Skírnir - 01.12.1919, Síða 8
214
Jón Thoroddsen.
[Skírnir
ur þá sæla, sem lúki prófi með »láði« o. s. frv. Hanu
heflr á fyrri Hafnarárum sínum leitað önd sinni fæðu ann-
arstaðar fremur en í lagabókum. Hann var mikill vin
Gísla Brynjólfssonar, er víðlesinn var í bókmentum hinna
mentuðustu nútíðarþjóða. Geta má nærri, að Jón hefir
le8ið eitthvað af skáldritum þeim, er vinur hans hinn mjög
lesandi var hrifinn af og dáðist að. Sonur skáldsins, dr.
Þorvaldur Thoroddsen, ritar rnér um bókasafn föður síns:
»Bækur föður míns tvístruðust á »áktion« eins ogvant
er, en þær voru ekki margar, enda hafði hann lítinn tíma
til að lesa á þeim árum, sem eg man eftir. Bækur hans
voru flestallar lögfræðislegs- og sögulegs efnis. Auk þess
man eg eftir Walter Seott, Marryat, Hauch, Ingemann, því
eg las þær bækur ungur---------------. Fornsögurnar átti
hann eðlilega, og voru þær mikið lesnar á heimilinu, og
eins skrifaðar riddarasögur og rímur. Þessu man eg eft-
ir, en vel má vera, að fleiri skáldrit hafi verið til. Eg
var að eins 11 ára, er eg fór alfarinn frá Leirá«.
Agætur mentamaður hefir látið i ljós við mig þá ætl-
un sína, að Jón Thoroddsen hafi sætt mestum áhrifum frá
Scott. Ekki er kostur á að rannsaka það að þessu sinni.
Gizka má á, að einhverju sinni þá er Jón Thoroddsen
las sögu, er honum fanst til um, hafi eitthvað hvíslað i
hug lionum, að hann gæti skrifað svona, að gaman væri
að rita slíkar sögur af íslenzku nútíðarlífi á móðurmáli
voru.
Jón Thoroddsen fór í strið með Dönum árið 1848, sem
kunnugt er. »Pilt og stúlku« reit liann veturinn eftir það
að hann rataði í það hið agalega æfintýri. Eflaust er það
ekki tilviljun ein. Stríð er örfandi drykkur. Það hefir
dregið af honum slenið, hleypt í hann ólgu og móði, sem
rit með lífsþrótti verða ekki án samin.
Happ var það tungu vorri og bókmentum, að á dög-
um Jóns Thoroddsens liöfðu ekki hafist Ameríkuferðir úr
bókmentaheimi vorum. Eg efa, að Jón Thoroddsen hefði
þá staðist freistinguna, að slást í förina með. Honum virð-
ist ekki hafa verið erfitt um að yrkja Ijóð á dönsku. Lit-