Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.1996, Page 16
16
MIÐVIKUDAGUR 18. SEPTEMBER 1996
íþróttir
Golf:
Herborg og
Leifur unnu
Síðasta stigamót Golfsam-
bands íslands á þessu ári var
haldið í Grafarholti á sunnudag-
inn. Leiknar voru 36 holur á
einum degi. I kvennaflokki sigr-
aði Herborg Arnarsdóttir, GR, á
147 höggum. Herborg lék mjög
gott golf og jafnaði vallarmetið
þegar hún lék seinni 18 holurn-
ar á 72 höggum af aftari teigum
kvenna. Ólöf María Jónsdóttir,
GK, varð í öðru sæti á 154 högg-
um og Þórdis Geirsdóttir, GK,
þriðja á 155 höggum.
Hjá körlunum var það ís-
landsmeistarinn Birgir Leifur
Hafþórsson, GL, sem sigraði
með glæsibrag. Birgir lék mjög
vel og kom inn á 141 höggi. Þor-
kell Snorri Sigurðsson, GR, kom
næstur á 148 höggum og Eyja-
maðurinn Þorsteinn Hallgríms-
son varð þriðji á 149 höggum.
Hola í höggi
hjá Keili
Um helgina var opið golfmót
hjá Golfklúbbnum Keili í Hafn-
arfirði. Án forgjafar sigraöi
Ólafur Þór Ágústsson, GK, á 74
höggum. Tryggvi Traustason,
GK, varð annar á 74 og Gunn-
steinn Jónsson, GK, þriðji á 75
höggum.
Gunnsteinn gerði sér lítið fyr-
ir og fór holu í höggi á 4. braut
með glæsilegu höggi, slegnu
með áttu járni.
í keppni með forgjöf sigraði
Baldur Baldursson, GKG, með
67 högg, Guðlaugur M. Einars-
son, GR, varð annar með 68 og
Guðbrandur Sigurbergsson, GK,
þriðji með 69 högg.
Þá var keppt í flokki atvinnu-
manna og þar sigraði Sigurður
Péturssson á 70 höggum. Með
sama höggafjölda í öðru sæti
var Úlfar Jónsson og Magnús
Birgisson varð þriðji með 80
högg.
Skvass:
Evrópukeppni
smáþjóða
íslenska landsliðið í skvassi
tekur þátt í Evrópukeppni smá-
þjóða sem fram fer í Búdapest í
Ungverjalandi í þessari viku. ís-
lendingar senda bæða karla- og
kvennalið til keppni.
í karlaliðinu eru Kim Magnús
Nielsen, Magnús Helgason, Sig-
urður G. Sveinsson og tveir ný-
liðar, Hjálmar Björnsson 17 ára
ísfirðingur og Jón Auðunn Sig-
urbergsson. í kvennaliðinu eru
Hrafnhildur Hreinsdóttir, Elín
Blöndal, Ásta Ólafsdóttir og
Rósmi'nda Baldursdóttir.
Allir leikirnir
klukkan 17.15
Það sem birtu er farið að
*■ bregða hefur mótanefnd KSÍ
ákveðið að allir leikirnir í
lokaumferð 2. deildar karla
skuii hefjast klukkan 17.15 á
föstudag í stað klukkan 18.
-GH
Evrópukeppni kvenna á Laugardalsvelli:
Ekkert smeykar við
Evrópumeistarana
- segir Vanda Sigurgeirsdóttir fyrirliði
„Það er engin spurning að þetta
verður mjög erfiður leikur, enda er
ekki við öðru að búast. Þjóðverjar
eru núverandi Evrópumeistarar og
léku til úrslita í heimsmeistara-
keppninni svo við eigum á brattann
að sækja,“ segir Vanda Sigurgeirs-
dóttir, fyrirliði íslenska kvenna-
landsliðsins í knattspyrnu, en í
kvöld kl. 20 mæta stúlkurnar Þjóð-
verjum á Laugardalsvelli í fyrri leik
liðanna um sæti í úrslitum Evrópu-
keppninnar.
íslenska liðið lék tvo æfingaleiki
gegn Þjóðverjum í sumar og tapaði
báðum, 8-0 og 3-0.
„Við erum ekkert smeykar fyrir
þennan leik. Við verðum að byggja
leik okkar á sterkum vamarleik og
reynum síðan að læða inn skyndi-
sóknum. En við ætlum að leggja
okkur allar fram í þessum leik og ég
vona að áhorfendur komi til með að
standa vel við bakið á okkur.
