólks kom á staölnn til aö fylgj-
ast með hvalnum. Menn frá björgun-
arsveitinni Sigurvon í Sandgeröi
fóru á nokkrum bátum og náöu aö
hjálpa honum út úr höfninni.
DV-mynd-ÆMK
Nöfn þeirra
látnu
Konan sem lést af slysförum
undir Hafnarfjalli í fyrrakvöld
hét Ragnhildur Petra Helgadótt-
ir. Hún var 27 ára gömul. Ragn-
hildur Petra lætur eftir sig sam-
býlismann og tvo syni, 7 ára og 7
mánaða, en sá yngri slasaðist al-
varlega í slysinu en er talinn úr
lífshættu.
Maðurinn sem lést í brunan-
um í Keflavík í fyrrinótt hét Ei-
ríkur Ellertsson, 35 ára að aldri,
og var til heimilis að Ásabraut
16. -RR
Þú getur svarað þessari
spurningu með því að
hringja í síma 9041600.
39,90 kr. mínútan
Já 1 Nei 2
j rödd
FOLKSINS
904 1600
Er réttlætanlegt að láta
grunnskólanema
kaupa námsgögn?
Kvikmyndin Djöflaeyjan frumsýnd 3. október:
Allt í húfi og allir heimta sigur
- segir Friörik Þór Friöriksson leikstjóri
„Maður er óneitanlega orðinn
mjög spenntur. Það eru miklar vænt-
ingar enda tökur búnar að standa
yfir í allan vetur og þetta er stærsta
og dýrasta verk sem við höfum gert.
Það má segja að það sé allt í húfi því
þetta er eins og að stilla upp dýru
knattspyrnuliði og allir heimta sig-
ur,“ segir Friðrik Þór Friðriksson,
kvikmyndagerðarmaður og leik-
stjóri, viö DV um nýjustu mynd sína
Djöflaeyjuna, sem frumsýnd veröur
3. október nk.
Myndin verður frumsýnd í þrem-
ur kvikmyndahúsum samtímis og
ríkir mikil eftirvænting eftir henni.
„Það eru um tvö þúsund manns
sem komið hafa nálægt myndinni.
Það er aukin spenna dag frá degi í
mannskapnum og þetta nálgast mjög
hratt. Viö erum alltaf að sjá meira og
meira af myndinni. Við erum að
hljóðblanda hana núna og það er allt-
af mjög spennandi. Það er búið að
klippa hana alla og það var allt gert
í tölvum sem er auðvitað mun fljót-
virkara," segir Friðrik Þór. -RR