Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.2005, Qupperneq 12
12 MÁNUDAGUR 20. JÚNÍ2005
Fréttir DV
Læti á Súðavík
Samkvæmt Bæjarins
besta, blaði ísflrðinga, þurfti
lögreglan að hafa afskipti af
mönnum að loknum dans-
leik á Súðavík í nótt. Eitt-
hvað hafði gamanið kárnað
og hafði dansinn umbreyst í
ryskingar og slagsmál. Lög-
reglan þurftir að nota
táragasúða til þess að ráða
við lætin og þurfti einn að
gista fangageymslu. Sam-
kvæmt lögreglunni voru það
um það bil fimm aðilar sem
sáu um slagsmálin og þurfti
fjóra lögreglumenn til þess
að róa þá. Eftirmál verða lík-
legast engin, en eins og er
sagt við ísafjarðardjúp:
„Menn hafa ekki tíma í svo-
leiðis."
XFMkomintil
Vestmanneyja
Nú ættu Eyjamenn að
geta glaðst því nú er hægt
að ná rokk-
stöðinni
XFMíVest-
mannaeyjum |
á tíðninni
104,7. Rokk-
stöðin starfar |
undir for-
merkjum stærstu rokkút-
varpskeðju í heimi en það
er einmitt XFM. XFM var
stofnuð af fyrrverandi út-
varpsmönnum á X-inu
gamla eftir að það var lagt
niður. Þar er hægt að hlusta
á hinn sívinsæla morgun-
þátt „Capone" undir stjórn
Andra Freys og Búa B.
Afmæli kosn-
ingaréttar
kvenna
Sunnudaginn
19. júní varð
kosningaréttur
kvenna 90 ára.
Athöfn var hald-
in á Þingvöllum og flutti
Vigdís Finnbogadóttir, fyrr-
verandi forseti íslands, há-
tíðarávarp. Einnig voru 18
rósir settar í Drekkingarhyl
en það var gert til þess að
minnast þeirra 18 kvenna
sem þar var drekkt. Kosn-
ingaréttur og kjörgengis-
réttur kvenna kom í
nokkrum skrefum hér á ís-
landi og var hann orðinn að
samræmdum lögum um
land alit árið 1926.
„Það var fábært veður hérna
á Isafíröi á 17. Júní, enda þótt
ekki hafí verið sól,“segir
Reynir Torfason, myndlist-
armaður á ísafiröi.„Reynd-
Landsíminn
fólki
oft veðrið ekki orðið al-
mennilega gott fyrr en sólln
skín, en hér var stafalogn og
hin mesta blíöa. Það ernú
aö veröa einhvers konar
kjötkveðjuhátlðarbragur á
þessum hátíðarhöldum nú
til dags. Það virðast allir vera
búnir aö gleyma þvl aö
minnast á aukiö lýðræöi og
bættkjör."
Drög að alheimsskrá yfir barnaníðinga verða skerpt enn frekar á fundi leiðtoga G8 í
næstu viku. Þar verða geymdar myndir af níðingum og fórnarlömbum sem finnast
á tölvum og netinu til að lögregluyfirvöld í hinum ýmsu löndum geti hjálpast að.
Alheimsskrá ylir barna-
níðinna aö verða til
Á leiðtogafundi G8 fyrir tveimur árum var ákveðið að hrinda af
stað fjölþjóðlegum gagnagrunni yfír barnaníðinga. Því hafa lög-
regluyfirvöld í nokkrum löndum unnið hörðum höndum að því
að skrá niður allar upplýsingar sem þau hafa undir höndum um
barnaníðinga og fórnarlömb þeirra. Nú fer að líða að því að
grunnurinn verði tekinn í notkun.
heims og Rússlandi.
Góður árangur Breta
Breska lögreglan hefur nú þegar
komið á fót gagnagrunni sem í eru
yfir 800 þúsund myndir. Þau gögn
verða sameinuð gögnum frá öðrum
löndum þegar alheimsgagnagrunn-
urinn verður tekinn í notkun. En
Bretar hafa náð góðum árangri. Talið
er að samtals séu þrjú þúsund fórn-
„Tæknin vinnur með okkur. Verk-
efnið er vel á veg komið. Interpol hef-
ur sérstaklega orðið vel framgengt.