Ég er ekki viss um að almenning-
ur geri sér grein fyrir því hversu
nálægt toppnum við erum. Við
erum að berjast um að komast í hóp
8 bestu landsliða Evrópu og ég veit
ekki um marga aðra íslenska
íþróttamenn sem standa í þeim
sporum í dag. KSÍ hefur staðið fyr-
ir markvissri uppbyggingu í
kvennaboltanum og ég vona að þeir
sem stýra úthlutunum úr hinum
ýmsu sjóðum fari að standa við bak-
ið á hópíþróttum líkt og gert hefur
verið á hinum Norðurlöndunum,"
sagði Vanda að lokum.
Þýska landsliðið lék hér tvo leiki
sumarið 1986 og vann, 4-1 og 5-0.
Með í för nú eru þrír leikmenn sem
skoruðu fimm þessarra marka, Hei-
di Mohr og Martina Voss sem enn
leika með liðinu og Silvia Neid sem
nú er aðstoðarþjálfari. -ih
Fjórir úr 1. deild
verða í banni
Fjórir leikmenn úr 1. deildinni í
knattspyrnu verða í leikbanni í 17.
og næstsíðustu umferðinni á laugar-
daginn. Það eru Stefán Þórðarson,
ÍA, Hermann Hreiðarsson, ÍBV,
Gestur Gylfason, Keflavik, og Goran
Kristófer Micic, Stjörnunni.
Átta leikmenn úr 2. deild verða í
banni í lokaumferðinni þar á föstu-
daginn. Þar af eru þrír úr Völsungi,
Arnar Bragason, Ásmundur Arn-
arsson og Hallgrímur Guðmunds-
son en Völsungar þurfa að vinna
Skallagrím til að eiga möguleika á
að forðast fall í 3. deild. Hinir eru
Páll Pálsson og Þórir Áskelsson úr
Þór, Heiðar Sigurjónsson úr Þrótti
R., Alfreð Karlsson úr Skallagrímur
og Axel Ingvarsson úr Leikni.
Gróttumenn fengu þungar
refsingar
Gróttumenn fengu þungar refs-
ingar en fjórum leikmönnum, þjálf-
ara og varamanni var sýnt rauða
spjaldið í leik liðsins gegn Dalvík í
3. deild um helgina. Félagið var
dæmt í 25 þúsund króna sekt og þeir
Björgvin Finnsson og Páll Líndal
fengu 3ja leikja bann, Börkur Ed-
valdsson, Kristján V. Björgvinsson
og Sverrir Herbertsson þjálfari
tveggja leikja bann og Haukur
Bragason eins leiks bann. -VS
- og átta úr 2. deildinni
/ kvöld
Nissandeildin í handbolta:
Stjaman-ÍR..............20.00
Fram-HK ................20.00
Haukar-KA...............20.00
Selfoss-Afturelding.....20.00
Valur-FH ...............20.00
ÍBV-Grótta .............20.00
Undankeppni EM í knattspymu:
Ísland-Þýskaland .......20.00
Kenny Smith
til Detroit
Lið Detroit Pistons fékk góðan
liðsstyrk í gær fyrir komandi
keppnistímabil í NBA-deildinni í
körfuknattleik. Liðið fékk þá
Kenny Smith frá Houston
Rockets. Smith er 31 árs gamall
og hefur undanfarin sex ár leik-
ið með Houston. í fyrra skoraði
hann að jafnaði 8,5 stig í leik og
átti 3,6 stoðsendingar.
Smith hefur einnig leikið með
Sacramento Kings og Atlanta
Hawks en ferill hans í NBA
spannar 9 ár. Á þessum 9 árum
er Smith með 13,2 stig að meðal-
tali í leik og 5,7 stoðsendingar.
Bassett til City
í gærkvöldi voru allar líkur á
því að Dave Bassett yrði næsti
framkvæmdastjóri hjá
Manchester City. Bassett á að
hafa náð samkomulagi um ráðn-
inguna við Francis Lee stjómar-
formann félagsins. Mönnum
finnst orðið afar brýnt að ráða
mann í brúna enda gengur ekki
of vel hjá liðinu um þessar
mundir.
