Andvari - 01.01.1947, Qupperneq 97
ANDVARI
Líffræði og læknisfræði
93
ingar- og sótthreinsunaraðferðir, sem teljast einnig til líf-
fræðinnar, með því að þær varða eyðingu lífs.
Auk þeirra greina líffræðinnar, sem þegar hefur verið drepið
á, eru til fleiri svið liffræðirannsókna, sem nú eru að leggja
mikilsverðan skerf bæði til lækningar sjúkdóma og varna gegn
þeim. Hér skal rétt minnzt á fáeinar þeirra uppgötvana á þeim
sviðum, sem gerðar voru árið 1942.
Á því ári urðu miklar framfarir í andrúmsloftslíffræði, en
hún hefur lengi setið á hakanum; fæst hún við rannsóknir
á dreifingu blómafrjóa, sveppgróa og baktería í loftinu. Ný
þekking hefur fengizt á smitefnum í loftinu og nýjar aðferðir
fundizt til að eyða þeim með vökvum og útfjólubláum geisl-
um. Þá hafa og þetta ár fundizt margar nýjar líffræðilegar
aðferðir til að halda sýklum í skefjum. Þar á meðal má nefna,
að nokkurs konar efnakljúfur (enzym) hefur fundizt í ungum
rottum, sem leysir upp vaxhýðið, er ver berklabakteríur fyrir
lyfjum og hvítum blóðkornum, og uppgötvun og tilbúning
sýklaskæðra lyfja úr myglusveppum og ýmsum tegundum af
jarðvegsbakteríum. Á sviði næringarfræðinnar hefur fengizt
vitneskja um, að tilteknar aminosýrur eru nauðsynlegar til
þess að likaminn geti unnið tiltekin störf, og er þar opnuð
leið til þess að ná betri tökum en áður á þeim störfum. Nýjar
aðferðir hafa verið reyndar til að rannsaka út í æsar samband
tauga og vöðva, og gæti það leitt til þess, að vér fengjum betri
tök á að lækna lamanir og vöðvasjúkdóma. Mælt er og, að
tekizt hafi að búa til mjög ódýrt gerlasíróp. sem breyti þannig
gerlagróðri í þörmum manna, að þeir geti bæði melt tréni, eins
°g grasbítir, og búið þar lil B-fjörvi eftir þörfum. Krabbamein
eru enn óráðin líffræðileg gáta, en þó hafa orðið mikilsverð-
ar framfarir í rannsóknum á þeim. Þar er samt enn margt ógert
°g sömuleiðis í ofnæmisfræðinni, en það er fyllsta ástæða til að
íella, að því fækki óðum áður en langur timi líður.
Vitið hefur losað mannkynið við marga þáttu lífsbarátt-
unnar, sem aðrar skepnur eiga við að stríða. Maðurinn hefur
að fullu og öllu ráð villidýra i hendi sér, og hugvit hans
býður vindi og sjó birginn. Eins og vér höfum séð, hefur hann