Andvari

Årgang

Andvari - 01.01.1947, Side 65

Andvari - 01.01.1947, Side 65
ANDVAM Stýrimannanöfn í Njálu 61 ar stundar, er Gunnar féllst á að fara utan, og komu hans til Hákonar jarls. Þorvarði og Gunnari er báðum mjög óljúft að fara á fund Noregshöfðingja. Gunnari veldur það, að hann þykist þurfa að vaxa að manngildi og mannvirðingu áður en hann taki slíkt skref, en Þorvarður óttast afleiðingar þess, sem hann „hafði brotið við konungdóminn í aftöku Þorgils skarða og Bergs, hirðmanna Hákonar konungs“. Slíkum ótta fylgir næstum óhjákvæmilega tilfinning um vanmátt og auðnuleysi, samfara innilegri ósk um að hefja sig til mann- heillar og mátlar til jafns við þann, sem óttanum veldur, eða meira. Af þessum kenndum Njáluhöfundar mun vera sprott- in frásögnin af hetjudáðum og upphefð Gunnars á Hlíðar- enda í utanfararsögunni. Gunnar þurfti sannarlega á tign- arklæðum sjálfs stórkonungsins að halda, er hann kom á fund jarlsins, þvi í brjósti bar hann ótta Þorvarðs Þórarins- sonar við Noregshöfðingja. Þess vegna vildi Gunnar ekki ráðast lil jarls, þá er hann fyrst var þess beðinn. Loks er að minnast Ólafs af Steini. Virðist hann mörgum sinnum hafa komið til íslands. Ólafur var á fundinum í Flatatungu vorið 1234 og vann þar að sáttum, þótt aðeins væri 18 vetra gamall. „Hann var þá í fyrstu ferð og var heinm- uiaður að Keldum með Hálfdáni", sem síðar varð tengda- taðir Þorvarðs Þórarinssonar. Sumarið 1239 „hafði Ólafur af Steini skip fyrir norðan land“ og fjórum árum seinna er kans getið á ísafirði. Árið 1288 mun Ólafur hafa komið til íslands í síðasta sinn. Var Sighvatur Hálfdánarson frá Keld- Um með honum, og fóru þeir með konungserindi. Af þeim allt að 80 erlendu stýrimönnum og konungssendiboðum, sem heimildir greina frá, að komið liafi til íslands á þjóðveldis- timanum, munu þeir Ólafur af Steini og Ólafur stýrimaður elda vera þeir einu, sem kenndir eru við bæi. í Njálu er Ólafur eIda sagður sonur Ketils úr Eldu. Með Bárði svarta og Ólafi fóru Njálssynir utan. Nú hvarflar hugurinn aftur til stéttarbræðra Ólafs af ^teini, þeirra Ivolbeins svarta, Skeggja hvíta, Bárðar Hallröð- arsonar, Eyjólfs auðga og Hallvarðs gullskós, sem voru

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.