Tímarit lögfræðinga - 01.10.1979, Side 31
Ákvörðun um friðun svæða og bætur til eiganda eða umráðamanna
er tekin af sérstökum friðunarnefndum. I hverri nefnd eiga 3 menn
sæti. Formaður skal vera dómari og er hann skipaður af ráðherra.
Sveitarstjórnir og amtsráð kjósa hina tvo. Ákvörðunum friðunar-
nefnda má skjóta til yfirfriðunarnefndar. Hún leitar samkomulags
um bætur til eiganda vegna friðunar. Náist ekki samkomulag fer mál-
ið til lokaákvörðunar fyrir sérstaka matsnefnd. (29. og 30. gr.).
1 lögunum eru ennfremur ákvæði um, að ætíð þurfi leyfi sérstakrar
friðunarskipulagsnefndar til þess að koma á fót föstum tjald- og við-
legusvæðum, bensínstöðvum, vörugeymslusvæðum og minkabúum. Þá
þarf leyfi þessarar nefndar til að breyta rennsli flj óta eða vatna lands-
ins, sbr. 43. gr. 1. og 2. mgr. Jafnframt er í lögunum ákvæði um leyfis-
skyldu vegna bygginga og framkvæmda, t.d. töku sands og malar, og
um heimildir almennings til að fara um og dveljast á annarra landi.
önnur löggjöf er viðurhlutamikil í friðunarmálum í Danmörku. Það
eru svæðaskipulagslögin, sem sett voru 1969. Samkvæmt þeim lögum
þarf leyfi til bygginga í dreifbýli jafnt sem þéttbýli og jafnframt leyfi
til annarra landnota en skógarhöggs, fiskveiða og landbúnaðar. Á
þennan hátt eru stj ómvöldum fengnar heimildir til þess að varðveita
landið án verulegra breytinga, þar sem það er talið æskilegt vegna
náttúruverndars jónarmiða.
HEIMILDARRIT:
Erstatningsansvar for forureningsskader,. NOU 1973:8.
Friluftsloven. Khöfn 1969.
Miljöbeskyttelsen. Khöfn 1972.
Miljöbeskyttelsesloven. N. Borre. Khöfn 1974.
Miljöministeriets struktur. Khöfn 1975.
Miljöreformen. Khöfn 1974.
Miljöverndepartementet. Oslo 1974.
Naturfredningsloven, V. Nielsen, B. Brix, V. Koester, O. Plougmann. Khöfn 1973.
Naturvárdslagen. Stokkhólmi 1975.
Naturvárdsverkets ársbok 1978. Stokkhólmi.
Nordisk miljöratt. B. Bengtsson. Nordisk utredningsserie 1976:25.
125