Kirkjuritið - 01.03.1956, Blaðsíða 29
PISTLAR
123
gæta þess, að þeir af einhverjum misskilningi gefi ekki barni
sínu eitthvert nafn, sem síðar kann að verða því til sárrar raun-
ar, og jafnvel valda því kinnroða.
Kristilega aí sér vikið.
Eg tek hér traustataki örstutta frásögn um Tryggva Gunnars-
son úr bók Þorkels háskólarektors. Hún varpar fögru ljósi á veg-
lyndi og atorku Tryggva, og minnir jafnframt á óteljandi kærleiks-
verk, sem unnin eru í kyrþey, beint og óbeint fvrir áhrif Krists.
Tryggvi var tæplega 23ja ára, þegar þetta gerðist. Það var
sumarið 1858, og hafði hann þá verið sendur til Reykjavíkur til
að semja um hagstæðari verzlun fyrir Þingeyinga. Þetta var
hans fyrsta langferð og einnig fyrsta ganga hans á fund valda-
manna, og fyrsta brautruðning hans til þjóðfélagslegra umbóta.
Reyndi ferðin mikið á hann á margan hátt. Mundu líka flestir
hafa talið sig eiga langa og góða hvíld skilið, er hann að loknu
erindi kom ríðandi sunnan fjöll. En nú segir orðrétt:
„En þótt Tryggvi væri hvíldinni feginn, er hann settist að í
Höfða, sem fyrr segir, hefir hann verið árla á fótum daginn eftir.
Bjóst hann nú til heimferðar. Kom hann við í Laufási á heim-
leiðinni, en þar frétti hann að Einar Erlendsson, maður Sigríðar
Þorsteinsdóttur fóstru hans, lægi veikur í taugaveiki, tvö börn
þeirra hjóna væri dáin úr veikinni, en heimilið forstöðulaust.
Þau Einar bjuggu þá að Fremstafelli í Kinn. Brá Tryggvi skjótt
við, reið úr Laufási skemmstu leið um Gönguskörð og Finn-
staðadal og kom í Fremmstafell að kvöldi miðvikudags 28. júlí.
Kvaddi hann þar dyra og kallaði fóstu sína út og bauð henni
að slá á túninu fyrir hana, en það var allt óslegið og allt verk-
fært fólk lá rúmfast. Bað hann hana að vísa sér á verkfæri, og mat
yrði hún að færa sér út á tún og leyfa sér að sofa í fjárhúsgarða,
því í bæinn kæmi hann ekki vegna veikindanna. Þarna vann
Tryggvi til laugardagskvölds, 31. júlí, en þá reið hann heim í
Háls. . . .“ Þessi athöfn er mikil prédikun, og þá er blómlegt
kristnilíf, þegar lifað er í slíkum anda.
Gunnar Árnason.