Gagnagrunnurinn verður mjög öfl-
ugt tæki til að takast á við þessa
hræðilegu og skipulögðu glæpi,“ seg-
ir Charles Clarke, innanríkisráðherra
Bretlands. Clarke verður fundarstjóri
á leiðtogafúndi G8, sem hefst í Sheffi-
eld á Englandi á fimmtudaginn. G8
samanstendur af sjö ríkustu þjóðum
fslenskir bamaníðingar
Þeir Birgir Ingólfsson, Ágúst Magnússon og
Steingrlmur Njálsson verða væntanlega I
alheimsskrá barnanlðinga.
arlömb á myndunum í gagnagrunni
þeirra. Aðeins er búið að bera kennsl
á hluta þeirra. Hins vegar hafa 7000
níðingar þekkst á myndunum. Þar af
er búið að handtaka 3500, kæra um
1700 og dæma um 1250. Interpol hef-
ur einnig náð góðum árangri með
notkun gagnagrunns. Þónokkur
reynsla er því nú þegar til staðar og
ljóst að slíkir gagnagrunnar hjálpa
mikið við rannsókn, auk þess að
spara gríðarlegan tíma fyrir rann-
sóknarlögreglumenn.
Landamærin hverfa
í grunninum munu lögregluyfir-
völd um heim allan skiptast á upp-
lýsingum þannig að auðveldara
verði að bera kennsl á barnamðinga
og fómarlömb
þeirra. Þá er einnig
verið að útbúa for-
rit sem ber mynd-
irnar saman og ber
kennsl á níðinga,
herbergi og bak-
grunna, sem koma
fyrir á myndunum.
Þannig verður
reynt að minnka
hið gríðarlega um-
fang brotanna.
Einnig er vonast til
þess að frekari ár-
angri verði náð á
móti alþjóðlegum
gengjum. í dag
m stunda þau að
I flakka yfir landa-
W'
í grunninum munu
lögregluyfirvöld um
allan heim skiptast á
upplýsingum þannig
að auðveldara sé að
bera kermsl á barna-
níðinga og fórnar-
lömb þeirra.
mæri og stinga lögregluna þannig af.
Næst á dagskrá
Á leiðtogafundi G8 í Sheffield
verður farið yfir skýrslur ffá Interpol
og fleirum þar sem kemur fram
hvaða tæknilegu hindranir standa í
vegi fyrir að grunnurinn verði að
veruleika. Búist er við því að leiðtog-
ar ríkjanna átta eigi eftir að taka
máhð föstum tökum.
Þegar alheimsgagnagrunnur yfir
bamaníðinga verður orðinn að
veruleika er búist við því að snúið
verði að öðrum grunnum. Á teikni-
borðinu er meðal annarra alþjóðleg-
ur grunnur um hryðjuverk. Hryðju-
verkasamtök nýta sér landamæri
mikið og stofría sellur úti um allan
heim. Þá á einnig að búa til grunn
um alþjóðleg, skipulögð glæpagengi
og spillingu í Affflai, sem þykir þarft
að ná í skottið á til að álfan geti náð
almennilegum framförum.
Harövítugar deilur um hver hafi átt hugmyndina aö Da Vinci lyklinum
Er metsölubókin Da Vinci lykillinn stolin?
Höfundi Da Vinci lykilsins, Dan
Brown, hefur nú verið stefnt fyrir rit-
stuld. Bókin sem fjallar um leitina að
hinum heilaga sannleika og leyndar-
dóma kirkjunnar hefur verið seld í
30 milljón eintökum úti um allan
heim og er ein af vinsælustu bókum
heims síðustu ára.
Nú hafa þrír rithöfundar, þeir
Michael Baigent, Richard Leigh og
Henry Lincoln sagt að Da Vinci lyk-
illinn byggist öll á rannsóknum
þeirra um sama mál sem birtust í
bókinni „Holy blood, holy grail". En
þeirra bók hefur selst betur eftir vin-
sældir Da Vinci lykilsins.
„Maður er stundum neyddur til
þess að lögsækja fólk, ef það yfirtek-
ur vinnu manns og hugmyndir. Við
höfum beðið með að
lögsækja hann vegna
þess að það er leið-
indamál að lögsækja
annan höfund. Sann-
leikurinn er sá að
hann hefur stolið öllu
meginmáli í okkar bók
en það tók okkur sjö ár
að rannsaka þetta.
Þetta er víti til varnaðar
fyrir alla rithöfunda. Ef
þið virðið ekki annarra
manna vinnu, fariði til
fjandans,"
segir Michael Baigent einn höfunda
„Holy blood, holy grail". Dan Brown
tiefur ekkert sagt um mál-
ið. Kvikmynd er nú í bí-
gerð um bók Dans Brown
og er það Hollywood-
hetjan Tom Hanks sem
stendur fyrir henni. „Ef
við vinnum réttarhöldin
þá stöðvum við þessa
mynd um leið," segir
Michael Baignant. Bók-
in „Holy blood, holy
grail" kom út árið 1982
og fékk eindóma lof
bókmenntagagn-
rýnenda.