Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.12.1998, Blaðsíða 38

Læknablaðið - 15.12.1998, Blaðsíða 38
940 LÆKNABLAÐIÐ 1998; 84 reynslu mjög óhentugir í hvers konar rann- sóknum og aðgerðum þar sem þarf að standa nálægt skyggnimagnaranum, til dæmis við æðavíkkanir á fótleggjum og í mismunandi stöðum við sjúklinginn (til dæmis við að- gerðir um vena jugularis intema). Þetta verð- ur að bæta í samvinnu við framleiðendur. 6. Nauðsynlegt virðist því verða að nota blý- gleraugu í rannsóknaaðgerðum, einkanlega þar sem ekki er hægt að verja sig með loft- festum skermum. Vandamál er, að ekki er hægt að fá sérslípuð augngler af þessu tagi fyrir þá sem þurfa slíkra með. Það er því brýnt að finna einhvem í Svíþjóð eða á Norðurlöndum, sem getur slípað blýgler þannig að slíkt gagn verði að.“ Ulf Nyman, yfirlœknir, myndgreiningadeild háskólasjúkrahússins í Malmö, Svíþjóð. 1. Guðlaugur Einarsson, Asmundur Brekkan. Röntgen- og aðrar myndgreiningarannsóknir á íslandi 1993. Lækna- blaðið 1995;81:790-7. 2. Svensk Förening för Medicinsk Radiologi. Meddelande nr. 7, 1998. Formoterol Eiginleikar: Verkunarháttur: Formóteról er öflugur sértækur beta2-örvi sem veldur slökun á sléttum vöðvum í berkjum. v/A/O Formóteról hefur þess vegna berkjuvikkandi áhrif hjá nhnlftr* siúk|influm með tímabundna þrengingu í öndunarvegum. mmUnaiGT Berkjuvíkkun hefst fljótt, innan 1-3 mín. eftir innúðun og verkunarlengd er að meðaltali 12 klst. eftir einn skammt. Lyfjahvörf: Frásog: Innúðað formóteról frásogast hratt. Hámarksþéttni í plasma næst um 15 mín. eftir innúðun. í rannsóknum hefur komið fram að meðalmagn af formóteróli sem berst til lungna eftir innúðun með Turbuhaler-tæki er um 21-37% af mældum skammti. Heildaraðgengi (sýstemískt) fyrir það magn sem berst til lungna er um 46%. Dreifing og umbrot Plasma- próteinbinding er um 50%. Formóteról er umbrotið með beinni glúkúróníðtengingu og 0- afmetýleringu. Ensímið sem veldur O-afmetýleringu hefur ekki verið greint. Heildar- plasmaklerans og dreifingarrúmmál hafa ekki verið ákvörðuð. Útskilnaður: Formóteról skilst að mestu leiti út sem umbrotsefni. Eftir innúðun, útskilst 6-10% af gefnum skammti í þvagi á óbreyttu formi. Um 20% af skammti gefnum í æð skilst út í þvagi á óbreyttu formi. Lokahelmingunartími eftir innúðun er áætlaður 8 klst. Ábendingar: Einkenni um berkjuþrengingu hjá sjúklingum með astma. Oxis Turbuhaler má gefa til að lina berkju- þrengingu þegar meðferð með barksterum hefur ekki reynst árangursrik. Frábendingar: Ofnæmi fyrir formóteróli. Meðganga og brjóstagjöf: Takmörkuð reynsla er af notkun lyfsins hjá konum á meðgöngutíma. í dýrarannsóknum á formóteróli hefur það valdið fylgjulosi sem og dregið úr lífslíkum nýbura og fæðingarþyngd. Þessi áhrif komu fram við talsvert hærri þéttni lyfsins en fást við kliníska notkun Oxis Turbuhaler. Þar til frekari upplýsingar liggja fyrir skal einungis nota Oxis Turbuhaler á meðgöngutima að vel íhuguðu máli. Ekki er vitað hvort formóteról berst í brjóstamjólk kvenna. Oxis Tubuhaler skal því ekki gefa konum með barn á brjósti. Formóteról hefur fundist i litlu mæli i mjólk rotta. Varúð: Astma-sjúklingar, sem þurfa meðferð með beta2-örva, ættu einnig að fá hæfilega bólgueyðandi meðferð með barksterum. Sjúklingum skal ráðlagt að taka áfram bólgu- eyðandi lyf eftir að me'ðferð með Oxis Turbuhaler er hafin, jafnvel þó að dragi úr einkennum. Ef einkennin hverfa ekki, eða ef auka þarf skammta af beta2-örvum, bendir það til þess að sjúkdómurinn sé að versna og að endurmeta skuli astmameðferðina. Hvorki skal hefja meðferð né auka skammta við versnun sjúkdóms. Gæta skal varúðar hjá sjúklingum með skjaldvakaóhóf (thyrotoxicosis) eða alvarlega hjarta- og æðasjúkdóma eins og blóðþurrðar hjartasjúkdóma (ischemic heart diseases), hraðsláttarglöp (tachyarrhythmias) og alvarlega hjartabilun. í byrjun er mælt með tiðari blóðsykurs- mælingum hjá sykursjúkum vegna hættu á blóðsykurshækkun af völdum beta2-örva. Alvarleg kalíumþurrð getur orðið við beta2-örva meðferð. Sérstakrar