Andvari - 01.01.1947, Qupperneq 41
ANDVARI
Manntalið 1703
37
eftir 1820, að mannfjöldinn komst aftur upp úr 50 þúsundum.
En á næstu 120 árum þar á eftir jókst mannfjöldinn á landinu
aftur á móti um 75 þúsund, eða um 150%.
Um aldur manna eru allnákvæmar upplýsingar í mann-
talinu frá 1703. Eru það ekki nema 7 af þúsundi, sem aldur
er ekki tilgreindur á. Að þeim undanskildum má skipta öllum
mannfjöldanum á landinu eftir einstökum aldursárum, en svo
nákvæm aldursskipting hefur fyrst verið tekin upp í mann-
tölum okkar frá byrjun þessarar aldar. Búast má samt við,
að nokkru geti skeikað um aldursárið vegna misminnis, því
að jafnvel við síðustu manntöl hefur það komið í Ijós við
rannsókn á aldri elzta fólksins, að því hættir við að halda
hann hærri en kirkjubækur sýna. En auk þess hefur það komið
í Ijós í manntalinu 1703, að áratugsárin (20, 30 o. s. frv. upp
að 80) eru með miklu hærri tölu heldur en árin beggja megin
við þau, og er auðsætt, að það mun að miklu ieyti stafa af
því, að menn hafa þá oft látið sér nægja að tilgreina aldur-
inn 40, 50 ár o. s. frv., ef maðurinn var um fertugt, fimmtugt
o. s. frv. Annars veldur þetta aðeins fárra ára skekkju, sem
hverfur, ef tekin eru 5 eða 10 ár saman í flokk.
í stórum dráttum var aldursskiptingin þannig, samanborið
við manntalið 1940:
1703 1940
0—.14 ára 26.7 % 29.8 %
15—59 — 65.2 — 59.2—
60 ára og þar yfir 7.4 — 11.0 —
Ótilgreint 0.7 — 0.0 —
Samtals 100.0 % 100.0 %
SKtFT/NG ÞJÖÐAR/NNAR EFT/R ALDRt
0-/4 /3-59 60-
//oj pmzy/mm 652 W-f/A
59.2 mím
1. mynd.