Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.1999, Qupperneq 34
34
ÞRIÐJUDAGUR 23. MARS 1999
Afmæli
Kolbrún Baldursdóttir
Kolbrún Baldursdóttir sálfræð-
ingur, Kirkjuteigi 14, Reykjavík, er
fertug í dag.
Starfsferill
Kolbrún lauk stúdentsprófi frá VÍ
vorið 1980, BA-prófi í uppeldisfræði
og latínu frá HÍ 1986, MA-gráðu í
Námssálarfræði og ráðgjöf frá
Rhode Island College, Providence
Rhode Island í Bandaríkjunum vor-
ið 1988 og MA-gráðu í félags- og per-
sónuleikasálfræði frá sama skóla
vorið 1991. Hún lauk uppeldis- og
kennslufræði til kennsluréttinda frá
HÍ 1993, hlaut löggildingu sem sál-
fræðingur 1992 og gerðist meðlimur
í Sálfræðingafélagi íslands sama ár.
Kolbrún kenndi við Grunnskóla
Stokkseyrar 1980-83. Að námi loknu
starfaði hún hjá Fangelsismála-
stofnun ríkisins 1991-93, við með-
ferðarstöð ríkisins fyrir unglinga
1993-98 og starfar nú við Félags-
málastofnun Kópavogs. Auk þess
var hún námsráðgjafi og stunda-
kennari við MH, kenndi við Fóstur-
skóla íslands og hefur verið við
stundakennslu í Félagsvísindadeild
HÍ á árunum 1992-98.
Kolbrún starfaði í Fræðslunefnd
Sálfræðingafélags íslands 1993-95,
hefur setið í stjóm Stéttarfélags sál-
fræðinga á íslandi frá 1995 og verið
formaður þess frá 1997.
Fjölskylda
Kolbrún giftist 18.6.
1988 Clarence E. Glad, f.
24.6. 1956, guðfræðingi og
Ph.D. í Nýja Testamentis-
fræðum. Hann er sonur
Marianne og Daníels
Glad.
Dætur Kolbrúnar eru
Karen Áslaug, f. 28.12.
1980, nemi við VÍ; Harpa
Rún, f. 16.8. 1989, nemi i
Laugarnesskóla.
Systkini Kolbrúnar eru
Bjöm Baldursson, f. 29.3. 1948, lög-
fræðingur, búsettur í Höfnum;
Hrafnhildur Baldursdóttir, f. 10.10.
1952, hjúkrunarfræðingur, búsett í
Kópavogi; Bergljót Baldursdóttir, f.
7.1. 1954, dagskrárgerðarmaður hjá
ríkisútvarpinu, búsett í Reykjavík.
Foreldrar Kolbrúnar: Baldur
Gíslason, f. 19.7. 1924, d. 22.1. 1994,
verslunarmaður, og Áslaug Kristin
Sigurðardóttur, f. 21.9. 1924, fyrrv.
fulltrúi hjá Lögreglustjóraembætt-
inu í Reykjavík.
Ætt
Baldur var sonur Gísla, lögmanns
i Reykjavík, bróður Páls lögmanns;
Björns yfirkennara; Steinunnar,
móður Baldurs Símonarsonar,
prófessor og lífefnafræðings; Ólafs,
föður Páls í Brautarholti
og Ólafs, fyrrv. landlækn-
is, og Ingibjargar, móður
Jónasar Rafnar, alþm. og
bankastjóra, fóður Hall-
dóra, Ingibjargar og Ás-
dísar Rafnar. Gisli var
sonur Bjama, prófasts í
Steinnesi Pálssonar,
hreppstjóra og dbrm. á
Akri, hálfbróður Guð-
mundar, langafa Jóhann-
esar Nordal. Páll var son-
ur Ólafs, á Gilsstöðum í
Vatnsdal, Jónssonar og
Steinunnar, systur Sigríðar í Bjam-
arhöfn, langömmu Karls stöðvar-
stjóra, föður Guðlaugs Tryggva.