varúðar skal gæta hjá sjúklingum með bráðan alvarlegan astma, þar sem sú hætta sem er til staðar getur aukist við súrefnisskort (hypoxia). Kaliumþurrð getur aukist við samtímis meðferð með xantinafleiðum, sterum og þvagræsilyfjum. Þess vegna skal fylgjast með kaliumgildum i sermi. Oxis Turbuhaler inniheldur 450 pg af mjókursykri í hverjum skammti. Þetta magn hefur venjulega ekki í för með sér hættu fyrir sjúklinga með mjólkursykuróþol. Engin gögn eru fyrirliggjandi um notkun Oxis Turbuhaler hjá börnum. Áhrif skertrar lifrar- eða nýrnastarfsemi á lyfjahvörf formóteróls og lyfjahvörf hjá öldruðum eru óþekkt Þar sem brotthvarf formóteróls byggist aðallega á umbrotum má búast við hærri gildum hjá sjúklingum með alvarlega skorpulifur. Aukaverkanir: Algengar (>1 %): Miðtaugakerfi: Höfuðverkur. Hjarta- og æðakerfi: Hjartsláttarónot. Beinagrindarvöðvar: Skjálfti. Sjald- gæfar (0,1-1%): Miðtaugakerfi: Æsingur, eirðarleysi, svefntruflanir. Beinagrindarvöðvar: Vöðvakrampar. Hjarta- og æðakerfi: Hraðsláttur. Mjög sjaldgæfar (<0,1%): Húð: Útbrot, ofsakláði. Öndunarvegir: Berkjusamdráttur. Efnaskipti: Kalíumþurrð/-blóðkalíumhækkun. Skjálfti og hjartsláttarónot geta komið fram en eru venjulega væg og minnka við áframhaldandi notkun. Eins og við á um alla meðferð með innúðalyfjum, getur þverstæður (paradoxial) berkjusamdráttur komið fram i einstaka tilvikum. Milliverkanir: Engar sértækar rannsóknir á milliverkun hafa verið gerðar á Oxis Turbuhaler. Samtimis meðferð með öðrum adrenvirkum lyfjum getur aukið óæskileg áhrif Oxis Turbuhaler. Samtimis meðferð með xantínafleiðum, sterum eða þvagræsilyfjum geta aukið hættuna á kalíum- þurrð við notkun beta2-örva. Kalíumþurrð getur aukið hættu á hjartsláttartruflunum hjá sjúklingum á meðferð með digitalis. Kínidín, dísópýramíð, prókaínamíð, fentíazín, andhistamin (terfenadin) og þríhringlaga geðdeyfðarlyf geta lengt QT-bilið og aukið hættu á sleglahjartsláttartruflunum. Beta-blokkarar geta dregið úr eða komið í veg fyrir verkun Oxis Turbuhaler. Oxis Turbuhaler skal þess vegna ekki gefa samtímis beta-blokkurum (þ.m.t. augndropar) nema brýna nauðsyn beri til. Ofskömmtun: Engin reynsla er á meðferð ofskömmtunar. Að líkindum leiðir ofskömmtun til áhrifa sem eru einkennandi fyrir beta2- örva: Skjálfti, höfuðverkur, hjartsláttarónot og hraðsláttur. Lágþrýstingur, efnaskipta- blóðsýring (metabolic acidosis), kalíumþurrð og blóðsykurshækkun geta einnig komið fyrir. Veita skal stuðningsmeðferð og meðferð gegn einkennum. Skammtastærðir handa fullorðnum: Venjulegir skammtar: 4,5-9 pg einu sinni til tvisvar á dag. Skammtinn má gefa að morgni og/eða að kvöldi. Skammt að kvöldi má gefa til þess að koma í veg fyrir að sjúklingur vakni vegna einkenna næturastma. Sumir sjúklingar geta þurft 18 |ig einu sinni eða tvisvar á dag. Forðast skal stærri skammta en 18 )ig. í klínískum rannsóknum hefur verið sýnt fram á að verkunarlengd lyfsins er um 12 klst. Ávallt skal leitast við að gefa lágmarks skammt sem verkar. Skammtastærðir handa börnum: Engin gögn eru fyrirliggjandi um notkun Oxis Turbuhaler hjá börnum. Athugið: Oxis Turbuhaler er tæki sem er drifið með innöndun. Það þýðir að þegar sjúklingur andar að sér i gegnum munnstykki tækisins berst lyfið með innöndunarloftinu til loftvega. Mikilvægt er að leiðbeina sjúklingum um að anda kröftuglega og djúpt að sér í gegnum munnstykkið til þess að tryggja hámarksskammt. Þar sem litið magn af lyfinu er gefið í hverjum skammti, er mögulegt að sjúklingur finni hvorki bragð né verði á annan hátt var við lyfið við gjöf. Upplýsingar um lyfið fylgja hverri pakkningu þess. Geymsla: Lyfið skal geyma i umbúðunum vandlega lokuðum. Pakkningar og verð (október 1997): Innúðaduft 4,5 míkróg/úðaskammt: 60 úðaskammtar í Turbuhaler-úðatæki - 3712 (hluti sjúklings 1.499 kr.). Innúðaduft 9 míkróg/úðaskammt: 60 úðaskammtar í Turbuhaler-úðatæki - 4512 (hluti sjúklings 1.500 kr. Greiðslufyrirkomulag B. Umboðsaðili á íslandi: Pharmaco h.f.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.