Andvari - 01.01.1947, Qupperneq 59
ANDVARI
Stýrimannanöfn i Njálu
55
átta hafði Kári drepið í hefndaraðförinni með Birni í Mörk.
Tvískiptingin á tölu hinna felldu brennumanna í Sturlungu
og Njálu er nákvæmlega eins: 8-J-5. Gegnir hér sama máli
eins og um dráp Gissurarsona í Flugumýrarbrennu og Njáls-
sona i Njálsbrennu. Tveir bræðurnir farast í sjálfri brennunni.
Sá þriðji er höggvinn niður fyrir dyrum úti, er hann freistar
undankomu með sverð í hendi. Verður nú næsta ljóst, hvernig
því víkur við, að Eyjólfur nef og Bárður svarti, sem flutti
utan Njálssonu, eru heitnir eftir Eyjólfi auðga og Bárði Hall-
röðarsyni. Hér hafa ráðið nafngiftum Njáluhöfundar hug-
renningatengsl hans varðandi brennumenn og þá, sem brenndir
voru inni. Skip þeirra Bárðar og Eyjólfs liggja bæði ferðbúin
í norðlenzkum höfnum sumarið 1258, er brennumenn leituðu
lil utanfarar.
Þá er komið að Hallvarði gullskó. Hann kom til íslands sum-
arið 1261 og dvaldi liinn næsta vetur í Reykholti hjá Agli Söl-
mundarsyni. Svo sem alkunnugt er, var Hallvarður sendimað-
ur og erindreki Hákonar konungs gamla og réri að þvi öllum
árum að koma landinu undir konungsvald. Er óþarft að rekja
þá sögu hér, nema að litlu leyti. Við lok lönguföstu 1262 var Hall-
varður staddur að Laugarási á sáttafundi þeirra Þorvarðs Þór-
arinssonar og Sighvats Böðvarssonar út af vígi Þorgils skarða,
bróður Sighvats. Hefur Hallvarði verið það mjög í mun að
koma á sættuin milli hins volduga höfðingja, Þorvarðs Þór-
nrinssonar, og Sturlunga, því enn var allt á huldu um hollustu
Gissurar jarls við Hákon konung. Þess er beinlínis getið, að
á Laugarásfundinum hafi margt verið talað í hljóði, og er ekki
að efa, að við þau launniál hafi Hallvarður verið riðinn. Verð-
ur ekki betur séð en Þorvarður hafi þar gefið heit sitt. um að
>,koma með Austfirðinga" til næsta Alþingis og styðja mál-
efni Hallvarðs og Vestfirðinga, ef Gissur jarl brygðist. Hall-
varður átli sæti í gerðardóminum i vígsmáli Þorgils fyrir
hönd bræðra hans, Sighvals og Guðmundar, ásamt Sturlu
Þórðarsyni og Agli Sölmundarsyni. Má segja, að gagnvart Þor-
varði væri mildilega á máli tekið: „Þorvarður var eigi úr
hindi gerr, en hann lýsti því, að hann ætlaði utan áður þrír