Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.1999, Side 23
ÞRIÐJUDAGUR 23. MARS 1999
23
íþróttir
Það komst mikið í fréttimar i síðustu viku þeg-
ar Emmanuel Petit hjá Arsenal hótaði því að
hann væri hættur að spila á Englandi að loknu
þessu tímabili. Þessi yfirlýsing kemur í kjölfar
3ja rauðra spjalda sem hann hefur þurft að líta í
leikjum á Englandi í vetur og þau hafa vakið upp
deilur og gagnrýni á dómgæslu í Englandi.
Síðasta rauða spjaldið fékk hann gegn Everton
í deildinni fimm mínútum fyrir leikslok sem þýð-
ir að hann missir af undanúrslitaleiknum
gegn Manchester United. Það gæti reynst
Lundúnamönnum örlagaríkt i haráttunni
að verja báða titlana í vor.
Petit er greinilega búinn að fá nóg af
duttiungum dómara í hans garð.
„Ef mér er refsað með gulu
spjaldi í hvert sinn sem ég
opna munninn eða geri mis-
tök á vellinum á meðan aðrir
sleppa með mun verri hluti er
ég að eyða tíma mínum hér til
einkis. Ég er ekki einu sinni viss
um að það að vinna aftur tvöfalt
myndi breyta afstöðu minni hvað þetta
varðar," sagði hann við fyrmefnt tæki-
færi og vill meina að hann sé fómar-
lambið en ekki sökudólgurinn.
Arsene Wenger er ekki á því að Frakk-
inn sé að fara: „Ég er sannfærður um að
Emmanuel spilar áfram næsta vetur. Brott-
vísunin gerði hann dapran og þimglyndan
og það að leikbannið þýðir að hann missir
af stómm leik gegn Manchester United í
undanúrslitum bikarkeppninnar. Hann á
flögur ár eftir af samningnum og hann var
mjög óheppinn í þessum leik gegn Everton.
Þetta var fyrsti leikur hans í mánuð og
hann var bara enn að venjast leiknum."
Tuttugu og eitt rautt spjald
Þetta var þriðja rauða spjald Petits í
vetur, það fjórða á 17 mánuðum hans
hjá liðinu, það sjöunda hjá Arsenal í
vetur og ennfremur það 21. hjá Arsenal
síðan Arsenel Wenger tók við fyrir
tveimur og hálfu ári. Arsenal spilar þó
vissulega bestu vömina í deildinni, hef-
ur aðeins fengið á sig 13 mörk í 30 leikj-
um í vetur og undir stjóm Wengers
hefur liðið fengið á sig 78 mörk í 98
leikjum.
Það er staðreynd að Petit er fastur
fyrir en það em fleiri í enska boltan-
um og vekur það oft furðu að sjá til
þeirra Paul Ince hjá Liverpool og Roy
Keane hjá Manchester United komast
upp með mjög gróf brot. Það afsakar
ekki grófan leik en það hefur eflaust
áhrif á slæmt hugarástand Frakkans
að sjá Bretana komast upp með sitt-
hvað sem honum sjálfum er umsvifa-
laust refsað fyrir.
Sigurvegarinn Petit
Árangur Emmanuels Petits á
knattspymuvellinum hefur verið
afar glæsilegur. Þessi 29 ára knatt-
spyrnumaður náði ótrúlegum ár-
angri á 18 mánuðum er hann varð
heimsmeistari, tvöfaldur meistari
með liði sínu í Englandi, jaöiframt
því að verða einnig meistari með
Mónakó i Frakklandi. Hann var kos-
inn árangursríkasti leikmaður
heimsmeistarakeppninnar þar sem
hann skoraði meðal annars síðasta
markið í úrslitaleiknum. Petit er
fæddur 22. september 1970, er 185 cm
á hæð og 79 kg. Hann hefur leikið
með ES Argues og Mónakó í Frakk-
landi og svo Arsenal í Englandi og á að baki 28
landsleiki fyrir Frakklands hönd.
