Fréttatíminn - 15.06.2012, Qupperneq 62
Á tta manns hafa nú náð þeim merka áfanga að sigra í Spurningakeppni Fréttatímans þrisvar í röð og í næstu viku hefst innbyrðis barátta þeirra um sigur-
inn í keppninni. Í fyrra bar Þóra Arnórsdóttir, þá aðstoðar-
ritstjóri Kastljóss, sigurorð af Katrínu Júlíusdóttur, iðnaðar-
ráðherra, í hörkuspennandi úrslitum sem lauk með 12 – 11
sigri Þóru eftir tvöfaldan bráðabana.
„Ég hélt að það væri toppurinn á ferlinum og að ég væri
útbrunnin en svo kemur þetta. Ég er greinilega á uppleið
aftur,“ sagði Þóra eftir sigurinn í fyrra en umtalsverðar
breytingar hafa orðið á högum hennar síðan þá vegna þess
að eins og alþjóð veit stendur hún nú í bullandi kosningabar-
áttu um embætti forseta Íslands og mælist með næst mest
fylgi á eftir Ólafi Ragnari Grímssyni í skoðanakönnunum
þannig á þeim vígstöðvum stefnir ef til vill í annan og ekki
síður spennandi bráðabana hjá Þóru.
Þóra og Katrín ólust báðar upp í Kópavogi og Þóra tileink-
aði sigurinn, nokkuð forsetalega, tveimur hópum. „Þetta er
klárlega upprisa ljóshærðra kvenna í Kópavogi og síðan vil
ég tileinka sigurinn stórkostlegum félagsskap stelpna sem
hafa keppt í Gettu betur. Við erum ekki margar en það er
þeim mun skemmtilegra hjá okkur.“
Þetta árið takast á þau Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir,
Þórður Gunnarsson, Árni Þór Hlynsson, Ásgeir Pétur Þor-
valdsson, Magnús Þorlákur Lúðvíksson, Dóri DNA, Bene-
dikt Bóas Hinriksson og Þórður Snær Júlíusson um sigur-
inn en tveir og tveir keppa næstu vikur þar til einn stendur
eftir sem sigurvegari. Og eins og Þóra Arnórsdóttir hefur
sýnt og sannað er ómögulegt að segja til um hvað framtíð
sigurvegarans ber í skauti sér. -þþ
Spurningakeppni FréttatímanS ÚrSlitabarÁttan að heFjaSt
Sigurvegarinn fór í forsetaframboð
Þ etta er það skemmtilegasta sem fyrir mann kemur í þessu lífi – þarna er ei-lífðin, í börnunum,“ segir Egill Ólafs-
son, tónlistarmaður og leikari.
Egill eignaðist alnafna í vikunni þegar
sonarsonur hans var skírður. Foreldrar hins
nýskírða Egils Ólafssonar eru leikarahjónin
Ólafur Egill og Esther Talía Casey. Egill eldri
er vitaskuld hæstánægður með þetta og er
afar hrifinn af litla drengnum. „Hann er bros-
mildur og fagur, ljúfur og kátur. Þetta er mik-
ill karakter.“
Hann sumsé kippir í kynið?
„Jú, jú, en þetta kemur úr öllum áttum.
Hann á ættir að rekja til Rangárvalla, það er
í honum Skaftfellingur og Ölfusið og Eyrar-
bakki og frá konu minni er hann húnvetnskur
og Þingeyingur skal vera í honum einnig og
svo er í honum Hugenottablóð, bæði franskt
og ítalskt og danskt. Þá hefur nafni minn frá
móður sinni írskt blóð og eins koma frá henni
Vatnsdælir í gegnum langalangafa drengsins,
Héðinn Valdimarsson, þannig er þetta langur
og glæstur bogi sem blessaður drengurinn er
kominn af. Hann gæti með glans kallað sig
Egil Armand Dupont Kaaber Ólafsson Casey.“
Tinna Gunnlaugsdóttir, Þjóðleikhússtjóri
og kona Egils, varð í fyrra sömu gæfu aðnjót-
andi og bóndi hennar. Þá var dóttir Gunnlaugs
sonar hennar og Gunnar Þórhallsdóttur von
Matern skírð; Tinna Vígdís, í höfuðið á ömm-
um sínum, Tinnu og Vigdísi Gunnarsdóttur
leikkonu. Hinn afi Tinnu Vigdísar er leikarinn
og sjónvarpsmaðurinn góðkunni Þórhallur
Gunnarsson.
