24 stundir - 11.06.2008, Blaðsíða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 11. JÚNÍ 2008 24stundir
Írar kjósa á morgun um Lissa-
bon-sáttmála Evrópusambandsins
– sem ætlað er að umbreyta sam-
bandinu og mynda stjórnskipuleg-
an ramma utan um starfsemi þess.
Landið er hið eina sem ber sátt-
málann undir þjóðaratkvæði, en
þjóðþing hinna aðildarríkjanna 26
hafa þegar samþykkt sáttmálann.
Þar sem hvert ríki hefur neitunar-
vald um framgang sáttmálans getur
írska þjóðin gert út af við Lissabon-
sáttmálann.
Þrjú ár eru síðan Frakkland og
Holland höfnuðu stjórnarskrá ESB,
en Lissabon-sáttmálinn mun fylla í
það skarð sem stjórnarskránni var
ætlað. Erfiðar samningaviðræður á
milli aðildarríkjanna liggja að baki
sáttmálanum, þannig að lítill vilji er
hjá stjórnmálamönnum Evrópu að
setjast í þriðja sinn að samninga-
borðinu.
Þverpólitísk samstaða
Þótt þjóðin sé klofin í afstöðu
sinni eru stjórnmálamenn það ekki.
Leiðtogar þriggja stærstu stjórn-
málaflokka Írlands hafa snúið bök-
um saman í aðdraganda þjóðarat-
kvæðagreiðslunnar. Hvetja þeir
landsmenn til að merkja við já, svo
að sáttmálinn nái fram að ganga.
„Við deilum þjóðernislegri
skyldu til að tryggja fólki þessa lands
bjarta framtíð,“ segir Brian Cowen
forsætisráðherra. „Já-ið snýst um að
þróa ESB, sem hefur nýst okkur svo
vel til þessa, þannig að tryggt sé að
það nýtist okkur jafn vel í framtíð-
inni.“ andresingi@24stundir.is
Aðeins eitt aðildarríki ESB ber Lissabon-sáttmálann undir þjóðaratkvæði
Öll augu Evrópusambandsins beinast að Írlandi
➤ Skoðanakönnun Irish Times ísíðustu viku sýndi 30%
stuðning við Lissabon-
sáttmálann og 35% and-
stöðu.
➤ Á sunnudag hafði dregiðsaman með hópunum. Já
sögðu 40%, en nei 39%.
MJÓTT Á MUNUM
Til framtíðar Brian
Cowen forsætisráð-
herra hvetur Íra til að
segja já.
Landstjóri Púertó Ríkó hefur
farið þess á leit við Sameinuðu
þjóðirnar að þær styðji þjóð sína í
að þokast í átt til sjálfstæðis. Púertó
Ríkó hefur verið sambandssvæði
undir stjórn Bandaríkjanna síðan í
lok 19. aldar, en notið nokkurs
sjálfsákvörðunarréttar frá 1952.
Flokkur Anibals Acevedo Vila
landstjóra hefur til þessa lagst gegn
sjálfstæðistilburðum, en helsti
stjórnarandstöðuflokkurinn styður
sjálfstæði. Hann hefur áður lagst
gegn hugmyndum Bandaríkjaþings
um að innlima Púertó Ríkó í
Bandaríkin. Nú mega íbúar svæð-
isins ekki taka þátt í forsetakosn-
ingum, en geta tekið þátt í forkosn-
ingum um forsetaframboð.
andresingi@24stundir.is
Landstjóri Púertó Ríkó
Vill auka sjálfstæði
Bandaríkin og ESB sögðust í gær
mundu beita Íran auknum efna-
hagsþvingunum ef landið lætur
ekki af áformum sínum um að
auðga úran. Sameiginleg ályktun
var samþykkt á fundi sem fram fór
í Slóveníu í gær.
„Nú er kominn tími á sterk
skilaboð,“ sagði George Bush
Bandaríkjaforseti á blaðamanna-
fundi. „Íranar geta valið hvort þeir
einangra sig eða styrkja samband
sitt við okkur hin með því að hætta
að auðga úran.“
Í ályktuninni er möguleikinn á
að frysta erlendar bankainnistæður
Írans nefndur. „Við munum halda
áfram að vinna saman til að tryggja
að íranskir bankar geti ekki nýtt sér
alþjóðahagkerfið til að styðja út-
breiðslu kjarnavopna og hryðju-
verk,“ segir meðal annars.
