24 stundir - 11.06.2008, Blaðsíða 25
Eftir Hildi E. Einarsdóttur
hilduredda@24stundir.is
Bjarni Ármannsson og Helga
Sverrisdóttir hafa stofnað nýjan
sjóð í samstarfi við Þjóðleikhúsið
með það að markmiði að hlúa að
leikritun á Íslandi og efla höfund-
astarf í samstarfi við Þjóðleikhús-
ið. Stofnframlag sjóðsins er 16
milljónir króna og mun hann
starfa frá árinu 2008 til 2010.
„Með þessum sjóði sjáum við
fyrir að við getum eflt til muna
höfundastarf hér við leikhúsið
með því að styrkja höfunda sem
koma með áhugaverðar hug-
myndir til að koma þeim í hand-
ritsform, skila þeim sem drögum
eða jafnvel sem fullbúnum leik-
verkum,“ sagði Tinna Gunnlaugs-
dóttir þjóðleikhússtjóri við form-
lega opnun sjóðsins í gær.
Bjarni Ármannsson sagði við
sama tilefni að mikilvægi leikrita-
skrifa mætti ekki vanmeta.
„Vandamál samtímans eru að ein-
hverju leyti önnur en fortíðarinn-
ar, en að öðru leyti þau sömu. Á
sama tíma er leikritun flókin af
því að leikhúsið er flókið form
sem þarfnast mikils innsæis,
formlega, efnislega og tæknilega.
Því er mikilvægt að hlúa að leik-
ritun á Íslandi.“
Renna blint í sjóinn
Nýi sjóðurinn hefur fengið
nafnið Prologus. „Eins og nafnið
bendir til er hann eitthvað sem
kemur á undan verkinu, eitthvað
sem er ætlað til hjálpa til eða
vekja áhuga,“ benti Bjarni á. „Við
sem komum að þessum sjóði
rennum blint í sjóinn og vitum
ekki hvað hann mun leiða af sér.
En við vonum að þetta verkefni
leiði til einhvers sem hjálpar til
við þroska samfélagsins, gæði það
litríkara lífi.“
Fljótlega verður auglýst eftir
hugmyndum að leikverkum og
öðrum verkefnum og í kjölfarið
þess fjallar fagráð sjóðsins um
innsendar umsóknir og mælir
með verkefnum við sjóðstjórn, en
ráðið getur einnig að eigin frum-
kvæði mælt með verkefnum. Í
fagráði sitja Sveinn Einarsson
leikhúsfræðingur og Melkorka
Tekla Ólafsdóttir, leiklistarráðu-
nautur Þjóðleikhússins, ásamt
þjóðleikhússtjóra.
Fyrir utan að veita allt að fimm
höfundum fjárframlag árlega til
að vinna úr áhugaverðum hug-
myndum er sjóðnum einnig ætlað
að stuðla að framþróun og eflingu
leikritunar með höfundasmiðjum,
samkeppni, útgáfu og tilrauna-
verkefnum þar sem fólki úr ólík-
um listgreinum er teflt saman.
Nýr sjóður stofnaður í Þjóðleikhúsinu í gær
Styrkja íslenska
leikritun
Prologus er nafnið á nýj-
um sjóði sem ætlað er að
hlúa að íslenskri leikritun
og efla höfundastarf við
Þjóðleikhúsið. Sjóðurinn
var stofnaður í gær af
Bjarna Ármannssyni og
Helgu Sverrisdóttur í
samvinnu við Þjóðleik-
húsið.
Sjóðurinn stofnaður Tinna Gunn-
laugsdóttir, Helga Sverrisdóttir og
Bjarni Ármannsson.
➤ Stofnframlagið er 16 milljónirog er ætlunin að hann muni
starfa til ársins 2010.
➤ Auglýst verður eftir hug-myndum að leikverkum og
öðrum verkefnum fljótlega.
SJÓÐURINN
24stundir MIÐVIKUDAGUR 11. JÚNÍ 2008 25
Nútímatónlistarhátíðin Frum
2008 verður haldin dagana 13. til
15. júní næstkomandi á Kjarvals-
stöðum. Í ár er hátíðin helguð tón-
list þriggja tónskálda sem öll eiga
stórafmæli á árinu. Atli Heimir
Sveinsson fagnar sjötugsafmæli í
haust og frumflytur nýtt verk sem
hann tileinkar vinkonu sinni Bryn-
dísi Schram, sem einnig á stóraf-
mæli á árinu. Auk þess verða leikin
verk eftir ameríska tónskáldið El-
liott Carter sem verður hundrað
ára í desember og Karlheinz Stock-
hausen sem hefði orðið áttræður í
ár en hann lést hinn 5. desember
síðastliðinn.
Fyrir utan að eiga stórafmæli á
árinu eiga tónskáldin þrjú það
einnig sameiginlegt að vera frum-
kvöðlar á sviði nútímatónlistar.
Á sjötta áratugnum stundaði
Atli Heimir tónsmíðanám í Evr-
ópu, meðal annars hjá Karlheinz
Stockhausen í Köln.
Föstudaginn 13. júní milli
klukkan 12:15 og 12:45 og laug-
ardaginn 14. júní klukkan 12:15 og
13:00 verða stuttir hádegistónleikar
í safninu og sunnudaginn 15. júní
klukkan 20 verða afmælistónleikar.
Nútímatónlistarhópinn Frum
skipa Gunnhildur Einarsdóttir
hörpuleikari, Ingólfur Vilhjálms-
son klarinettleikari, Kristjana
Helgadóttir flautuleikari, Marc
Titschler píanóleikari og Matthias
Engler slagverksleikari.
Tónlistarhátíðin FRUM á Kjarvalsstöðum
Nútímatónlist í öndvegi
LÍFSSTÍLL
lifsstill@24stundir.is menning
Það er meira
í Mogganum
Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2950 HELGARÁSKRIFT 1800 PDF Á MBL.IS 1800
í dag
miðvikudagur 11. júní 2008
Hvort er EM íþróttamót
eða listahátíð?
» Meira í Morgunblaðinu
Listin í boltanum
Óli finnski er hraustur
skógarhöggsmaður.
» Meira í Morgunblaðinu
Sviti og skítur
Hópur Seyðfirðinga vill
breyta klukkunni.
» Meira í Morgunblaðinu
Sólin skíni lengur
Víðtæk áhrif elds-
neytishækkana.
» Meira í Morgunblaðinu
Olíukreppan
Megrunarkúrar eru
ekki árangursríkir.
» Meira í Morgunblaðinu
Kíló koma aftur