Royle fær milljarð
Joe Royle, framkvæmdastjóri
Everton, fékk i gær einn milljarð
til leikmannakaupa. Það var Pet-
er Johnson, stjórnarformaður fé-
lagsins, sem tilkynnti þetta eftir
stjórnarfund. Royle mun fyrst
bera víurnar í Dean Holdsworth
hjá Wimbledon. -JKS
Birkir Kristinsson hefur ekki veriö í
náöinni hjá Brann síöan hann lék
meö íslenska landsiiöinu gegn
Tékkum á dögunum.
Þjálfari Brann heldur landsliðsmarkverðinum úti í kuldanum:
„Ég er mjög óánægður
með þetta ástandM
- segir Birkir Kristinsson sem ætlar að bíta á jaxlinn
Birkir Kristinsson, landsliðs-
markvörður í knattspyrnu, hefur
ekki verið í náðinni hjá þjálfara
norska liðsins Brann síðan Birkir
tók þá ákvörðun að taka landsleik-
inn við Tékka fram yfir deildarleik
fyrir um hálfum mánuði.
Þjálfarinn sagði við Birki að
hann tæki afleiðingunum ef hann
spilaði með íslenska landsliðinu
gegn Tékkum og sú hefur reyndin
orðið. Birkir hefur síðan mátt gera
sér að góðu að verma varamanna-
bekk Brann-liðsins.
,,Eg er óánægður með þetta
ástand. Að manni sé kippt út úr lið-
inu fyrir það eitt að keppa fyrir
hönd þjóðar sínnar er alls ekki nógu
gott. Ég ræddi við þjálfarann áður
en ég hélt til Tékklands til móts við
íslenska landsliðið. Hann sagði það
alfarið mína ákvörðun að spila um-
ræddan leik og ég tæki þeim afleið-
inum sem því fylgdu, jafnvel að ég
myndi verma bekkinn það sem eftir
væri tímabilsins. Ég gat ekkert sagt
en ég hef mikinn metnað að spila
með landsliðinu. Það réð ákvörðun
minni og eins ræddi ég við Loga
Ólafsson landsliðsþjáifara um þetta
mál,“ sagði Birkir Kristinsson í
samtali við DV í gærkvöid.
Brann hefur vegnað ágætlega að
undanförnu, unnið þrjá leiki í röð
en hefur verið að fá sig mikið af
mörkum. Þremur umferðum er
ólokið í deildinni en liðið er enn þá
með á Evrópumótinu.
Ætlar að klára samninginn
„Það er leiðinlegt að þurfa lenda í
þessu. Það voru tveir leikir á sama
tíma, deildarleikur hjá Brann og
leikurinn við Tékka. Ég tók síðara
kostinn og stend og fell með honum.
Maður verður bara að bíta á jaxlinn
og berjast áfram fyrir því að endur-
heimta sæti sitt í markinu. Samn-
ingur minn við Brann er til loka
næsta keppnistímabils og ég ætla að
klára hann, nema eitthvað óvænt
komi upp á. Ég ætla að ræða um
framhald þessa ástands við þjálfar-
ann á næstu dögum,“ sagði Birkir.
-JKS
HANDBOLTINN A LENGJUNNI!
Fram - HK
Haukar - KA
Setfoss - Afturetding
Stjaman • ÍR
Valur - FH
ÍBV > Grótta
1,20 6,15 »1 n
1,65 4,90 1,95
2,55 5,85 1,30 M
1,20 6,15 3,00
1,65 4,90 1,95
1,15 6,25 3,30 1
MIÐVIKUDAGUR 18. SEPTEMBER 1996
17
íþróttir
IBV ætlar \ meiðyrða
mál við Lengjuna
- brigsla okkur um óheiöarleika, segir Jóhannes Ólafsson
Lítil klausa aftan á leikskrá
Lengjunnar sem kom út í gær virð-
ist ætla að draga mikinn dilk á eft-
ir sér. Forráðamenn Lengjunnar
ákváðu að leikur ÍBV og ÍA í 1.
deildinni í knattspyrnu sem fram
fer á laugardaginn yrði ekki á
Lengjunni og útskýrðu það á þenn-
an hátt:
„Þar sem heyrst hefur að
leikmenn ÍBV hafi sagt
„best væri að tapa fyrir ÍA
til að komast í Evrópu-
keppni“ höfum við ákveðið
að hafa þennan leik ekki á
Lengjunni. Við þurfum að
vera 100% öruggir um að úr-
slit séu ekki ákveðin fyrir-
fram og að leikur á Lengj-
unni sé f alla staði heiðar-
lega framkvæmdur."
