Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.1996, Page 32
v"'>
K I IV G A
L«TT«
til mik/"/í £7(j yinffíö
1 B
I
I
Vinningstölur
17.9/96
(SöKSfi)
KIN
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú Sbendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
Frjálst,óháð dagblað
MIÐVIKUDAGUR 18. SEPTEMBER 1996
EFTA dæmir Má í vil:
Ánægjuleg
staðfesting
- segir Þorsteinn Pálsson
„Þetta kemur ekki á óvart og er í
samræmi viö það sem við höfum
haldið fram í málinu frá upphafi, að
samningurinn um evrópskt efna-
hagssvæði fæli aðeins í sér heimild
til að banna skipum löndun ef
ágreiningur er um veiði en ekki að
banna þeim að leita eftir þjónustu.
Við höfum ítrekað þetta sjónarmið
frá upphafi gagnvart Norðmönnum.
Það er mjög ánægjulegt að nú sé
búið að staðfesta þá skoðun okkar,“
sagði Þorsteinn Pálsson sjávarút-
vegsráðherra við DV í morgun en
eftirlitsstofnun EFTA hefur úr-
skurðað að yfirvöld í Noregi hafi
brotið í bága við EES-samninginn
þegar þau neituðu Má SH um þjón-
ustu þegar vélarbilun kom upp í
togaranum í fyrra. -bjb
Kartöflustríð:
Bónus
í slaginn
„Ef boltinn fer virkilega af stað
lækkar verðið mjög hratt. Við erum
vel á verði og bjóðum alltaf best,
hvað sem það kostar,“ sagði Jón Ás-
geir Jóhannesson, framkvæmda-
stjóri Bónuss, um kartöflustríðið
sem nú er i uppsiglingu milli versl-
ana.
Uppskerutíminn er í algleymingi
og verðið að sama skapi farið að
lækka. Kílóverðið á kartöflum í
lausu var lægst komið niður í 40 kr.
í Bónusi í gær en næstlægsta verð
var þá 69 krónur. Jón sagði það
vera dagaspursmál hvenær pökk-
uðu kartöflumar lækkuðu en
lægsta verð á 2 kg pokum var í gær
159 kr. sem er þó umtalsverð lækk-
un síðan í haust þegar kílóið kost-
aði í kringum 200 kr.
-ingo
Gönguljósin:
Mótmæli
bera ávöxt
í kjölfar mótmæla eldri borgara
gegn því að gangbrautarljós yfir
Hverfisgötu við Vitastíg í Reykjavík
hafa verið ljarlægð hafa borgaryfir-
völd falið umferðardeild borgar-
verkfræðings að kanna málið.
Ibúar í þjónustuíbúðim fyrir aldr-
aða við Lindargötu mótmæltu á dög-
unum að ljósin voru fjarlægð þegar
götunni var breytt til núverandi
horfs og takmörkuð tvístefnuum-
ferð tekin upp. í tilkynningu frá
Ráðhúsi Reykjavíkur segir að gert
sé ráð fyrir að málið verði afgreitt á
næsta fundi umferðamefndar. -SÁ
Guðmundur Gunnarsson, faðir Bjarkar:
Spurning fyr-
ir hana að fá
sér lífvörð
- hefur fengið skrýtin símtöl frá íslenskum karlmönnum
Hún sé alltaf á ferð og flugi og
ekki alltaf auðvelt að ná sam-
bandi við hana.
