Tímarit lögfræðinga - 01.10.1979, Síða 55
Ávíð
02 dreif
NORRÆNA EMBÆTTISMANNASAMBANDIÐ
Dagana 22.—24. ágúst hélt Norræna embættismannasambandið mót eða
almennan félagsfund, sem efnt er til á þriggja ára fresti. Að þessu sinni var
mótið haldið í Björgvin í Noregi, og tóku rúmlega 200 félagsmenn þátt í því.
Aðalumræðuefnið var: „Opinber stjórnsýsla á Norðurlöndum næstu tvo
áratugina — ýmis sjónarmið". Framsögumaður var Johan P. Olsen, prófessor
við Björgvinjarháskóla.
Önnur umræðuefni voru tengd þessu stóra verkefni og má þar telja: „Opin-
ber stjórnsýsla og valddreifingin í þjóðfélaginu, einkum afstaða stjórnsýsl-
unnartil einstaklingsins", „Þjóðfélagsjáegnarnir og stjórnsýslan", „Meðákvörð-
unarréttur í stjórnsýslunni, atvinnulýðræði andspænis pólitísku lýðræði", og
„Möguleikarnir sem stjórnsýslulögin veita til að unnt sé að hafa áhrif á ákvarð-
anatökur í samfélaginu". Fyrirlesarar voru einkum háskólakennarar, sem starfa
við háskóladeildir, er fjalla um stjórnsýsluverkefni.
Að loknum erindunum var þátttakendum skipt í umræðuhópa, þar sem
margvísleg úrlausnarefni og kenningar um stjórnsýsluna voru brotin til mergjar.
ísland er eina landið á Norðurlöndum, sem ekki hefur samþykkt stjórn-
sýslulög, hvorki almenn stjórnsýslulög né lög um aðgang almennings eða aðila
að stjórnsýslunni. Vinnubrögð stjórnsýslunnar á íslandi standa nokkuð að baki
þess, sem er á öðrum Norðurlöndum, og er brýnt, að átak sé gert hér á landi
til að þoka stjórnsýslumálum til betri vegar. Áberandi er, að hér á landi skuli
ekki vera vottur að atvinnulýðræði, þar sem starfsmönnum er fengin með-
ákvörðunarréttur af einhverju tagi. Á fundinum kom fram, að almennur áhugi
er á öðrum Norðurlöndum á stjórnsýslunni og ýmsum hliðum hennar, sem
ekki verður vart hér á landi.
Á stjórnarfundi í tengslum við þennan félagsfund var ákveðið, þar sem
margt bendir til þess að sambandið sinni ekki nægilega samnorrænum mál-
efnum, að skipa vinnuhóp til þess að gera úttekt á stöðu sambandsins, og
gera tillögur að breytingum á störfum þess fyrir næsta félagsfund, sem hald-
inn verður á sumri komanda.
Þykir m.a. brýnt, að formleg Islandsdeild verði stofnuð, þar sem þátttakendur
greiði félagsgjöld, haldnir verði fundir o. fl. Verður tilkynnt sérstaklega síðar,
hvernig að þeirri deildarstofnun verður staðið. Til þessa hafa þeir, sem sækja
norrænu mótin, valið stjórn eða nefnd til að standa að þessu samstarfi af
íslands hálfu. Nú eru í stjórn íslandsdeildarinnar: Baldur Möller formaður,
Hjalti Zóphóníasson ritari, Gunnlaugur Claessen ritstjórnarfulltrúi og Guð-
mundur Vignir Jósefsson meðstjórnandi. Björgvinjarmótið sóttu stjórnarmenn-
irnir að Gunnlaugi Claessen undanskildum. Samtökin, sem standa að norrænu
embættismannamótunum, gefa út tímaritið Nordisk Administrativt Tidsskrift.
Koma 4 hefti út á ári hverju. Hjalti Zóphóníasson.
149