Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1947, Page 2

Andvari - 01.01.1947, Page 2
Bókaútgáfa Menningarsjóðs og Þjóðvinafélagsins. Saga íslendinga. Gert er ráð fyrir, að ritverk þetta verða 10 bindi alls, hvert bindi um 30 arkir, með myndum og uppdráttum, eftir því sem þörf krefur og föng verða til. Skipting efnisins í bindi verður í höfuðdráttum sem hór segir: I. bindi nær fram til um 1100, II. bindi nær frá 1100 til 1264, III. bindi nær frá 1264 til 1500, IV. bindi nær frá 1500 til 1600, V. bindi nær frá 1600 til 1700, VI. bindi nær frá 1700 til 1770, VII. bindi nær frá 1770 til 1830, VIII. bindi nær frá 1830 til 1874, IX. bindi nær frá 1874 til 1903 og X. bindi nær frá 1903 til 1918. Þegar eru komin út IV., V. og VI. bindi. — Nýtt bindi er væntanlegt næsta ár. Er það VII. bindi, sarnið af dr. Þorkeli Jóhannessyni prófessor. Þau bindi, sem út eru komin, fást öll enn þá i vönduðu skinn- bandi. — IV. og VI. bindi eru einnig fáanleg heft og í rexin- bandi. íslendingar hafa alltaf unnað sögum og sagnafróðleik. Þeir hafa líka oft verið kallaðir söguþjóðin. Með prentun þessa rit- verks gefst þeim kostur á að eignast ýtarlegt og vandað yfir- litsrit um sögu sina frá öndverðu til 1918. Heiðinn siður á íslandi. Þetta er skemmtilegt og fræðandi rit um trúarlíf íslendinga til forna eftir ólaf Briem mag. art. Bókin flytur mikinn fróð- leik um goð og landvætti, hof og blót og aðra heiðna siði. Hún er mjög vönduð að frágangi, með uppdrætti og mörgum mynd- um. Allir, sem íslenzkum fræðum unna, þurfa að eignast þessa bók. Hún er ekki seld með félagsbókunum, heldur sérstaklega. Frestið ekki að eignast hana, þar sein upplagið er mjög lítið.

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.