Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.2005, Blaðsíða 23
p
DV Sport
Fögnuður Robinho fór á
kostum gegn Evrópu-
meisturum Grikkja í
Álfukeppninni og fagnar
hér marki slnu I ieiknum
ásamt Kaká, leikmanni AC
Milan.
NordicPhotos/AFP
Brasilíski leikmaðurinn Robinho er eftirsóttur enda gríðar-
lega hæfileikaríkur leikmaður þar á ferð. Hann hefur yfir
ótrúlegri tækni að búa og er sannkallaður listamaður.
Robinho, brasilíska undrabarn-
ið, sýndi og sannaði hvers hann er
megnugur þegar Brasilía gjörsigr-
aði Evrópumeistarana frá Grikk-
landi 3-0 f Álfukeppninni í Þýska-
landi á fímmtudag. Hann skoraði
annað mark Brasih'umanna í leikn-
um og var óheppinn að skora ekki
fleiri, hann átti ekki í vandræðum
með að leika sér að grfsku vamar-
mönnunum, en það má fasdega
reikna með því að þessi frammi-
staða sé aðeins upphafið að vel-
gengni þessa 21 árs leikmanns á
fótboltavöllum Evrópu.
„Robinho er sannkallaður töffa-
maður með boltann, hefur yfirnátt-
úrulega hæfileika. Ég hef rætt við
hann og veit að hans vilji er að spila
í Evrópu og ég hef þegar hvatt
stjórnarmenn Inter til þess að kaupa
hann.“ sagði brasilíski sóknarmað-
urinn Adriano, sem leikur með Inter
Milan á Ítalíu. Robinho er líklega á
förum frá liðinu Santos í heimaland-
inu mjög bráðlega. Saga hans er
dæmigerð fyrir brasih'skan knatt-
spymumann. Hann ólst upp í
fátækt en hann
fjölskylda hans hefur
efhast mjög á hans
hæfileikum.
Real Madrid
líklegast
Flest af stærstu
liðum Evrópu hafa sýnt áhuga
á Robinho, en langmestar lfk-
ur virðast vera á því að hann
fari til spænska liðsins Real
Madrid og hann hefur lýst
yfir dálæti sínu á félaginu.
„Ég er gríðarlega stoltur
af því að lið eins og Real Madrid hafi
áhuga á mér. Það gerir mig rosalega
stoltan og ég þakka Guði fyrir, hann
einn veit hver áfangastaður minn
verður. Mér h'ður vel hjá Santos og
þegar sá tími kemur að ég þarf að
velja þá mun ég taka
þá ákvörðun sem
hentar fjöl- —
skyldu minni
best. Þegar
ég hugsa um
að ganga til
liðs við Real
Madrid þá fæ
ég mjög
ánægjulega til
finningu, ég hef
heyrt svo góðar sög-
ur af liðinu. Ég hef
séð það spOa og ef
ég fæ að leika með
þessu hði þá hefur
draumur minn
ræst."
sagði Robinho, en hann hefur einnig
verið orðaður við Chelsea, Arsenal,
Manchester United, AC MUan og
Barcelona
Ókostir frægðarinnar
Goðsögnin Pele lék á sínum tíma
með Santos. Hann sá Robinho fyrst
1999, þegar hann var 15 ára gam-
all, og sagði í sjónvarpsviðtali að
þessi strákur myndi verða stór-
stjarna. Frægðin hefur þó sína
ókosti og því hefur Robinho svo
sannarlega fengið að kynnast.
Undir lok síðasta árs var móðir
hans í haldi mannræningja í 41 dag.
Robinho hélt blaðamannafund þar
sem hann bað fjölmiðla vinsam-
legast að fjalla ekki um málið og
bað lögregluna um að draga sig
í hlé því hann ætlaði sjálfur að
sjá um þetta mál. Þessi hernað-
aráætlun hans virkaði svo á end-
anum.
„Það er sannkahaður fjársjóður
að geta notað leikmann með svona
persónuleika og hæfileika,"
sagði Carlos Alberto Parreira,
landsliðsþjálfari Brasihu,
eftir sigurinn á Grikkjum.
„Hann er ungur og á
margt eftir ólært en við
eigum ekki eftir að
þurfa að bíða lengi eft-
ir því að hann verði
lykUmaður í byrj-
unarliði okkar."
elvar@dv.is
Éngin sumarstúlka
í þessu tölublaði.
kemur út alla föstudaga
verð kr. 300
fylgstu með!
I