Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.2005, Page 18
78 MÁNUDAGUR 20. JÚNÍ2005
Sport DV
Aðeins sjö þjóðir hafa verið með á sjö síðustu stórmótum í handboltanum og ísland er eitt þeirra eftir
^strákarnir okkar náðu sögulegum áfanga í Minsk í Hvíta Rússlandi um helgina.
Islenska landsliðið í úrvalshópi
Meistarar
Inn á topp 6
Fyrir neðan 10
HVAÐ ÞÝÐA LITIRNIR
Hér fyrir neðan má sjá saman-
burð á þeim þjóðum sem hafa
komist á flest stórmót frá 2001.
íslenska handboltalandsliðið
náði sögulegum árangri um
helgina þegar það tryggði sér
þátttökurétt á Evrópumótinu í
Sviss. Þetta verður sjöunda
stórmótið í röð þar sem
íslenska liðið verður meðal
þátttakendá, en íslenska lands-
liðið hefur ekki misst úr stór-
mót síðan á ólympíuleikunum
í Sydney.
Síðan í Sydney fyrir fimm árnm
hefiir ísland verið með á þremur
Evrópumótum (mótið í Sviss
meðtalið), þremur heimsmeistara-
keppnum og svo á ólympíuleikunum
í Aþenu 2004.
Það hefur gengið á ýmsu hjá
íslenska landsliðinu í handbolta á
þessum tíma, en hvernig sem
niðurstaða stórmótanna hefur orðið
hefur liðið alltaf verið með og það er
mjög þýðingarmiJdð fyrir íslenskan
handbolta. Það er allt annað en sjálf-
gefið, enda er keppnin gríðarlega
hörð að komast í úrslit á Evrópumót-
unum, heimsmeistaramótunum og
ekki síst inn á ólympíuleikana.
Eins og sést hér á töflunni fyrir
neðan eru það ekki margar þjóðir
sem geta státað af sama árangri og
íslenska liðið síðustu fimm ár og allar
eiga þær sameiginlegt að vera taldar
vera meðal virtustu handboltaþjóða
heims. ísland er því í úrvalshópi.
Það hefur mikið verið talað um
gullaldarlið íslands sem komst í 6.
sætið á ólympíuleikunum í Los
Angeles 1984 og á HM í Sviss tveimur
árum seinna og vann síðan B-
keppnina 1989, en það fið fór á sex
stórmót í röð á árunum 1Ö84-1993. Á
síðasta móti var þó stærsti hluti
liðsins hættur.
Nú hefur met þessa liðs fallið fýrir
nýju gullaldarliði íslands sem
jafiiframt gengur í gegnum mikla
endumýjun þessi misserin. Það
verða því líklega aðeins tveir
leikmenn með á EM í Sviss sem hafa
verið með á öllum þessum sjö
stórmótum - Ólafur Stefánsson og
Guðjón Valur Sigurðsson.
ooj@dv.is
Þjóðir á flestum handboltastórmótum frá 2001