Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.1998, Síða 55
X>V LAUGARDAGUR 7. MARS 1998
|afmæli „
Halldór Runólfsson
Halldór Runólfsson, yfirdýra-
læknir, til heimilis að Hjallabrekku
47, Kópavogi, er fimmtugur i dag.
Starfsferill
Halldór fæddist að Gunnarsholti
á Rangárvöllum en ólst upp í
Reykjavík. Hann lauk stúdentsprófi
frá MR, stundaði nám í dýralækn-
ingum í Skotlandi, lauk þar loka-
prófi í dýralækningum 1973, hóf þar
framhaldsnám í sjúkdóma- og heil-
brigðiseftirliti dýralækna 1983 og
lauk þar MscVPH-prófi í stjórnun,
og eftirliti með dýrasjúkdómum. Þá
hefur Halldór sótt mikinn fjölda
námskeiða í sínu fagi s.s. við Dýra-
lækningaháskólann í London, 1972
og í Edinborg, 1978; á vegum danska
matvælaeftirlitsins, 1985, fór kynn-
isferð til Bandaríkjanna 1991 og til
Skotlands auk fjölda námskeiða á
vegum Dýralæknafélags íslands og
Endurmenntunarstofnunar HÍ.
Halldór stundaði almenn sveita-
störf að sumarlagi frá barnæsku og
til tvítugs, var eitt sumar í síldar-
verksmiðju, vann með dýralæknum
með námi hér á landi og erlendis,
stundaði dýralækningar í hálönd-
um Skotlands, var, héraðsdýralækn-
ir í Kirkjubæjarklaustursumdæmi
1974-83, deildarstjóri við Hollustu-
vemd ríkisins 1984-91, var fram-
kvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits
Kjósarsvæðis 1991-97 en tók þá viö
starfi yfirdýralæknis.
Halldór hefur sinnt fjölda verk-
efna fyrir landbúnaðarráðuneytið
og yfirdýralæknisembættið á und-
anfómum ámm og setið í ýmsum
nefndum landbúnaðar-,
heilbrigðis- og um-
hverfisráðuneyta.
HaUdór var formaður
íslendingafélagsins í
Edinborg 1971-72, var
formaður rekstrar-
nefndar fyrir íbúðir
aldraðra á Klaustri
1978-82, fyrsti formaður
Lionsklúbbsins Fylkis
1977, hefúr gegnt
ólaunuðum umboðs-
störfum fyrir Land-
græðslu ríkisins, var
einn af stofnendum og
stjórnarformaður saumastofu á
Klaustri, var fyrsti varamaður í
hreppsnefnd Kirkjubæjarhrepps
1982, var fulltrúi Dýralæknafélags
Islands í launamálaráði BHMR
1976-79, ritari Dýralæknafélags ís-
lands 1979-82, formaður þess
1982-86, hefur verið fulltrúi þess í
Alheimssamtökum dýralækna og í
Samtökum heilbrigðisstétta og rit-
ari þar 1987-89, hefur setið í nefnd
um stofnun kennsludeildar í dýra-
lækningum við HÍ, var ritari og for-
maður Lionsklúbbs Mosfellsbæjar,
svæðisstjóri í Lionshreyfingunni
1996-97 og formaður Félags heil-
brigðis- og umhverfisfulltrúa
1995-97.
Halldór hefur skrifað fjölda
greina í fagblöð landbúnaðarins,
skrifað um geislun, aðskotaefni og
eiturefnaleifar í matvælum og hald-
ið fjölda erinda á fundum, nám-
skeiðum og ráðstefnum.
Fjölskylda
Halldór kvæntist
12.7. 1969 Steinunni I.
Einarsdóttur, f. 10.7.
1948, meinatækni. Hún
er dóttir Einars Þor-
steinssonar og k.h., Sæ-
unnar Sigurjónsdóttur.
Börn Halldórs og
Steinunnar eru Amar,
f. 22.8. 1967, rafeinda-
virki, kvæntur Ingi-
björgu Jónu Hjaltadótt-
ur og eiga þau fjögur
börn; Freyr, f. 8.11.1972,
háskólanemi; Birkir, f. 10.5. 1975,
verslunarmaður en kona hans er
Þórdís Helga Helgadóttir og eiga
þau einn son; íris, f. 25.1. 1979, nemi
í Ví.
Bræður Halldórs eru Þórhaliur,
f. 23.5. 1944, iþróttakennari við
Álftamýrarskóla; Sveinn, f. 28.4.
1946, landgræðslustjóri ríkisins, bú-
settur í Gunnarsholti.
