Andvari - 01.01.1947, Blaðsíða 75
ANDVABl
Við OddastaS
71
kringlu og Gylfaginningu Snorra Sturlusonar, las þessi yfir-
burðalistaverk mörgum sinnum með mikilli eftirtekt og at-
hygli, auk annarra úrvalsrita. Með þessum hætti fluttist andi
tnóðurmálsins inn í sál hins gáfaða náttúrufræðings og tók
sér þar bólfestu. Áður en langt leið breyttist ritháttur dr. Helga.
Hann ritaði nú með nýjum hætti. Þar var ekki um að ræða
stælingu af Snorra Sturlusyni, Jónasi Hallgrímssyni eða nokkr-
um öðrum rithöfundi, heldur var dr. Helgi Péturss orðinn
einn af snillingum og velgerðarmönnum íslenzkrar tungu. Nú
leitar æska landsins til dr. Helga Péturss og rita hans, eins
og hann hafði áður leitað til sinna snjöllu fyrirrennara.
Sagan um dr. Helga Péturss er viðburður í íslenzkri þróun.
Hún sýnir erfiðleika þéttbýlisæskunnar, eins og að henni er
búið, að komast til fulls inn í leyndardóma máls og sögu. Ó-
venjulega gáfaður maður, með þeim lærdómi, sem mátti fá
með langri skólagöngu, gat ekki öðlazt þetta hnoss nema
með sérstöku átaki, sem fáir leika eftir. Saga dr. Helga bregð-
ur skörpu ljósi yfir misfellurnar í starfi skólanna, þegar því
er svo háttað, að börn og unglingar fá ekki að þroskast í faðmi
íslenzkrar náttúru og geta ekki á réttum tíma lesið gullaldar-
rit íslenzkrar tungu.
Eftir að þjóðin fékk nolckra heimastjórn 1874, byrjuðu
forráðamenn landsins að efna til aukinnar skólafræðslu, eftir
því sem efni og ástæður leyfðu. Þórarinn Böðvarsson í Görð-
um stofnaði gagnfræðaskólann Flensborg í Hafnarfirði. Ann-
ar þingskörungur, Arnljótur Ólafsson, stofnaði gagnfræða-
skólann á Möðruvöllum. Alþingi, ömt og sýslur komu á fót
fjórum bændaskólum og tveimur kvennaskólum. Þegar þétt-
býli óx við sjávarsíðuna, fjölgaði barnaskólunum. Eftir alda-
mótin 1900 var lögleidd skólaskylda fyrir börn innan ferm-
ingaraldurs með mörgum undanþágum. Nokkru áður hafði
verið hafizt handa með sjómannafræðslu og síðar iðnfræðslu.
Á aldarafmæli Jóns Sigurðssonar voru þrír embættisskólar
sameinaðir í eina stofnun og bætt við kennslu i þjóðlegum
fræðum. Þetta var upphaf að Háskóla íslands. Hann var hús-
laus og fékk fyrst um sinn gistingu i þinghúsinu, eins og Al-