Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.03.1956, Page 7

Kirkjuritið - 01.03.1956, Page 7
Vitnisburður um eilífa lífið (Srindi (latt í Caugarmskirkju) í kvöld ætla ég að tala um það, sem oss mennina varðar einna mest, en það er ódauðleiki lífs vors. En það verður með dálít- ið einkennilegum hætti. Eg ætla að leiða eitt vitni í því máli, sænskan biskup, Thorsten Bohlin að nafni. Þegar ég kynntist honum, var hann ungur maður og enn ekki orðinn biskup. Það var í lýðháskólanum í Sigtúnum fyrir þriðj- ungi aldar. Hann flutti erindi, og var mér starsýnt á þennan fríða og glæsilega mann, sem var betur máli farinn flestum öðrum. Hann byrjaði á því að segja frá hermanni í stríði, ung- um, hraustum ofurhuga. Allt í einu fær hann kúlu í höfuðið og hnígur andvana til jarðar. Hvað er orðið um hann? Er hann alveg horfinn úr tilverunni? Þeirri spumingu leitast hann því næst við að svara út frá reynslu þeirra, er lægju við dauðans dyr. Hann nefndi fjölmörg dæmi, sem bentu á það, að þeir ættu líf framundan. Ég man sérstaklega tvö þeirra. Aldraður maður lá mjög langa banalegu. Hann hafði Nýja testamentið hjá sér. Þar var ein málsgrein, sem hann minntist einkum á, orð Páls postula í 2. Korintubréfi: Fyrir því látum vér ekki hugfallast, en jafn- vel þótt vor ytri maður hrörni, þá endumýjast dag frá degi vor 'nnri maður. „Þessi orð standast prófraun sína“, sagði hann fagn- andi. „Það er nákvæmlega þetta, sem ég er að reyna núna dag frá degi.“ Annar maður var orðinn svo langt leiddur, að hann gat aðeins hvíslað. En glettnisglampi var í augum hans stund- um. Hann bað vin sinn að beygja sig niður að sér og sagði síðan: >Á ég að segja þér, hvaða álit ég hefi á þeim, er telja ekkert líf eftir þetta. Ég segi bara: Þeir eru heimskir.“ Ennfremur sagði Thorsten Bohlin frá sálfræðingnum mikla, William James, og heimspekirökum hans fyrir framhaldi mannlífsins handan við

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.