Foreldrar Halldórs voru Runólfur
Sveinsson, f. 27.12. 1909, d. 4.2. 1954,
skólastjóri á Hvanneyri og sand-
græðslustjóri ríkisins, og k.h., Val-
gerður Halldórsdóttir, f. 2.4. 1912, d.
1.1. 1990, húsfreyja.
Ætt
Meðal foðursystkina Halldórs má
nefna Pál landgræðslustjóra og Rós-
hildi, móður Brynju Benediktsdótt-
ur leikstjóra. Runólfur var sonur
Sveins, b. á Fossi í Mýrdal, bróður
Gísla alþingisforseta. Sveinn var
sonur Sveins, pr. í Ásum Eiríksson-
ar. Móðir Sveins í Asum var Sigríð-
ur Sveinsdóttir, læknis í Vík Páls-
sonar og Þórunnar Bjamadóttur,
landlæknis Pálssonar. Móðir Þór-
unnar var Rannveig Skúladóttir
landshöfðingja Magnússonar. Móðir
Sveins á Fossi var Guðríður Páls-
dóttir, pr. í Hörgsdal Pálssonar, og
Guðríðar Jónsdóttir, systur Þórunn-
ar, ömmu Kjarvals.
Móðir Runólfs var Jóhanna Mar-
grét Sigurðardóttir, smiðs á Breiða-
bólstað Sigurðssonar, og Gyðríðar
Ólafsdóttur frá Syðri-Steinsmýri.
Valgerður er dóttir Halldórs,
skólastjóra á Hvanneyri Vilhjálms-
sonar, b. á Rauðará við Reykjavík,
bróður Þórhalls biskups. Vilhjálm-
ur var sonur Bjöms, prófasts og
skálds í Laufási Halldórssonar.
Móðir HaUdórs skólastjóra var Sig-
ríður Þorláksdóttir, pr. á Skútustöð-
um, bróður Benedikts, afa Geirs
HaUgrímssonar. Þorlákur var sonur
Jóns, ættfóður Reykjahlíðarættar-
innar Þorsteinssonar.
Móðir Valgerðar var Svava, syst-
ir Tryggva forsætisráðherra og
Dóra forsetafrú, móðir Völu forsæt-
isráðherrafrú. Svava var dóttir Þór-
haUs biskups, bróður Vilhjálms.
Móðir Svövu var Valgerður, systir
HaUdórs, föður Péturs borgarstjóra.
Valgerður var dóttir Jóns, hrepp-
stjóra á Bjarnarstöðum í Bárðardal
HaUdórssonar.
HaUdór verður að heiman á af-
mælisdaginn. Steinunn, kona hans,
verður fimmtug þann 10.7. n.k.. Þau
munu því taka á móti gestum síðar
í tUefni afmælanna.
Halidór Runolfsson.
Olafur Þorsteinsson
Ólafur Þorsteinsson viðskipta-
fræðingur, Kvisthagi 4, Reykjavik,
verður fimmtugur á morgun.
Ólafur fæddist í Reykjavík og ólst
þar upp. Hann lauk stúdentsprófi
frá MR 1969, og Cand.öecon-prófí frá
Hí 1977 úr þjóðhagskjama.
Ólafur var skrifstofustjóri fram-
kvæmdadeUdar Innkaupastofnunar
ríkisins (nú Framkvæmdasýslu rik-
isins) 1977-87, stundakennari í hag-
fræðigreinum við Kvennaskólann í
Reykjavík og við MR 1980-87, er
prófdómari í sömu greinum við MR
frá 1988, var skrifstofustjóri og síðar
framkvæmdastjóri Krabbameinsfé-
lags íslands 1987-93, viðskiptafræð-
ingur við endurskoðunardeUd
Tryggingastofnunar ríkisins 1993 og
deildarstjóri við hagdeild sömu
stofnunar 1995-96, og deUdarstjóri
við fjármálasvið HÍ ffá 1997.
Ólafur sat í kjamefnd FVH
1982-87 og Aðlögunarnefnd FVH og
Hí 1997 og 1998, í stjóm Knatt-
spymufélagsins Víkings 1986-88, í
varastjórn samtakanna Iþróttir fyr-
ir aUa ffá stofnun tU 1994 og fjár-
vörslumaður Reykvíkingafélagsins
ffá 1993, ritstjóri tölfræðihandbókar
Tryggingastofnunar ríkisins, Stað-
talna almannatrygginga, fyrstu tvö
árin, 1995 og 1996, og sat I ritnefnd
og höfundur efnis í afmælisriti
Tryggingastofnunar ríkisins 1996,
Almannatryggingar í 60 ár.