Stjórnvöld í Teheran hafa beðið
íranska banka um að færa inni-
stæður sínar í evrópskum bönkum
til seðlabanka Írans, til að verja sig
fyrir mögulegum efnahagsþving-
unum.
andresingi@24stundir.is
Bandaríkin og Evrópusambandið álykta gegn Íran
Íhuga að beita þvingunum
Íransforseti Er
viðbúinn efna-
hagsþvingunum.
HERNAÐARÚTGJÖLD
Heildarútgjöld ríkja heimsins til hernaðar
námu um 1.339 milljörðum Bandaríkja-
dala árið 2007.
45
5
5
4
4
3
3
3
3
2
Kostnaður*
Bandaríkin 547
Bretland 59,7
Kína 58,3
Frakkland 53,6
Japan 43,6
Þýskaland 36,9
Rússland 35,4
Sádi-Arabía 33,8
Ítalía 33,1
Indland 24,2
10 ríki með mesta herkostnaðinn
Velta*
Boeing 30,69
Lockheed Martin 28,12
BAE Systems 24,06
Northrop Grumman 23,65
Raytheon 19,53
General Dynamics 18,77
EADS 12,60
L-3 Communications 9,98
Finmeccanica 8,99
Thales 8,2
10 stærstu vopnaframleiðendur
*Upphæðir í milljörðum Bandaríkjadala
Heimild: SIPRI
Hlutfall (%)
Eftir Andrés Inga Jónsson
andresingi@24stundir.is
Sífellt meira fé er varið til hern-
aðarmála í heiminum. Mest munar
um eyðslu Bandaríkjanna, en önn-
ur ríki hafa sótt í sig veðrið á und-
anförnum árum. Þetta er meðal
þess sem fram kemur í nýrri árs-
skýrslu sænsku friðarrannsókna-
stofnunarinnar SIPRI.
Á síðasta ári hljóp herkostnaður
heimsins á 1.339 milljörðum
Bandaríkjadala. Það jafngildir um
2,5% af samanlagðri landsfram-
leiðslu þjóða heims, eða 202 dölum
– röskum 15 þúsund krónum – á
hvert mannsbarn.
Bandaríkin gnæfa yfir
Langmestu útgjöldin eru á
reikning Bandaríkjanna. Þau eru
ástæðan fyrir 45% heildarútgjalda
heimsins, og vörðu á síðasta ári
meira fé til hernaðar en nokkurt
annað ár eftir seinni heimsstyrjöld-
ina.
Næst á eftir Bandaríkjunum
koma Bretland, Kína og Frakkland
– en eyðsla hvers þeirra er rétt um
tíundi hluti af eyðslu Bandaríkj-
anna.
Til margs að líta
Orsakir útgjaldaaukningar er
víða að finna, að mati Sam Perlo-
Freeman, sérfræðings hjá SIPRI.
„Löndin standa frammi fyrir
ýmsum raunverulegum og mögu-
legum átökum,“ segir Perlo-
Freeman. „Þar að auki er fjöldi
óleystra – eða frosinna – deilna.
Fyrir lönd með stórveldisdrauma,
svo sem Indland, Rússland og
Kína, bæta aukin hernaðarútgjöld
stöðu þeirra í alþjóðasamfélaginu.
Og því betra sem efnahagsástandið
er, því meira er varið til hernaðar.“
Gósentíð hjá vopnasölum
Aukin hernaðarútgjöld hafa skil-
að sér rakleitt í vasa vopnafram-
leiðenda. SIPRI heldur skrá yfir
100 stærstu hergagnaframleiðend-
ur heims, sem árið 2006 veltu um
315 milljörðum dala. Á þeim lista
er 41 bandarískt fyrirtæki og 34
staðsett í Vestur-Evrópu.
Útgjöld til hernaðar
aukast um helming
Ríki heims vörðu 45% meira fé til hermála árið 2007 en þau gerðu áratug fyrr
Útgjöldin mest í Bandaríkjunum Hlutfallsleg aukning mest í Rússlandi
Kreml Aukin hagsæld í Rúss-
landi hefur hleypt nýju lífi í her-
afla landsins, eftir lægð í kjölfar
endaloka kalda stríðsins.
➤ SIPRI áætlar að 1.339 millj-örðum Bandaríkjadala hafi
verið varið til hernaðarmála í
heiminum árið 2007.
➤ Aukning frá fyrra ári nam 6%.Útgjöldin voru 45% meiri en
árið 1998.
AUKNINGIN