Förum í meiöyrðamál
„Það er alveg ljóst að við förum
lengra með þetta og í meiðyrðamál
við Lengjuna. Það er með ólíkind-
um að fyrirtæki sem vinnur fyrir
íþróttahreyfinguna í landinu og
veltir hundruðum milijóna skuli
geta brigslað mönnum um óheiðar-
leika á þennan hátt,“ sagði Jóhann-
es Ólafsson, formaður knattspyrnu-
ráðs ÍBV, í samtali við DV í gær.
„Maður veit þess dæmi erlendis
frá að menn velti sér upp úr svona
hlutum eftir leiki en að tilkynna
þetta fyrirfram og á þennan hátt er
hreinn og beinn dónaskapur. Það
er ekki bara verið aö væna leik-
menn ÍBV um óheiðarleika heldur
stjórnarmenn félagsins og Vest-
mannaeyinga almennt. Það sýður
svo sannarlega á okkur," sagði Jó-
hannes.
Of miklir hagsmunir í húfi
„Við teljum að Eyjamenn haíi
sjálfir kastað upp boltanum með
sínum ummælum og nú erum við
að varpa honum aftur til Eyja. Mál-
ið er að Lengjan er dauöans alvara
og við getum ekki tekið nokkurn
séns á því spumingarmerki séu á
leik á henni. í þessum leik eru ein-
faldlega of miklir hagsmunir í húfi
hjá báðum liðum tii að við getum
haft hann á Lengjunni. Hms vegar
trúi ég ekki öðru en Eyjamenn berj-
ist af öllum kröftum i þessum leik,
sem öðrum, eins og þeir eru frægir
fyrir,“ sagði Sigurður Baldursson,
framkvæmdastjóri íslenskra get-
rauna og Lengjunnar, við DV. -VS
Stockton áfram
hjá Utah Jazz
John Stockton, stoðsendingar-
meistari og sá leikmaður sem
stolið hefur flestum boltum í
NBA, hefur ákveðið að gera nýj-
an þriggja ára samning við félag
sitt Utah Jazz. Það var blaðið
Salt Lake Tribune sem skýrði frá
þessu. Þessi nýi samningur mun
gefa Stockton, sem er 34 ára, um
einn milljarð króna. Larry Mill-
er, eigandi félagsins, lýsti yfir
mikilli ánægju með að Stockton
yrði áfram í herbúðum liðsins.
Hann á að baki 12 tímabil í NBA
og aðeins misst úr fjóra leiki.
-JKS
Langferð fram undan hjá ÍA:
Sextíu tíma
ferð til Eyja
Guðmundur til Hamborgar
Guðmundur Bragason, úr Grindavík og landsliðsmaður í körfuknattleik, skrif-
ar í dag undir eins árs samning við þýska 2. deildar liðið BCJ Hamburg. Guð-
mundur hefur dvalið í Hamborg síðustu daga og æft með liðinu. Hann vonast til
að leika með liðinu bikarleik strax í kvöld. „Mér líst vel á þetta lið og það er hug-
ur í mönnum og stefnan er tekin á 1. deildina. Liðið var nálægt því að fara upp í
vor en væntingar til liðsins í vetur eru talsverðar. Það er mikill áhugi á körfu-
bolta hér og það er allt lagt í sölumar að liðinu megi vegna sem best í vetur og
eru þrír útlendingar á mála hjá liðinu auk mín. Ég er ánægður með samninginn,
sem ég skrifa undir í dag, og það verður spennandi að geta núna alfarið einbeitt
sér að körfuboltanum," sagði Guðmundur Bragason í samtali við DV. -JKS
Það blasir langt ferðalag við
Skagamönnum sem eiga að leika
við ÍBV í Vestmannaeyjum á laug-
ardaginn í næstsíðustu umferð 1.
deildarinnar i knattspyrnu.
Samkvæmt reglum KSÍ má ekki
treysta á flug á leikdegi í lokaum-
ferðum deildarinnar og auk þess
hefur verið meira og minna ófært
með flugi til Eyja að undanförnu og
lítið útlit fyrir að úr rætist.
Síðasta skipsferð til Eyja fyrir
leik er með Fagranesinu frá Þor-
lákshöfn á hádegi á föstudag. Með
þeirri ferð þurfa leikmenn ÍA og
dómaratríóið að fara, svo framar-
lega sem þeir komast ekki með flugi
fyrr um morguninn.