Tölfræðin með Petit
Ef litið er á tölfræðina i ensku úrvalsdeildinni
í vetur má sjá að Petit hefur aðeins brotið 17
sinnum af sér en samt fengið tvö rauð spjöld og
einnig sex gul spjöld. Það eykur enn á sérstöðu
Petits að þrátt fyrir að hcifa þegar fengið tvö rauð
spjöld í úrvalsdeildinni hafa 200 leikmenn í deild-
inni brotið oftar af sér en hann í vetur. Athyglis-
verð staðreynd sem styður mál hans.
Fyrrum framherji West Ham en nú leikmaður
Wimbledon hefur að sama skapi brotið 79 sinnum
af sér en ekki enn fengið að líta það rauða hjá
dómurum í deildinni. Mark Hughes hefur
fengið flest gul spjöld i deildinni
eða 13 en ekki
enn það
Aldrei gefið Petit spjald
David EUeray, einn þekktasti dómari í ensku
knattspyrnunni, tekur fyrir það að Petit fái öðru-
vísi meðferð en aðrir leikmenn hjá dómurum í
deildinni. Elleray segir ennfremur að hann hafi
aldrei fengið ástæðu til að gefa Frakkanum spjald
og að hann hafi aldrei látið
orðspor leik-
7rZZi-7TV*-:-,
Emmanuel Petit er þekktur fyrir allt
annað en að gefast upp og hér sést
hann kljást við einn leikmanna
Úlfanna í fyrra i sigurför Arsenal
sem tók báða titlanna í fyrra. Nú
hýggur þó Petit á að yfirgefa
England sökum þess að
dómararnir leggi hann í einelti.
■
5S#1'
rauða og Neil Redfem hjá Charlton, sem er nú
þekktur fyrir allt að annað en að gefa eitthvað eft-
ir inni á velli, hefur brotið 75 sinnum af sér án
þess að fá rauða spjaldið. Þessar tölur tala þannig
frekar máli Petits en þeirra sem gagnrýna hann
fyrir grófan leik þó ekki megi taka þær of alvar-
lega.
Emmanuel Petit fær hér að Ifta rauða
spjaldið gegn Everton á dögunum.
Það má sjá á svip Frakkans að hann er
alveg niðurbrotinn yfir meðferð ensku
dómaranna á honum, sé í raun
fórnarlamb en ekki sökudólgur.
manna - gott eða slæmt - hafa áhrif á
sig eða hans dómgæslu í leikjum.
t Áfram á Englandi
Emmanuel Petit er allt annað en
sammála þessu. Hann lét hafa eftir
sér þetta í Mirror á dögunum: „Dóm-
arar hugsa um stjömuleikmenn sem
eins konar verðlaunabikara og þegar
þeir koma heima til konunnar segja
þeir: Veistu hvað - ég rak þennan
Emmanuel Petit út af í dag.“
Það em allir sammála um frækna
framgöngu Petits inni á vellinum og
harma hætti hann í enska boltanum,
meira segja dómaranir hafa látið hafa það eftir
sér. Samkvæmt nýjustu fréttum úr herbúðum
Arsenal er þó sem menn þar nái að sannfæra
Frakkann um að halda áfram. Fari svo að Petit
spili áfram í enska boltanum er aldrei að vita
nema að öll þessi umræða virki sem sálfræðilegt
útspil af hans hálfu og dómaramir taki hann
loksins í sátt. -ÓÓJ
ENGLAND
A-deild:
Manch.Utd 30 18 9 3 68-31 63
Arsenal 30 16 11 3 42-13 59
Chelsea 29 15 11 3 44-23 56
Leeds 30 15 9 6 49-27 54
West Ham 30 13 7 10 34-39 46
Aston Villa 30 12 8 10 39-37 44
