Kirkjuritið - 01.03.1956, Síða 50
Óveitt prestsembætti
1. Breiðabólsstaðarprestakall í Snæfellsnessprófastsdæmi
(Breiðabólsstaðar- og Narfeyrarsóknir).
Heimatekjur:
1. Eftirgjald prestssetursins ............. kr. 200.00
2. Árgjald af viðlagasjóðsláni ............. — 80.00
3. Árgjald v/viðgerða á íbúðarhúsi .......... — 135.00
4. Árgjald í fyrningarsjóð ................. — 120.00
Kr. 535.00
2. Vestmannaeyjaprestakall í Kjalarnessprófastsdæmi
(Ofanleitissókn).
Heimatekjur engar.
Ilér er um að ræða annað prestsembættið í Vest-
mannaeyjum, en þar skulu nú samkvæmt lögum vera
tveir prestar. Um verkaskiptingu milli prestanna og
skýrslugerðir fer eftir sanmingi þeirra, er biskup sam-
þykkir, eða reglugerð, sem ráðherra setur, ef þurfa þvkir.
3. Aukaprestsembætti.
Biskupi er heimilt að ráða prestsvígðan mann til þess
að gegna prestsþjónustu um stundar sakir í þeim presta-
köllum, þar sem prestur er veikur, eða kallið er prests-
laust af öðrum ástæðum. Ráðningatími skal vera allt
að þrem árum í senn.
Aukaprestur hefir sömu laun og sóknarprestar, en
ferðakostnaður hans milli prestakalla svo og húsaleiga.
ef hann fær eigi afnot embættisbústaðar prestakallsins,
greiðist samkvæmt reikningi, er kirkjumálaráðherra úr-
skurðar.
Umsóknarfrestur um öll embættin er til 20. apríl 1956.
Biskuj> íslands, Reykjavík, 6. marz 1956.
Ásmundur Guðmundsson.