Leikurinn er klukkan 14 á laugar-
dag. Fagranesið, sem leysir af Herj-
ólf á meðan hann er í viðgerð, fer
næst eftir það frá Eyjum eftir há-
degi á sunnudag og er áætlaður
komutími til Þorlákshafnar klukk-
an 19 um kvöldið. Þá eiga Skaga-
menn eftir tveggja tíma akstur
heim. Það bendir því allt til þess að
ferðin til Eyja taki þá í kringum 60
klukkutíma. Hún gæti styst eitthvað
ef úr rætist með flug en horfumar á
því eru ekki góðar.
Sextíu tíma ferö hjá ÍBV
vegna KR-leiksins
Eyjamenn þurftu að takast á
hendur svipað ferðalag þegar þeir
léku við KR á sunnudaginn. Þá var
ófært með flugi til Reykjavíkur, en
þeim tókst þó að skjótast með ferju-
flugi upp á Bakka í Landeyjum á
laugardagsmorgninum og óku það-
an til Reykjavíkur. Leikurinn var
síðan klukkan 16 á sunnudag. Á há-
degi á mánudag lögðu þeir af stað
með Fagranesinu frá Þorlákshöfn
um hádegi en komu ekki til Eyja
fyrr en klukkan 19 um kvöldið eftir
sjö tima siglingu í mótbyr og vit-
lausu veðri.
-VS
ENGLAND
Deildabikarinn
2. umferð - fyrri leikir
Luton-Derby..................1-0
Preston-Tottenham............1-1
Scarborough-Leicester........0-2
Bamsley-Gillingham...........1-1
Brentford-Blackburn..........1-2
Bury-Crystal Palace .........1-3
Charlton-Burnley ............4-1
Fulham-Ipswich ..............1-1
Huddersfield-Colchester .....1-1
Lincoln-Man. City............4-1
Oldham-Tranmere..............2-2
Port Vale-Carlisle...........1-0
Stockport-Sheff. Utd ........2-1
Watford-Sunderland ..........0-2
m ÞÝSKALAND
Karlsruhe-Stuttgart . . . .... 0-2
Berthold (11.), Elber (86.)
Stuttgart 6 5 10 17-2 16
Bayern 6 4 2 0 13-5 14
Dortmund 6 4 11 14— 13
£*■ SKOTLAND
Deildabikar - 8-liða úrslit
Dundee-Aberdeen...............0-2
Dunfermline-Patrick...........2-0
Hearts-Celtic.................1-0
Handboltinn af staö í kvöld:
Stórleikur í Firðinum
- þegar Haukar fá bikarmeistara KA í heimsókn
Handboltinn fer að rúlla fyrir al-
vöru í kvöld en þá hefst keppni í 1.
deild karla, Nissandeildinni, með
heilli umferð.
Stórleikur kvöldsins verður að telj-
ast viðureign Hauka og bikarmeistara
KA í Hafnarfirði. Báðum þessum lið-
um er spáð velgengni í vetur. Hauk-
arnir eru með nánast sama mannskap
og í fyrra og KA menn mæta án efa
sterkir til leiks. KA hefur reyndar
misst Patrek Jóhannesson úr sinum
herbúðum til Essen auk Helga Arason
til Noregs og Atla Þór Samúelsson í
Þór. Á móti hefur liðið fengið Rússann
Serguei Ziza og Þorvaldur Þorvalds-
son er kominn aftur frá Danmörku.
Vinnur FH í fyrsta sinn á Hlíð-
arenda?
Islandsmeistarar Vals fá FH-inga í
heimsókn á Hlíðarenda. Leikir þess-
ara liða hafa ávallt verið jafnir og
spennandi en FH-ingar eiga þó enn eft-
ir að vinna sigur á heimavelli Vals.
Valsliðið hefur orðið fyrir mikilli
blóðtöku. Dagur Sigurðsson og Ólafur
Stefánsson eru gengnir til liðs við
Wúppertal og Sigfús Sigurðsson í Sel-
foss og fróðlegt verður að sjá hvort
Valsmenn koma enn og aftur með
unga og efnilega leikmenn fram á
sjónarsviðið.