Derby 30 11 11 8 32-32 44
Wimbledon 30 10 10 10 34-44 40
Liverpool 28 11 6 11 52-37 39
Tottenham 29 9 12 8 34-34 39
Middlesbro 29 9 12 8 39-40 39
Newcastle 30 10 8 12 38-41 38
Sheff. Wed. 30 10 5 15 35-33 35
Leicester 28 8 10 10 28-37 34
Coventry 30 8 7 15 31-42 31
Everton 30 7 10 13 23-35 31
Blackburn 30 7 9 14 32-42 30
Southampt. 30 8 5 17 28-56 29
Charlton 29 6 10 13 33-40 28
Nott. For. 30 4 8 18 27-59 20
Markahæstlr:
Michael Owen, Liverpool.........16
Dwight Yorke, Manch.United .... 16
Andy Cole, Manch. United........15
Jimmy Floyd Hasselbaink, Leeds . 14
Nikolas Anelka, Arsenal.........13
Dion Dublin, Aston Villa........13
Robbie Foowler, Liverpool.......12
Hamilton Ricard, Middlesbro .... 12
Ole Gunnar Solkjaer, Manch. Utd. 11
Dennis Bergkamp, Arsenal .......10
Marcus Gayle, Wimbledon.........10
Alan Shearer, Blackbum..........10
Gianfranco Zola, Chelsea........10
Julian Joachim, Aston Villa.....9
Jason Euell, Wimbledon...........9
Tore Andre Flo, Chelsea..........9
Gustavo Poyet, Chelsea..........8
Ian Wright, West Ham ............8
Darren Huckerby, Coventry .......8
Noel Whelan, Coventry............8
Deon Burton, Derby ..............8
Lee Bowyer, Leeds ...............8
Næstu leikir:
Ekkert verður leikið í A-deildinni
fyrr en 2. apríl sökum landsleikja í
undankeppni Evrópu.
B-deild:
Sunderland 38 25 10 3 74-23 85
Ipswich 38 22 7 9 54-25 73
Bradford 37 21 7 9 66-38 70
Birmingh. 38 19 11 8 59-31 68
Bolton 37 17 13 7 68-50 64
Wolves 37 16 11 10 53-37 59
Sheff. Utd 37 15 11 11 60-54 56
Watford 38 14 13 11 51-50 55
Huddersf. 38 14 12 12 54-60 54
WBA 38 15 8 15 61-59 53
Grimsby 35 14 8 13 35-89 50
Norwich 37 12 13 12 50-51 49
Cr. Palace 38 12 13 13 52-59 49
Tranmere 38 10 16 12 50-51 46
Stockport 38 10 15 13 43-47 45
Portsmouth 38 10 13 15 49-57 43
Barnsley 37 9 15 13 44-46 42
QPR 37 10 10 17 4147 40
Swindon 38 10 10 18 51-67 40
Bury 38 7 15 16 29-51 36
Oxford 38 8 11 19 37-62 35
Port Vale 36 10 5 21 38-67 35
Crewe 36 8 9 19 43-68 33
Bristol C. 36 5 14 17 45-68 29
Markahæstir:
Lee Hughes, WBA................30
Lee Mills, Bradford............21
Marcus Stewart, Huddersfieid ... 20
Brett Angell, Stockport .......17
Ifiy Ounora, Swindon ..........17
Iwan Roberts, Norwich......... 15
Niall Quinn, Sunderland........15
Dean Windass, Bradford/Oxf. ... 15
Craig Bellamy, Norwich ........15
Næstu leikir:
Þriðjudagur 23. mars
Barnsley-Bristol City
Port Vale-Grimsby
Miðvikudagur 24. mars
Huddersfield-Norwich
Föstudagur 26. mars
Sheffield United-Oxford
Tranmere-Crewe
Laugardagur 27. mars
Bury-Sunderland
Sunnudagur 28. mars
Crystal Palace-Bradford
Portsmouth-Bamsley
Emmanuel Petit, hinn sigursæli og sterki leikmaöur Arsenal:
- segist vera fórnarlamb og lagður í einelti af enskum dómurum