Steinunn var dóttir Páls, pr. á Und-
irfelli, Bjarnasonar, bróður
Ingibjargar, langömmu Ólafs
Hjartar, afa Ólafs Ragnars
Grímssonar forseta. Móðir Páls á
Undirfelli var Steinunn Pálsdóttir,
systir Bjarna landlæknis, afa
Bjama Thorarensen, amtmanns og
skálds, og Guðrúnar, langömmu
Ástu, ömmu Davíðs Oddssonar for-
sætisráðherra. Móðir Steinunnar á
Gilsstöðum var Guðrún Bjarnadótt-
ir, systir Agnesar, langömmu
Ágústs H. Bjamasonar heimspek-
ings. Móðir Gísla var Ingibjörg Guð-
mundsdóttir, hreppstjóra á Sjávar-
borg Sölvasonar, bróður Ingibjarg-
ar, ömmu Jakobs Benediktssonar,
forstöðumanns Orðabókar HÍ. Móð-
ir Ingibjargar var Margrét Bjöms-
dóttir.
Móðir Baldurs var Ólafía Þor-
steinsdóttir, verkamanns og sjó-
manns í Reykjavík, Jónssonar, og
Nikólínu Þorsteinsdóttur.
Áslaug er hálfsystir, samfeðra,
Gunnvarar Braga, dagskrárstjóra
hjá ríkisútvarpinu. Áslaug er dóttir
Sigurðar, skálds, dósents og pr. í
Holti undir Eyjaföllum, Einarsson-
ar, í Móakoti í Garðahverfi, Sig-
urðssonar, b. á Fagurhóli í Austur-
Landeyjum, Einarssonar, b. á Kálfa-
stöðum, Símonarsonar, b. á Glæsi-
stöðum, Einarssonar. Móðir Einars
í Móakoti var Sigríður, systir Hjör-
leifs, langafa Einars Kvaran rithöf-
undar. Sigríður var dóttir Þor-
steins, pr. í Krossi, Stefánssonar, og
Margrétar Hjörleifsdóttur, prófasts
og skálds á Valþjófsdal, Þórðarson-
ar. Móðir Sigurðar skálds var Mar-
ía, systir Kristjáns, föður Oddgeirs
tónskálds. Mciría var dóttir Jóns, b.
á Arngeirsstöðum, Erlendssonar, b.
á Heyklifi, Péturssonar. Móðir Mar-
íu var Margrét Ámadóttir. Móðir
Áslaugar var María Ásmundsdóttir
myndlistarkona.
Kolbrún tekur á móti gestum
þann 26. mars í Félagsheimilinu
(þjónustumiðstöð) Gullsmára i Gull-
smára 13, Kópavogi kl. 20.00.
Kolbrún
Baldursdóttir.
Vigdís Jack
Guðmunda Vigdis Siguröardóttir
Jack, fyrrv. prófastsfrú á Tjöm á
Vatnsnesi, til heimilis að Gullsmára
11, Kópavogi, verður sjötug á morg-
un.
Starfsferill
Vigdís fæddist í Skálanesi í Gufu-
dalssveit í Austur-Barðastrandar-
sýslu en flutti níu ára til Akraness.
Hún lauk gagnfræðaprófi frá Gagn-
fræðaskóla Akraness.
Á unglingsárunum stundaði Vig-
dís kaupavinnu á vetram en var
ráðskona á sumrin við vegavinnu
þar sem faðir hennar starfaði. Auk
þesss starfaði hún við sauma og um
skeið í niðursuðuverksmiðju.
Vigdís var búsett í Grímsey
1952- 53, í Manitoba í Kanada
1953- 55 og Vcir húsfreyja á Tjöm á
Vatnsnesi á árunum 1956-87. Þá
flutti hún í Kópavoginn þar sem
hún hefur átt heima síðan.
Á Tjöm stundaði Vigdís búskap.
Hún hafði í heimili vistmenn á veg-
um Kleppsspítalans á árunum
1975-87 og starfrækti sambýli fyrir
aldraða á heimili sínu á áranum
1988-95.
Vigdís söng með skólakór Gagn-
fræðaskóla Akraness og barna-
kirkjukór Akraness og síðar með
kór Tjamarkirkju. Hún starfaði í
kvenfélagi I Manitoba, í kvenfélag-
inu Von á Vatnsnesi og var formað-
ur þess 1960-70 og 1975-87, hefur
starfað í kvenfélaginu Freyju í
Kópavogi frá 1997 og situr í mæðra-
styrksnefnd Kópavogs. Hún var for-
maður barnavemdarnefndar Þver-
árhrepps 1966-81, formaður áfengis-
varnanefndar hreppsins 1966-87, sat
í heilbrigðisnefnd hreppsins
1966-82, er nefndin var lögð niður,
og sat í stjóm Náttúravemdarfélags
hreppsins.
