Fréttatíminn - 15.06.2012, Side 23
2011
2010
62%
SÖLUAUKNING
MÝRANAUT
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
1
2
-1
0
3
9
Fjölmörg fyrirtæki í viðskiptum við Arion banka eru að ná
eftirtektarverðum árangri þrátt fyrir krefjandi aðstæður.
Arion banki fagnar þessum góða árangri.
Kynntu þér málið á arionbanki.is
ÞAÐ ERU JÁKVÆÐ TEIKN Á LOFTI
Í ÍSLENSKU ATVINNULÍFI
32%
VELTUAUKNING
VEIÐIHORNIÐ VERSLUN
23%
FLEIRI GESTIR
FISKMARKAÐURINN ehf.
2010
2011
2010
2011
Bros
Ég sem eitt sinn var,
við lífinu hafði ekkert svar.
Þá gerðist eitt,
að ég ei lengur gat mig meitt.
Núna í dag ég er.
Ást mikla í hjarta mér ber.
Svar við lífinu nú ég hef,
bros og kærleika ég gef.
Brosið bræðir hjörtu allra manna,
Ég held áfram að sýna það og sanna.
Brosa mundu,
það bætir þína lundu.
(Matthildur)
Með vonina að vopni
Með vonina að vopni
hvarf þessi ótti.
Ein og óvarin lagði af stað,
margt varð á mínum vegi.
Þetta undarlega ferðalag, aldrei frá öllu alveg ég segi.
Vegurinn var langur og mikill flótti.
Loks fann ég vonina sem varð að mínu vopni.
(Jóhanna Ósk)
standa sig í frekara námi:
„En fyrst ég náði að klára þessa átján
mánuði í Kvennasmiðjunni hlýt ég að klára
mig. Að ljúka námi, það er áfangi. Því mað-
ur á sér þá sögu að hafna áður en aðrir gera
það og hætta. Já, það er yndislegt að útskrif-
ast úr einhverju öðru en meðferð.“
Þær stöllur segja langflestar þeirra komn-
ar með plön og engin þeirra sé í lausu lofti.
Jóhanna ætlar að sækja um vinnu.
Jóhanna sækir um vinnu
„Það er ýmislegt sem mig langar að vinna
við. Mig langar að vinna á frístundaheim-
ili í Árbæ og ætla að sækja um það. Svo
hef ég áhuga á ákveðnu sambýli fyrir fólk
með geðræn vandamál. Ég ætla að sækja
um það. Fengi ég þetta gæfi það mér mjög
mikið,“ segir hún. „Ég man varla hvenær ég
vann síðast. Ætli það hafi ekki verið 2006,
en ég flutti frá Ólafsvík í bæinn 2005. Þá
hafði ég alla tíð unnið í fiski.“
Þær fagna því hvað námið hefur breytt
þeim. „Heimilislífið er miklu betra,“ segir
Jóhanna. Matthildur tekur undir. „Það er
meiri rútína. Ég er sjálf í rútínu. Við erum
búnar að fara á uppeldisnámskeið, heim-
sækja Blátt áfram. Við erum meðvitaðari
um hvað er gott fyrir börnin. Við höfum
lært að gefa af okkur,“ segir hún.
„Já og virða tilfinningar þeirra,“ segir
Jóhanna. „Já,“ segir Matthildur: „Ég er sjálf
farin að finna og skilja tilfinningar mínar.
Eðlileg samskipti; Þau lærir maður hvorki
í neyslu né þunglyndi. Og það sem stendur
upp úr er það að ég get. Ég hef trú á sjálfri
mér.“ Það að hafa markmið skipti máli. Setja
sér stefnu og markið hátt.
„Ég ætla að verðleggja mig umfram það
að vinna einfalda vinnu sem krefst lítils,“
segir hún. „Maður fær neitun en hættir ekki
að reyna heldur stendur fyrir sínu.“ Jóhanna
tekur við: „Já, halda áfram. Eins og þegar
við söfnuðum styrkjum til að gefa út ljóða-
bókina. Við fengum að heyra nei, en héldum
samt áfram.“
Og þær fagna þroskanum sem þær hafi
tekið út og segjast hafa lært að meta tím-
ann sinn betur. „Já, og sjálfan sig,“ segir
Jóhanna.
Með verkfærin verði bakslag
En óttist þið bakslag? „Það þarf að við-
halda öllu,“ segir Jóhanna og Matthildur:
„Nú erum við með verkfærin ef það kemur
bakslag. Nú kunnum við leiðir ef okkur mis-
tekst.“ Og Jóhanna segir: „Nú stöndum við
upp. Við sökkvum ekki neðar og neðar.“
Hún mælir með náminu við alla í þeirra
stöðu. „Þetta er ekki bara nám. Þetta er svo
mikil sjálfstyrking,“ segir hún. Þær segjast
ekki hafa fengið eins mikið hrós á ævinni
eins og þessa átján mánuði. Þær taki því af
barnslegri einlægni. „Það er engin refsing.
Okkur hefur ekki verið refsað,“ segir Matt-
hildur og Jóhanna tekur við. „Við höfum
fengið nóg á slíku í gegnum árin.“
Þær Matthildur og Jóhanna segja báðar
að eftirfylgni væri þó vel þegin. „Við höfum
verið í svo rosalega vernduðu umhverfi en
er nú sleppt út,“ segir Matthildur. „Þótt það
væri aðeins einu sinni í mánuði,“ segir Matt-
hildur. „Já, bara eitthvað,“ skýtur Jóhanna
inn.
Þær segjast einnig fá mikinn stuðning frá
fjölskyldum sínum. „Þau eru að drukkna
úr stolti,“ segir Jóhanna. „Það gefur mér
svakalega mikið.“
Báðar viðurkenna að námið hafi samt
ekki verið auðvelt. „Þetta er alveg búið að
vera erfitt. Sjálfsvinna er erfið. Það er búið
að gráta hérna í tímum. Reiði, gleði, það er
allur skalinn. En þetta er miklu meira en
þess virði.“
Gunnhildur Arna
Gunnarsdóttir
gag@frettatiminn.is
viðtal 23 Helgin 15.-17. júní 2012