Einar Gunnar og Sigurjón á
gamla heimavellinum
Meistarakandídatarnir úr Mosfells-
bæ, Afturelding, sækja Selfyssinga
heim og þar leika Einar Gunnar Sig-
urðsson og Sigurjón Bjarnason á sín-
um gamla heimavelli en þeir komu til
Aftureldingar frá Selfossi. Afturelding
hefur fengið mestan liðsstyrk allra
liða. Auk Einars og Sigurjóns hefur
liðið fengið Sigurð Sveinsson frá FH.
Selfossliðið er nokkuð breytt. Einar
Gunnar og Sigurjón famir í Mosfells-
bæinn og Erlingur Richardsson í ÍBV.
Á móti hafa Selfyssingar fengið Sigfús
Sigurðsson úr Val og Rússann Alexei
Demidov.
Nýliöaslagur í Fram-húsinu
Nýliðaslagur verður í Fram-húsinu
þar sem Fram og HK eigast við. Fram-
arar eru til alls líklegir undir stjóm
Guðmundar Guðmundssonar. Nokkrir
góðir leikmenn hafa bæst í liðið og ber
þar að nefna Daða Hafþórsson og
Njörð Árnason sem koma frá ÍR, Guð-
mund Pálsson og Reyni Reynisson
sem koma frá Víkingi og Sigm-pál Að-
alsteinsson frá Þór. Ef marka má spár
forráðamanna félaganna í deildinni
verður veturinn þungur fyrir HK. Litl-
ar mannabreytingar em á liðinu en
þjálfari liðsins og leikmaður er stór-
skyttan Sigurður Valur Sveinsson.
Haröur slagur í Eyjum
I Eyjum taka heimamenn á móti
Gróttunni. Þetta gæti orðið harður
slagur en heimavöllur Eyjamanna er
sterkur og það gæti vegið þungt. Eyja-
menn sýndu og sönnuðu á nýafstöðnu
Reykjavíkurmóti að þeir eru til alls
vísir. Liðið er ungt og metnaðarfullt
og gæti gert góða hluti í vetur. Guð-
finnur Kristmannsson og Erlingur
Richardsson eru komnir „heim“ og
Ungverjinn snjadli Zoltán Belánýi er
kominn aftur til liðsins. Grótta kom
skemmtilega á óvart í fyrra og spurn-
ingin er hvort liðinu tekst að fylgja
því eftir. Litlar sem engar breytingar
hafa átt sér stað á Seltjamarnesliðinu.
Pressulausir Stjörnumenn?
I Garðabæ fær Stjarnan lið ÍR í
heimsókn. Stjaman hefur misst
Dmitri Filippov og Sigurð Bjarnason
en fengið á móti leikmenn eins og Ein-
ar B. Ámason og Hilmar Þórlindsson
frá KR svo og þjálfarann, Valdimar
Grímsson. Oft hafa verið gerðar mikl-
ar kröfur á lið Stjörnunnar sem hafa
ekki hafa gengið eftir og spumingin
nú, þegar minni pressa er á liðinu,
hvort gengið verður betra.
ÍR-ingar era ekki til stórræðanna
samkvæmt spánni góðu en Breiðhylt-
ingar em vanir því að hnekkja öllum
spádómum. Matthías Matthíasson
stígur sín fyrstu spor sem þjálfari og
hans bíður erfitt verkefni. ÍR-ingar
hafa misst Guðfinn Kristmannsson,
Daða Hafþórsson, Einar Einarsson,
Magnús Sigmundsson og Njörð Árna-
son en fengið Hans Guðmundsson frá
FH, Hrafn Margeirsson frá KR auk
þess Matthías þjálfari hyggst spila
með sínum gömlu félögum. -GH
37. vika - 15.-16. sept. 1995
Nr. Leikur:_______________Röðin
1. Atalanta - Fiorentina -X -
2. Napoli - Reggiana 1 - -
3. Piacenza - Parma - X-
4. Sampdoria - Milan 1 - -
5. Verona - Bologna - -2
6. Vicenza-Roma --2
7. Degerfors - AIK -X -
8. Djurgárden - Halmstad -X -
9. Malmö FF - Göteborg --2
10. Trelleborg - Oddevold 1--
11. Umeá - Norrköping 1 - -
12. Örgryte - Örebro -X -
13. Öster - Helsingborg - -2
Heildarvinningsupphæö:
12 milljónir
13 réttir
0
kr.
12 réttir
11 réttir
10 réttir
86.580
7.560
1.770
kr.
kr.
kr.