Skírnir - 01.12.1919, Blaðsíða 63
Skírnir]
Faereysk þjóðernisbarátta.
269
ööngur þeirra: Eg oyggjar veit sum hava fjöll og grona
líð. Þess má geta, að lag við hann hefir samið íslending-
urinn Jón Jónsson, læknir í Vopnafiiði. Sálmaskáld var
Petersen líka. Hann varð prestur í Færeyjum og prófast-
ur eftir 1900. Hann tók mikinn þátt í pólitík, átti meðal
annars sæti um hríð í landsþinginu danska, og var þar í
flokki römmustu hægrimanna. í lögþinginu var hann á
efri árum sínuin formaður sambandsflokksins, og var þá
orðinn svo dansklundaður, að hann mælti þar ekki á fær-
eysku nema höppum og glöppum.
Rasmus Christoffer Effersöe (1857—1916) var af is-
lenzkum ættum. Afí hans, Jón Guðmundsson, komst í fé-
lagsskap við Jörund hundadagakonung, staðfestist síðar i
Færeyjum og tók sér nafn eftir Effersey við Reykjavík.
Rasmus Effersöe var á unga aldri i útlöndum og lagði
stund á búfræði. Eftir að hann kom heim, varð hann
búnaðarráðunautur í Færeyjum, og hélt því starfi langa
hrið. En jafnframt lagði hann stund á ritstörf, var um
tíma ritstjóri Dimmalættingar og bindindisblaðsins Dúgvan.
Hann gekst fyrir því 1889, að stofnað var félag til að
verja færeyskt mál og siðu og styðja framfarir Færeyinga
í öilum greinum. Nafn þess var Feringafelag. Það gaf
út fyrsta blaðið, sem ritað var á færeysku, Feringatíðindv,
þau komu út í 11 ár (1890—1901) og var Effersöe lengst
af ritstjóri þeirra og formaður félagsins. Vinsælt verk
var það ekki, því að frá fyrsta fari voru bornar þær
sakir á Foringafelag, að það væri stofnað til fjandskapar
við Dani og danska menning, en var auðvitað alveg til-
bæfulaust. F^ringatíðindi fluttu fyrst og fremst fregnir,
innlendar og útlendar, og auk þess rnargar vel ritaðar
greinar um ýms efni, sem þá lágu Færeyingum á hjarta.
Vafalaust hafa þau glætt mjög föðurlandsást og þjóðrækni,
en gagnið, sem þau gerðu, lá þó eigi sízt i því, að þau
vöndu Færeyinga á að lesa móðurmál sitt.
Effersöe var skáld gott og hefir ort ýms lagleg kvæði.
Hann hefir ogsamið nokkra sjónleiki (Sjónarl eikir 1901),
bina fyrstu á færeysku. Þeir hafa verið leiknir hingað