„Þegar ég hef verið með Björk
erlendis höfrnn við gengið saman
um götur og farið í verslanir og
hún hefúr þá alveg verið látin í
friði. Þess vegna hrekkur maður
við þegar svona atburðir gerast
eða þegar hún hefur fengið þessi
skrýtnu símtöl hér heima,“ sagði
Guðmundur Gunnarsson. -S.dór
- sjá nánar á bls. 8
„Ég heyrði þetta fyrst í fréttum
í gærkvöld og auðvitað brá mér
við þetta. Ég hef orðið vitni að því
að Björk hefur fengið ansi skrýtin
símtöl frá íslenskum karlmönn-
um þegar hún hefur veriö stödd
hér heima. Manni er auðvitað
ekki sama um þetta og veltir því
fyrir sér hvort ekki sé kominn
tími til fyrir hana að fá sér líf-
vörð. Það era til menn sem haga
sér með afbrigðilegum hætti gagn-
vart frægu fólki og maður veit
aldrei upp á hverju þeir taka,“
sagði Guðmundur Gunnarsson,
faðir Bjarkar Guömundsdóttur,
um tilræði það sem að henni var
stefnt í gær.
Óskemmtileg
reynsla
Maður vestur í Bandaríkjun-
um, sem svipt hefur sig lífi, hafði
áður en hann gerði það sent Björk
pakka með hættulegu efni. Lög-
reglunni tókst að koma í veg fyrir
að hún fengi pakkann í hendur.
Guðmundur sagðist ekki hafa
heyrt í Björk síðan hún varð fyrir
þessari óskemmtilegu reynslu.
Starfsfólk FIB trygginga á skrifstofunni að Klapparstíg 24 í morgun. Frá vinstri eru Ingunn B. Sigurjónsdóttir og Gísli
Maack. Við hægra afgreiðsluborðið eru þau Margrét Árnadóttir og Halldór Sigurðsson og fyrir framan borðið situr
Hjördis Vilhjálmsdóttir. DV-mynd ÞÖK
u w
1 II \ \ .1 k p
Frá slysstað í gær. DV-mynd S
Kona varð
fyrir bíl
Kona á þrítugsaldri varð fyrir bil
á gatnamótum Sigtúns og Reykja-
vegar um hálfníuleytið í gærkvöld.
Konan meiddist á mjöðm og á höfði
en meiðsli hennar vora ekki talin
alvarleg. -RR
Tímamót í
bílatryggingum
í dag verður skrifstofa FÍB trygg-
inga opnuð í Reykjavík og þá hefst
starfsemi breska bilatryggingaris-
ans Lloyd’s á íslandi. Stjómendur
skrifstofunnar era Gísli Maack og
Halldór Sigurðsson.
Gjaldskrár era tilbúnar og sam-
kvæmt því sem áður hefur komið
fram hjá talsmönnum FÍB verður
um að ræða frá 25 og allt niður í 35
prósentum lægri bílatryggingaið-
gjöld miðað við það sem íslensku
tryggingafélögin hafa innheimt af
viðskiptavinum sínum til þessa.
I samtali við DV í morgun sagði
Runólfur Ólafsson, framkvæmda-
stjóri FÍB, að félagið stæði við fyrri
yfirlýsingar um að iðgjöld muni
lækka verulega hjá þeim sem þátt
tóku i tryggingaútboði félagsins, en
þátttakendur eru að stærstum hluta
fjölskyldufólk á aldrinum 30-50 ára.
„Aðiii sem nú greiðir 40 þúsund
króna iðgjald má eiga von á því að
þurfa að borga 30 þúsund krónur
hjá nýja félaginu,“ sagði Runólfur.
FÍB hefur sent öllum þeim sem
bílatryggingarnar renna út hjá í
október, og þátt tóku í útboði FÍB,
bréf þar sem þeim er tilkynnt að
umboð þeirra verði sent til viðkom-
andi tryggingafélags til uppsagnar.
-SÁ
L O K I
Veðrið á morgun:
Þurrt og
bjart norð-
anlands
Á morgun verður fremur
hæg suðaustanátt. Smáskúrir
verða á annesjum sunnan- og
vestanlands. Þokumóða við
suðaustur- og austurströndina
en þurrt og bjart norðanlands.
Veðrið í dag er á bls. 28
HhJOlOÍLAST
1
533-1000
r/
Kvöld- og
helgarþjónusta
Flexello
Vagn- og húsgagnahjól
Poiiben
Suðurlandsbraut 10. S. 568 6499