Egill gleðst mjög yfir því að þau hjónin skuli
bæði hafa eignast barnabörn sem skírð eru í
höfuð þeirra. „Þetta er allt eins og það á að
vera. Ekki má heldur gleyma að systir mín
Ragnheiður hefur eignast nöfnu sína í Ragn-
heiði Eyju Ólafsdóttur, sem er eldra barn Ólafs
og Estherar. Það hefur verið hefð í minni fjöl-
skyldu að framhalda þessu svona.“
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@frettatiminn.is
ÆttFrÆði glÆStur Ættbogi egilS ÓlaFSSonar yngri
Egill Ólafs
eignast alnafna
Leikara-
hjónin
Ólafur Egill
Egilsson og
Esther Talía
Casey skírðu
son sinn
í vikunni.
Drengurinn
er nú alnafni
afa síns,
leikarans og
söngvarans
Egils Ólafs-
sonar, sem
er að vonum
hæstánægð-
ur með það.
Hundrað myndir
Herdísar
Myndlistarkonan Hulda Hákon er einn
harðasti stuðningsmaður Herdísar Þor-
geirsdóttur í forsetakosningabarátt-
unni. Hún hefur gefið út grafíkmynd í
hundrað eintökum til styrktar framboði
Herdísar: „EKKI KÓNG, EKKI KLÍKUR, LÝÐ-
VELDI!“ Myndagjöfin gefur Herdísi tilefni
til þess að blása til fagnaðar í kosninga-
miðstöð Herdísar við Laugavegi 87 í dag,
föstudag, milli klukkan 18 og 20. Þar
ætlar Hulda að afhenda frambjóðand-
anum fyrstu eintök myndarinnar sem
er djúpþrykkt offsettprent og 40 x 60
sentimetrar. Hver mynd er seld á 50.000
krónur. „Ég hef fylgst með skrifum Her-
dísar í gegnum árin og alltaf verið hrifin
af því hversu bjartsýn, óhrædd, skýr og
rökföst hún er,“ segir Hulda.
Engilbert Jensen með sumarsmell
Hljóma-trymbillinn, söngvarinn, flugu-
hnýtarinn og goðsögnin Engilbert Jensen er
í góðum gír þessa dagana. Hann tók lagið
með Júpíters á minningartónleikum um
Kristján Eldjárn, gítarleikara, á dögunum
og nú er unnið að upptökum á laginu sem
hann söng svo eftirminnilega þar. Engilbert
er maður ekki einhamur og syngur ótal
raddir í upptökum á laginu sem hann telur
góðar líkur á að verði sumarsmellurinn í
ár. Lag og texti mun vera eftir tvo meðlimi
Júpíters, sem horfnir eru yfir móðuna
miklu, og fyrrum dagskrárstjóri Sjónvarps-
ins, Rúnar Gunnarsson, sem blæs í saxófón
með Júpíters, vinnur að sögn að gerð
myndbands við lagið.
Illugi skorar á
bókalistum
Rihöfundurinn Illugi Jökulsson er öllu
þekktari fyrir sagnfræðigrúsk af ýmsu
tagi frekar en að hafa vit á boltasparki.
Hann er þó knattspyrnuáhugamaður
mikill og fylgist nú spenntur með EM
í knattspyrnu. Og keppnisanda virðist
prúðmennið ekki skorta því í vikunni
fagnaði hann því ákaflega á Facbook-
síðu sinni að tvær frumsamdar bækur
hans um tvo bestu knattspyrnumenn
heims í dag; Lionel Messi og Cristiano
Ronaldo, Messi – Eins og hann er og
Ronaldo – Eins og hann er, eru komnar á
metsölulista. „Ferill minn sem fótbolta-
höfundur hefst glæsilega! Bækur um
Messi og Cristiano Ronaldo báðar á met-
sölulistum. Jahérna!“
Hann gæti
með glans
kallað
sig Egil
Armand
Dupont
Kaaber
Ólafsson
Casey
Egill Ólafsson með Egil Ólafsson í fanginu. Sá stutti er bæði ljúfur og kátur að sögn afans. Og mikill
karakter eins og hann á kyn til.
Þóra Arnórsdóttir í fyrra með viðurkenningarskjalið frá Fréttatímanum.
Ljósmynd/Hari
00000
Veiðikortið
37 vötn
Eitt kort
6.000 kr.
www.veidikortid.is
FLEIRI VÖTN ÓBREYTT VERÐ
62 dægurmál Helgin 15.-17. júní 2012