Fjölskylda
Ólafur kvæntist 20.11. 1981 Helgu
Jónsdóttur, f. 30.5.1955, cand.mag., 1
íslenskum bókmenntum frá HÍ 1984,
málfarsráðgjafa og þýðanda með
sjálfstæða starfsemi. Hún er dóttir
Jóns Jónssonar, f. 15.6. 1925, bónda
á Melum í Hrútafirði, og k.h., Þóru
Ágústdóttur, f.14.10. 1927, húsfreyju,
nú búsett í Reykjavík.
Dætur Ólafs og Helgu era Krist-
ín, f. 24.3. 1993, og Steinunn f. 21.9.
1994.
Systir Ólafs er Kristín Þorsteins-
dóttir, f. 10.4. 1955, cand.mag. og
fréttamaður á Ríkisútvarpi, sjón-
varpi.
Foreldrar Ólafs: Þorsteinn Ólafs-
son, f. 21.12.1920, d. 6.11.1984, tann-
læknir í Reykjavík og k.h., Ólöf VU-
mundardóttir, f. 10.4. 1920, hús-
freyja.
Ætt
Þorsteinn var sonur Ólafs, læknis
í Reykjavík Þorsteinssonar, jám-
smiös í Reykjavík Tómassonar.
Móðir Ólafs læknis var Valgerður,
systir Ólafs fríkirkjuprests og hálf-
systir, samfeðra, Karls
Ijósmyndara. Valgerður
var dóttir Ólafs, dbrm.
og bæjarfúUtrúa í Lækj-
arkoti í Reykjavík
Ólafssonar, b. á Ægis-
síðu i Holtum Sigurðs-
sonar. Móðir Ólafs
dbrm. var Valgerður
Erlendsdóttir, b. i Litla-
Klofa Jónssonar. Móðir
Valgerðar Ólafsdóttur
var Ragnheiður Þor-
kelsdóttir, Gíslasonar.
Móðir Þorsteins tann-
læknis var Kristin Guð-
mundsdóttir, b. á Hraunum í Fljót-
um og verslunarstjóra á Siglufirði,
bróður Páls borgarstjóra. Guðmund-
ur var sonur Einars Baldvins, alþm.
á Hraunum í Fljótum Guðmunds-
sonar, b. þar Einarssonar, bróður
Baldvins þjóðfrelsismanns. Móðir
Kristínar var Jóhanna Stefánsdótt-
ir.
Ólöf er systir Guðrúnar, móður
Þorsteins heimspekings, Vilmundar
ráðherra og Þorvalds prófessors
Gylfasona. Bróðir Ólafar ver Þór-
hallur prófessor. Ólöf er dóttir Vil-
mundar, landlæknis Jónssonar, b. á
Fornustekkum í Nesjum Sigurðs-
sonar. Móðir Vilmundar var Guð-
rún Guðmundsdóttir,
b. á Taðhóli Guð-
mundssonar, og Vil-
borgar Matthíasdóttur,
b. á Stapa Magnússon-
ar, bróður Bergs, afa
Þorbjargar, langömmu
Ólafs Davíðssonar hag-
fræðings. Bergur var
langafi Þorleifs, afa Sig-
urðar Pálssonar rithöf-
undar.
Móðir Ólafar var
Kristín læknir, systir
Ástu, móður Ólafs
Ólafssonar landlæknis
og Guðrúnar, móður Ólafs Björns-
sonar prófessors. Kristín var dóttir
Ólafs, pr. í Hjarðarholti Ólafssonar,
og Ingibjargar Pálsdóttur
Mathiesen, pr. í Amarbæli Jónsson-
ar, pr. í Arnarbæli Matthíassonar,
stúdents á Eyri Þórðarsonar, ættföð-
ur Vigurættar Ólafssonar, lögsagn-
ara á Eyri Jónssonar, langafa Jóns
forseta og Jens rektors, langafa Jó-
hannesar Nor-dal.
Ólafur ætlar að hefja daginn með
hefðbundnu sunnudagshlaupi um
strandir Reykjavíkur með vinum
sínum, en frestar frekara afmælis-
haldi fram á vor.
Ólafur Þorsteinsson.
Rosalia Moro Rodriguez
Rosalia Moro
Rodriguez matreiðslu-
maður, Hjallabraut 2,
Hafnarfirði, er fimmtug
í dag.
Starfsferill
Rosalia fæddist í
Valladolid á Spáni og
ólst og ólst þar upp til
fimmtán ára aldurs en
átti síðan heima á Ast-
urias á Spáni. Hún
flutti síðan til Alcoy í
Alicantehéraöi á Suður-
Spáni en flutti þaðan til
íslands 1984 og hefúr átt
heima i Hafnarfirði síðan.
Rosalia Moro
Rodriguez.
Reykjavík.
Rosalia lauk grunn-
skólanámi og félagslegu
skyldunámi á Spáni.