Fjölskylda
Vigdís giftist 16.7. 1953 Róbert
John Jack, f. 5.8.1913, fyrrv. prófasti
að Tjörn. Hann er sonur Róberts
Jack, byggingameistara í Bearsden í
Skotlandi, og k.h., Mary Lovisu
Vennard Jack, húsmóður.
Sonur Vigdísar var Erlingur Jó-
hannes Ólafsson, f. 20.4.1950, d. 12.8.
1967.
Börn Vigdísar og Róberts Jacks
eru Ella Kristín, f. 14.6. 1954, hjúkr-
unarfræðingur, gift Skúla Torfasyni
tannlækni og era böm þeirra Krist-
ín Þóra, f. 14.7. 1982, Gyða Hlín, f.
17.8. 1983, Theodóra Mjöll, f.8.10.
1986, Ómar Smári, f. 7.3.1988, og Ró-
bert Jón, f. 18.5.1990; Anna Jósefma,
f. 25.7. 1958, leikskólakennari, gift
Guðmundi Sigþórssyni skrifstofu-
manni og eru börn
þeirra Berglind, f. 5.6.
1979, og Erlingur Þór, f.
14.6. 1981; Jónína Guö-
rún, f. 3.3. 1960, lögreglu-
maður en dóttir hennar
er Vigdís Bjamadóttir, f.
9.1. 1989; Sigurður
Tómas, f. 12.9. 1963,
markaðsfræðingur,
kvæntur Önnu Gunnars-
dóttur hjúkranarfi*æð-
ingi og era börn þeirra
Gunnar Pétur, f. 6.8.1988,
Guömundur Vignir, f.
23.10. 1990, og Róbert
Rúnar, f. 6.4. 1994; Sigurlína Berg-
lind, f. 2.2. 1965, kennari en maður
hennar er Birgir Birgisson raf-
virkjameistari og era synir þeirra
Tómas, f. 20.11. 1991, og Birgir Atli,
f. 18.9. 1993.
Stjúpböm Vigdísar eru Davíð
Wallace, f. 25.6. 1945, flugvirki,
kvæntur Bergdísi Sigmarsdóttur
endurskoðanda og era börn þeirra
Róbert, f. 8.8. 1971, menntaskóla-
nemi, og Sigmar, f. 6.6. 1974, há-
skólanemi, en unnusta Róberts er
Díana Dröfn Heiðarsdóttir og dóttir
þeirra er Agatha, f. 5.9. 1998; María
Lovísa, f. 28.8. 1946, húsmóðir en
sambýlismaður hennar var Sigur-
jón Bjamason en þau slitu samvist-
um og eru börn hennar Kolbrún
Rut, f. 19.8. 1967, húsmóð-
ir, en sonur hennar er
Grímur Ari Jónsson, f.
15.8. 1989, Sigurlín Bjam-
ey, f. 9.2. 1975, háskóla-
nemi, og Sigtryggur Jón, f.
23.2. 1977, sjómaður; Ró-
bert Jón, f. 15.9. 1948, raf-
virkjameistari, kvæntur
Sigrúnu Jónu Baldurs-
dóttur sjúkraliða og era
böm þeirra Vigdís Linda,
f. 13.1. 1970, háskólanemi
en maður hennar er Adré-
an Lopez Guarreos og eru
böm þeirra Sigrún Rut, f.
18.5. 1993, og Róbert, f. 8.1. 1997,
Baldur Þór, f. 31.10. 1976, rafvirki,
og Heiða Hrand, f. 5.11. 1978, stúd-
ent, en sonur henncir er Snæbjöm
Helgi, f. 26.3. 1996; Róbert Pétur
William, f. 21.12. 1950, d. 31.10. 1983,
en hann var kvæntur Elínu Guð-
mundsdóttur og era dætur þeirra ír-
is Blómlaug, f. 11.8. 1974, stúdents,
en unnusti hennar er Hilmar Þór, f.
23.9. 1969, sjómaður, og er sonur
þeirra Pétur William Jack, f. 15.11.
1997, Fjóla Burkney, f. 18.2. 1977, og
Hrafnhildur Día, f. 8.5. 1979 en son-
ur hennar er Sesar Máni Jack, f.
25.5. 1997.
