Kirkjuritið - 01.03.1956, Qupperneq 46
140
KIRKJURITIÐ
er Hróarskeldu biskup. Um 100 biskupar voru viðstaddir, og lásu 30 kirkju-
höfðingjar einhver ritningarorð, hver á sínu máli. Barðar voru bumbur og
leikið á bliajan, áður en skrúðgangan hófst til kirkjunnar. Hinn nýi biskup
er sagður mikill lærdómsmaður. I „hirðisbréfi" sínu kvað hann svo að
orði: „Vér stöndum á þröskuldi nýrrar aldar. Lokið er hinni gömlu trú-
boðsöld, er vér vorum stjórnarfarslega, fjárhagslega og menningarlega háðir
Vesturlöndum. Nú dagar hin nýja öld, sem krefst þess að hver landskirkja
sé að sjálfsögðu grundvölluð á Kristi en jafnhliða rótfest í sínu eigin landi.
Kirkjan á ekki lengur að vera erlent trúboðsfélag, heldur trúboð meðal
sinnar eigin þjóðar.“ Dr. Manikam er fæddur 19. apríl 1897.
John Parker verkalýðs þingmaður hefir hafið máls á því í neðri mál-
stofu enska þingsins, að kaþólskum prestum verði veitt kjörgengi til enska
þingsins. Slíkt hefir verið bannað í margar aldir, og virðist tími til kominn
að lagfæra það misrétti. Einnig annarra, sem svipuðu máli gegnir um.
Prestastefna mótniælenda í Austurríki hefir einróma fellt að leyfa
konum að taka prestsvígslu. Þær mega þó vinna að safnaðarmálum yfir-
leitt, enda hafa þær gert það dyggilega, ekki sizt á síðari árum.
Prófessor Volkmar Herntrich hefir verið kjörinn biskup í Ham-
borg sem eftirmaður Theodor Knolle, sem andaðist 2. des. 1955 eftir aðeins
eins árs biskupsdóm. Herntrich biskup er fæddur 8. des. 1908, prestssonur
úr Slésvík. Hann varð sem ýmissir aðrir fyrir barðinu á Nazistum á sínurn
tíma, en hefir stöðugt vaxið í áliti og að vinsældum innan safnaðanna.
Hefir tekið allmikinn þátt í kirkjulegu starfi.
Ný útgáfa lútersku sálmabókarinnar í Ungverjalandi er komin út. Fyrsta
sálmabók þessarar tegundar kom út þar í landi 1743. í þessari síðustu út-
gáfu eru felldir niður allmargir sálmar, „sem ekki eru sungnir lengur.
í stað þeirra koma nokkrir nýir til reynslu, og aðrir, sem eru almenn eign
kirkjunnar. Prentuð eru nokkur sálmalög í bókinni og einnig „tónlög“ við
bænir, sem prófessor Karoly Pröhle hefir ýmist samið eða valið.
Svíar hyggjast gefa Islendingum kirkjuklukku á Skálholtshátíðinni 1
sumar. Tvær nefndir starfa að peningasöfnun í því markmiði. Onnur er
skipuð af svenska prestafélaginu, og starfar innan þess. Hin er valin að fruna-
kvæði Björkquists biskups, og er hann formaður hennar. Aðrir nefndarmenn
eru, Seth Brinck konsúll fyrir ísland i Stokkhólmi, prófessor Svan B. F.