Uppeldi og menntun - 01.01.1994, Side 114

Uppeldi og menntun - 01.01.1994, Side 114
E R SÉRKENNSLA TIL ÓÞURFTAR? Þá er komið að seinni spurningunni: Þegar spurt er hvar sérkennsla eigi að fara fram endurspegla svörin mismunandi viðhorf kennara, foreldra og annarra sem hafa myndað sér skoðun á þessu máli. Svo virðist sem fylgismenn heiltæku skóla- stefnunnar telji það vera meginmarkmið baráttunnar að öll börn séu allan skólatíma sinn í almennum bekk í grunnskóla og þar og hvergi annars staðar eigi kennsla þeirra að fara fram. Hér sé fyrst og fremst um siðferðilega spurningu að ræða sem beri að vinna að hversu litlir sem möguleikar skólans á að veita nemandum kennslu við sitt hæfi eru. Nauðsynlegt er að skoða vandlega hvort kennsla fatlaðs nemanda inni í almennum bekk sé ævinlega siðferðislega rétt ráðstöfun. Samkvæmt minni siðferðiskennd er það hvorki rétt að allir þroskaheftir nemendur séu allan skólatíma sinn í almennri kennslustofu, né að allir þroskaheftir nemendur séu í sérskólum. Ástæðan er einfaldlega sú að þroskaheftir nemendur eru afar mismunandi og sér- þarfir þeirra ólíkar. Reynslan hefur sýnt og sannað að það sem hentar einum úr þessum hópi vel getur reynst öðrum nær óbærileg kvöl. Við munum því áfram þurfa á fjölbreyttum úrræðum að halda - valkostum þarf að fjölga en ekki að fækka. Samhliða er nauðsynlegt að vinna að því að sérkennsla njóti skilnings og velvilja innan skólanna sem utan. Sú gagnrýni á sérkennslu sem skipulag og starfsgrein, er hér hefur verið gerð að umræðuefni, hlýtur að knýja alla, sem láta sig þessi mál einhverju skipta, til að horfa um öxl og íhuga hvaða þættir starfsins þurfi að breytast og hverja beri að efla. Tengslin við almennu kennsluna geta áreiðanlega aukist frá því sem nú er og kanna þarf nýjar leiðir við útfærslu og framkvæmd sérkennslunnar sem gera það mögu- legt. Sérkennarar ættu að hugleiða hvaða kröfur þeir gera til nýrra hugmynda áður en þeir gera þær að sínum. Þarf ekki að vera einhver trygging fyrir því að hinar nýju hugmyndir taki fram því skipulagi sem nú er viðurkennt? Ef til vill er það eitt af einkennum sérkennarastéttarinnar að hún virðist hafa tilhneigingu til að halda sig meira við einhvers konar trú en vísindi. Kannski er sannfæring hjartans nær okkur sérkennurum en efasemdir hins vísindalega hugsandi manns. En er ekki ástæða til að láta hvort tveggja ráða gildismati og viðhorfum? Og sérkennarar hafa ef til vill gefið sögulegum staðreyndum, er varða starfið og rannsóknum á því, of lítinn gaum. Sagan skiptir máli og segir okkur meðal annars þetta: Athuganir og rann- sóknir á starfinu hafa hvorki komið að gagni þegar óréttmætar eða rangar ályktanir hafa verið dregnar af rannsóknarniðurstöðum né þegar niðurstöður hafa verið teknar of bókstaflega. Það má jafnan búast við stöðnun eða „bakslagi" þegar við blasir að vonir manna hafa ekki verið reistar á nægilega traustum grunni. Kauffman (1993) bendir t.d. á hættuna sem er því samfara að koma á skipulagi sem gerir ráð fyrir að allir nemendur stundi nám í almennum bekkjum án þess að byggt sé á óyggjandi niðurstöðum athugana eða reynslu kennara í skólastarfi. Hætta er á að kennarar og aðrir missi trúna á að unnt sé að ná árangri í kennslu al- varlega fatlaðra barna ef í ljós kemur að það sem boðað er af eldmóði og krafti reynist þegar allt kemur til alls vera blekking eða óskhyggja fremur en raunveru- lega traust aðferð. Tvær „aðferðir" eða kennsluskipulag, sem náð hafa útbreiðslu og vinsældum um þessar mundir eru „facilitated communication", sem m.a. var fjallað um á alþjóðlegri ráðstefnu í Reykjavík sumarið 1994 og altæk gæðastjórnun íkennslu, 112
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138

x

Uppeldi og menntun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.