Systkini Vigdísar era Arnfinnur
Ingvar, f. 28.9.1930, skrifstofumaður
og verslunarmaður, kvæntur
Þórönnu Jónsdóttur en þau eiga
þrjú börn; Kjartan Trausti, f. 22.9.
1939, fararstjóri hjá Úrval-Útsýn,
var kvæntur Unni Jensdóttur en
þau slitu samvistum og eiga þau tvö
böm; Erlingur Jón, f. 6.10. 1942, d.
22.6. 1944.
Foreldrar Vigdísar vora Sigurður
Jónsson, f. 11.6. 1903, d. 29.6. 1997,
vegaverkstjóri og vörubílstjóri i
Skálanesi og á Akranesi, og Kristín
Guðbjörg Jónsdóttir, f. 27.12.1900, d.
12.4. 1992, húsmóðir.
Ætt
Föðurforeldrar Vigdísar voru Sig-
urlína Bjamadóttir og Jón Einars-
son í Skálanesi en móðurforeldrar
Elín Guðmundsdóttir og Jón Am-
fmnsson, á Eyri í Gufudalssveit.
v .
Askrifendur fá
10%
aukaafslátf af
smáauglýsingum DV
Smáauglýsingar
E
V
550 5000
Guðmundar Vigdís
Sigurðardóttir Jack.
Til hamingju
með afmælið
23. mars
85 ára
Ragna Sigurjónsdóttir,
Selvogsbraut 21, Þorlákshöfn.
80 ára
Bjamey Hagalínsdóttir,
Jaðarsbraut 27, Akranesi.
Svava Ingimundardóttir,
Árskógum 6, Reykjavík.
75 ára
Arndís Þorvaldsdóttir,
Breiðagerði 4, Reykjavík.
70 ára
Guðrún Björg Bjömsdóttir,
Borgarbraut 65 A, Borgarnesi.
Sigurður Þorsteinsson,
Kirkjuteigi 19, Reykjavík.
60 ára
Anna Björk
Stefánsdóttir,
Eyjabakka 2,
Reykjavík.
Eiginmaður
hennar er
Sigurður Kristinsson.
Anna Björk er aö heiman.
Guðjón Hallur Hallsson,
Neðstaleiti 2, Reykjavík.
Guðmundur Helgason,
Langholtsvegi 95, Reykjavík.
Jakob Þór Jónsson,
Sogavegi 105, Reykjavlk.
Oddbjörg Ögmundsdóttir,
Smiðjustíg 2, Hafnarfirði.
Pétur Stefánsson,
Markarflöt 24, Garðabæ.
Þorbergur Þorbergsson,
Hraunbæ 58, Reykjavík.
50 ára
Drífa Hraunfjörð
Hugadóttir,
Þórustíg 30, Njarðvík.
Einar Þórarinsson,
Gilsbakka 13, Neskaupstað.
Guðjón Sigurbergsson,
Suðurhólum 2, Reykjavík.
Ragnheiður Þórarinsdóttir,
Sæbóli 26, Grandarfirði.
Stefania Bednarek,
Hellisbraut 13, Hellissandi.
40 ára
Auður Guðmundsdóttir,
Hávallagötu 47, Reykjavík.
Árni Jakob Stefánsson,
Heiðarlundi 3 C, Akureyri.
Berglind Hanna Ólafsdóttir,
Meistaravöllum 7, Reykjavik.
Erla Ósk Sigurðardóttir,
Sunnuflöt 9, Garðabæ.
Hákon Eydal,
Hrísateigi 22, Reykjavík.
Helgi Baldvinsson,
Skipasundi 86, Reykjavík.
Jón Magnússon,
Steinahlíð 5 I, Akureyri.
Jóna Sigurlín Harðardóttir,
Lokastíg 9, Reykjavík.
Kristján Einarsson,
Bræðraborgarstig 41,
Reykjavík.
Ólöf Kristín Guðnadóttir,
Melteigi 16 B, Akranesi.
Pétur Friðrik Arthúrsson,
Langholtsvegi 128, Reykjavík.
Pétur Gunnarsson,
Mávahlið 12, Reykjavík.
Steinunn Guðrún
Jónsdóttir,
Birkibergi 14, Hafnarfirði.
Sveinn Ámason,
Skógargötu 16, Sauðárkróki.
Örn Sævar Júlíusson,
Kirkjuvegi 18, Keflavík.