Hún stundaði siðan
nám í hárgreiðslu og
matreiðslu og lauk
prófum í- þeim grein-
Rosalia starfaði við
hárgreiðslu og mat-
reiðslu á Spáni og
stundaði einnig kynn-
ingarstörf. Hér á landi
hefur hún unnið ýmis
almenn störf, einkum
við matreiðslu á ýmsum
veitingastöðum í
Fjölskylda
Rosalia giftist 22.3. 1969, fyrri
manni sínum, José Espi Ferre. Þau
skildu 1979 en Jose Espi er nú lát-
inn.
Rosalia giftist 2.9. 1982 seinni
manni sínum, Þórami Sigurbergs-
syni, f. 13.4. 1958, tónlistarkennara.
Hann er sonur Sigurbergs Þórarins-
sonar og Hrafnhildar Þorleifsdóttur.
Börn Rosaliu og José Espi era
Gabriel Angel Espi Moro, f. 2.8.1970,
búsettur á Spáni; Maria Celeste
Espi Moro, f. 17.6. 1972, búsettur á
Spáni og er dóttir hennar Sylvia
Casandra Kristinsdóttir, f. 13.12.
1989; Rosalba Espi Moro, f. 7.3. 1974,
búsett á Spáni en sonur hennar er
Robert Espi, f. 28.7. 1992.
Börn Rosaliu og Þórarins eru
Helga Guðrún Þórarinsdóttir, f. 16.8.
1983, nemi; Alexander Þórarinsson,
f. 10.9. 1986, nemi.
Bróðir Rosaliu eru Eduardo Moro
Rodriguez, f. 30.11. 1945, fyrrv. aðal-
ritari UGI, stéttarfélags í Baksahér-
uðum á Spáni, búsettur í
Zumarraga í Baskahéruðum Spán-
ar.
Foreldrar Rosaliu eru Simplicio
Moro de Castro, f. 26.8. 1911, nú á
eftirlaunum, búsettur á Alcoy í
Alicantehérði á Spáni, og k.h., Cel-
estina Rodriguez Conzalez, f. 15.8.
1919, húsmóðir.
1 hamingju
með afmælið
8. mars
70 ára
Ingibjörg Bergsteinsdóttir,
Hraunkambi 6, Hafnarfirði.
Kaj A.W. Jörgensen,
FeÚsmúla 13, Reykjavík.
Ólafur Kristinn Sveinsson,
Sellátranesi við Patreksfjörð.
Þorbjörg Valdimarsdóttir,
Kársnesbraut 89, Kópavogi.
60 ára
Einar Logi Einarsson,
Laugavegi 29, Reykjavík.
Gisli Magnússon,
Sigtúni 34, Selfossi.
Rögnvaldur Lárusson,
Höfðagötu 9 A, Stykkishólmi.
50 ára
Margrét
Kristinsdóttir
kennari,
Aðallandi 2,
Reykjavík.
Maður hennar er
Jóhannes
Tryggvason.
Þau hjónin munu taka á móti
ættingjum og vinum á heimili
sínu milli kl. 16.00-20.00 á
afmælisdaginn.
Grímur Friðgeirsson,
Eiðismýri 28, Seltjamamesi.
Sigríður Guðriin Óladóttir,
Rjúpufelli 23, Reykjavík.
Smári Thorarensen,
Norðurvegi 35, Hrisey.
Sveinn Þorsteinsson,
Bláskógum 6, Egilsstöðum.
40 ára
Ásgrímur G. Þorsteinsson,
Garðaflöt 31, Garðabæ.
Ásta Sólrún Leifsdóttir,
Urriðakvisl 19, Reykjavik.
Guttormur Ármannsson,
Brávöllum 8, Egilsstöðum.
Halldór G. Halidórsson,
Stapasíðu 24, Akureyri.
Jón Pálmi Pálmason,
Gerðhömram 17, Reykjavík.
Kristín Björg
Þorsteinsdóttir,
Fálkagötu 21, Reykjavík.
Lauren Dorothy Hauser,
Goðalandi 16, Reykjavík.
Sólveig D. Guðmundsdóttir,
Smáratúni 4, Akureyri.
'WWWWWWl
Smáauglýsinga
deild DV
er opin: 'm
• virka daga kl. 9-22 í
• laugardaga kl. 9-14
• sunnudaga kl. 16-22
Skilafrestur smáauglýsinga
er fyrir kl. 22 kvölaið fyrir
birtingu.
Attl. Smáauglýsing í
Helgarblað DV verður þó að
berast okkur fyrir kl. 17 á
föstudag.
Smáauglýsingar
550 5000
S
IJrval
- gott í hægindastólinn