Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1947, Page 45

Andvari - 01.01.1947, Page 45
ANDVARI Manntalið 1703 4t hafi komið harla rýrir út úr þeim hreinsunareldi. Þrátt fyrir það virðist barnatalan á 1. ári vera meira en lítið tortryggileg, þar sem hún er ekki nema rúmlega helmingur af tölu barna á öðru ári og tæpur helmingur af tölu barna á 3. ári. Ef þess- um tölum væri fyllilega treystandi, væri útkoma ársins næst á undan manntalinu ægileg, þar sem ekkert af undanfarandi harðindaárum kæmist í hálfkvisti við það um ungbarnadauða og fæðingafækkun. Það virðist því liggja nærri að ætla, að einhverju muni ábótavant um framtalið, og að börn innan 1 árs séu að einhverju leyti vantalin. Sums staðar í mann- talinu 1703 er aldur sumra, einkum barna, talinn í vetrum í stað ára. Við úrvinnsluna hefur vetur verið talinn sem ár, þegar um aldur var að ræða, en það getur stundum valdið því, að aldurinn sé oftalinn um eitt ár. Þetta gerir þó venju- lega ekki mikla skekkju, því að í stað þess, sem einhver ár- gangur missir við þetta til næsta árgangs fyrir ofan, þá fær hann viðbót frá næsta árgangi fyrir neðan. Þó er 1. árið hér undanskilið, því að það getur ekki fengið neina viðbót annars staðar frá í stað þess, sem það missir á þennan hátt. Þó mun hin mikla barnafæð á 1. ári trauðla verða skýrð eingöngu á þennan hátt, en nokkuð gæti stafað af þessu. Þar sem bæði börn og unglingar og gamalt fólk er tiltölu- lega fámennara 1703 heldur en nú, þá hljóta aldursflokkarnir 1 niiðið að vera tiltölulega fjölmennari, enda gildir það um aUa 5 ára aldursflokka frá 15 ára aldri til sextugs, að undan- skildum einum. Það er aldursflokkurinn 25—29 ára (sem fæddur er í kringum 1675). Hefur hann orðið harðar úti í lífsbaráttunni heldur en aðrir aldursflokkar eða verið óvenju- lega rýr í upphafi, og virðist það sennilegra. Á þessum aldri (25—29 ára) eru töluvert færri heldur en í næstu aldursflokk- um fyrir ofan (30—34, 35—39 og 40—44 ára), og í hinum sið- asta (40—44 ára) (sem fæddur er kringum 1660) er fólkið flest. Hann hefur orðið langdrýgstur, enda liklega stærstur í byrjun. 1703 voru konurnar í mjög mildum meiri hluta, því að á móti hverjum 1000 körlum komu 1202 konur. Konurnar eru

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.